Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.2018, Page 38

Bjarmi - 01.10.2018, Page 38
LÍF OG STARF BILLYS GRAHAM VAR EKKIÁN DEILNA OGÁSAKANA stjórnmálin vera skemmandi fyrir kirkjuna en hvatti kristið fóik til að vera virkt í sínum stjórnmálaflokki. Billy varð snemma á ferlinum frægur og hentaði vel á sjónvarpsskjánum, hafði tök á góðri og öruggri framkomu, leit vel út og var hávaxinn. Röddin var sterk og þróttmikil en mýktist með aldrinum. Hann stundaði daglegar raddæfingar að hætti óperusöngvara langt fram á níræðisaldur. Bænin var þungamiðjan eða „vélin“ í starfi Billys Graham. Sérhvern morgun hóf hann eins, með bæn þar sem beðið var um styrk til að Ijúka því verki sem Guð hafði gefið honum. Biblían var meira og minna opin og ( höndum hans þar sem hann las og íhugaði marga kafla á dag. Hann var m.a. kallaður „páfi mótmælendakirkna í Ameríku" vegna þeirra gífurlegu áhrifa sem hann hafði. Billy Graham fór inn fyrir svonefnt járntjald til þess að prédikafagnaðarerinidið í kommúnistaríkjunum Rússlandi, Póllandi og Ungverjalandi. Hann átti fundi með Gorbachev og Yeltsin og árið 1978 var honum boðið til Krakow af pólska biskupnum Wojtyla. Enginn annar kaþólíkki í lykilstöðu hafði leitast við að hitta hann. Ætlunin var að þeir drykkju te saman en þegar flugvél Billys lenti var Wojtyla farinn til Rómar þar sem búið var að velja hann sem páfa og tók hann sér nafnið Jóhannes Páll II. Heimsókn Billys til Sovétríkjanna árið 1982 var harðlega gagnrýnd í Bandaríkjunum. Hann var ásakaður í fjölmiðlum um að afneita kúgun sem ætti sér stað þar í landi. Billy talaði hins vegar fyrir friði - í miðju kalda stríðinu - og hitti kristið forystufólk í Rússlandi. Starf hans þar náði hátindi sínum árið 1992 þegar hann var með samkomuferð í Moskvu og 11 þúsund manns komu fram til að gefast Kristi fyrsta kvöldið og 13 þúsund annað kvöldið. HEILSTEYPTUR ÞJÓNN Allir sem hittu Billy Graham töluðu um auðmýkt hans og að hann reyndi alltaf að beina athyglinni frá sér og að Jesú Kristi. Þegar bókasafnið, sem við hann er kennt, var opnað árið 2007 kvartaði hann yfir því að sjónum væri um of beint að Billy Graham. Sjálfur óttaðist hann að of mikil umfjöllun um hann myndi veikja boðskapinn og draga úr heilindum hans sjálfs. Hann vann markvisst að því að verjast hneyksli og freistingum. Hann setti skýr viðmið fyrir sig og samstarfsfólk sitt til að forðast ásakanir um fjárhagslega óreiðu og ávinning og hvers konar aðra siðlausa hegðun. Hann vildi ekki að neinn efaðist um tilgang sinn. Samskot tekin á samkomuherferðum vor mjög snemma látin renna til að greiða kostnað heimamanna við undirbúning og framkvæmd en ekki til samtaka hans. UMDEILDUR Líf og starf Billys Graham var ekki án deilna og ásakana. Sumir ásökuðu hann um að taka ekki nógu harða afstöðu gegn aðskilnaðarstefnu í mannréttindabaráttu sjötta og sjöunda áratugarins. Þó svo hann væri gagnrýninn á Jim Crow-lögin um aðskilnað í Suðurríkjunum á fyrri hluta 6. áratugarins fannst mörgum hann ekki taka nógu djúpt í árinni. Ásökunin var að hann legði meiri áherslu á afturhvarf einstaklingsins en pólitískar umbætur. Heilmikið var til í því en hann beitti sér engu að síður og þverneitaði að aðskilnaður skyldi viðhafður á samkomum hans og sýndi þannig vilja sinn í verki. Hann kynntist Martin Luther King yngri og urðu þeir persónulegir vinir þar og studdu hvor annan. Sjálfur sagði dr. Luther King: „Ef ekki hefði verið vegna þjónustu góðs vinar, dr. Billys Graham, hefði baráttan fyrir borgararéttindum ekki borið eins ríkan ávöxt og reyndin var." Sjálfur sagði Graham um sjálfan sig að Iffið væri eins og pílagrímaganga, þar sem hann væri sífellt að læra, þroskast og vaxa. Aðstæður lífsins væru ekki alltaf einfaldar, allra síst í samskiptum kynþátta og þjóðabrota. ÞÁTTTAKA ÍSLANDS í STÆRRI VERKEFNUM Billy Graham kom aldrei til íslands þó svo að samkomur Billy Grahams næðu um víða veröld, ekki síst með notkun gervihnattasjónvarps. Árið 1978 voru samkomur með honum í Stokkhólmi undir nafninu Skandia 78. Samkomur voru haldnar hér á sama tíma, en sýnt af samkomum Billys frá kvöldinu áður og annars „íslenskur rammi“ um þær. Samkomurnar voru teknar upp á myndbönd sem síðan voru send með flugvél til íslands daginn eftir. Túlkun var tekin upp jafnóðum og var faðir minn, Gunnar Sigurjónsson, túlkur. Hafði hann meðferðis síðustu spóluna, vildi ekki lenda í vandræðum með hana og sýndi í tollinum. Eitthvert mál var í byrjun, trúlega vegna verðgildis spólunnar, en hann fékk að lokum, ef ég man rétt, að hafa hana með sér og var hún síðan notuð nokkrum klukkustundum síðar á samkomu í Neskirkju. Á tíunda áratugnum tók fsland þátt í Mission World Europe, þar sem samkomur voru haldnar í Essen í Þýskalandi í mars 1993. Nú var notast við útsendingar um gervihnött og tekið á móti samkomunum á 9 stöðum á landinu: Breiðholtskirkju, Neskirkju, Fíladelfíu og Veginum á höfuðborgarsvæðinu en úti á landi á 38 bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.