Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 31

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 31
fyrir unga fólkið á föstudagskvöldi í Háskólabíói. Á þessu starfsári verður GLS Youth aðskilinn viðburður sem verður haldinn eftir áramót að ósk unga fólksins. Margir þar vilja bæði koma á GLS og GLS Youth og þykir þetta henta betur. Það má segja að hugmyndirnar hafi verið fleiri en sumar þeirra komi ekki til framkvæmda í ár. Erfiðleikar í samtökunum úti hafi haft áhrif og tekið orku þar sem stofnandinn og frumkvöðullinn Bill Hybels steig til hliðar í kjölfar ákveðinna ásakana. En við höldum ótrauð áfram og ráðstefnan heldur sínu, þrátt fyrir ákveðin áföll í upprunasamtökunum. Einkum á það við um Willow Creek kirkjuna sem fóstrað hefur Willow Creek samtökin sem standa að ráðstefnunni. Enn er ákveðin uppstokkun í gangi og spennandi verður að sjá hver þróunin verður á komandi mánuðum. Ráðstefnan var að mati þeirra sem sóttu hana nú í ágúst afar góð, en á vegum okkar fóru þau Guðjón Vilhjálmsson, Inga María Björgvinsdóttir og Ragnar Schram sem sitja í undirbúningsnefndinni hér. Þessa dagana er verið að þýða og texta fyrirlestrana. Það verður því nóg af góðu efni. Eins er verið að vinna í því að fá íslenskan ræðumann, það er þó ekki Ijóst hvort af því verður. Þar fyrir utan tilkynnum við það yfirleitt aðeins nokkrum vikum fyrir ráðstefnuna. Hvað er fengið með íslenskum fyrirlesara? Ráðstefnan fær með því meiri nánd og tengingu við íslenskt samfélag og auk þess getur það haft jákvæð markaðsleg áhrif. Fjölbreytnin verður meiri í efnisvali og formi ráðstefnunnar. bjarmi | apríl 2018 | 31

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.