Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2018, Qupperneq 39

Bjarmi - 01.10.2018, Qupperneq 39
Akranesi, ísafirði, Glerárkirkju á Akureyri, Vestmannaeyjum og í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíðinni. Á stærri stöðunum var notast við myndvarpa en sjónvörp á þeim minni. Á undirbúningstímanum voru haldin námskeið, Kristið líf og vitnisburður, svo sem venja hefur verið þar sem samkomuraðir eru haldnar af samtökum Billys Graham. ísland tók aftur þátt í enn stærra verkefni á heimsvísu, Global Mission en samkomur voru haldnar á San Juan í Púerto Ríkó í mars 1995. Samkomurnar voru síðan sendar þaðan eftir tímabeltum næsta sólarhringinn með viðbótarefni sem hæfði hverju menningarsvæði fyrir sig. Magnús Björnsson prestur og Guðni Einarsson blaðamaður voru sendir út til að unnt væri að taka upp og senda prédikun og vitnisburði með túlkun. Samkomur voru í Framheimilinu í Reykjavík og á Akureyri. Séra Gísli Jónasson var framkvæmdastjóri verkefnisins af fslands hálfu en ýmsar kirkjur og samtök mynduðu landsnefndina. Loks má minnast Hátíðar vonar árið 2013, en nú í lok september verða 5 ár liðin frá henni. Hún var haldin í samstarfi við samtök Billys Graham (Billy Graham Evangelistic Association) en Billy var ekki með enda hættur öllu slíku starfi, en umgjörð, undirbúningurog eftirfylgd byggði á arfleifð hans og venjum samtakanna. Franklin sonur hans var ræðumaður, Óskar Einarsson tónlistar- og söngstjóri, Helgi Guðnason túlkur, undirritaður framkvæmdastjóri og Ómar Kristjánsson formaður undirbúningsnefndar. Tengiliður okkar við BGEA var Hans Mannegren. 3.000 manns mættu hvort kvöldið. VÍÐTÆK ÁHRIF UM ALLAN HEIM Billy Graham var einn helsti hvatamaður þessað komaálaggirnarkristilegatímaritinu Christianity Today árið 1956. Hann hélt fjöl- menna ráðstefnu um boðunarstarf í Berlín árið 1966, sem trúlega var hvatinn að því að hann var einnig einn helsti frumkvöðull Lausanne-hreyfingarinnar sem fór af stað árið 1974 með það að markmiði að sameina evangelísk-kristna menn um víða veröld. Fær hreyfingin nafn sitt af borginni Lausanne í Sviss þar sem hún fór af stað með fjölmennri ráðstefnu. Önnur stór ráðstefna var haldin í Manila á Filippseyjum árið 1989 og sú þriðja í Höfðaborg árið 2010. Þess á milli og síðan hefur hreyfingin haldið ótal minni og sérhæfðari ráðstefnur um hin ýmsu málefni sem snerta trúna, kirkjuna og kristniboð, bæði svæðisbundnar og aðrar um ákveðin svið. Margir fögnuðu áherslu Lausanne-sáttmálans sem samþykktur var 1974. Unnu þeir Billy Graham og breski guðfræðingurinn John Stott að texta sáttmálans í sameiningu. Grunntónn Lausanne-hreyfingarinnar og sáttmálans er skilningur á mismunandi menníngarheimum, áhersla á félaglegt réttlæti samfara boðun trúarinnar á grundvelli sögulegs og biblíulegs kristindóms. SKEIÐINU LOKIÐ Árið 1992 tilkynnti Billy að hann hefði greinst með Parkinson-sjúkdóminn og tók þá að draga smám saman úr starfi sínu. Síðasta samkoman sem hann prédikaði á var í New York árið 2005. Hann talaði, eins og áður af myndugleika og sannfæringu. Talað var um að hann hefði enn einstakan hæfileika til að sannfæra áheyrendur um veruleika sem við sjáum ekki með augum okkar, með boðskap sem opnar leið náðar fyrir hvern sem er. Síðustu árin dró Billy sig í hlé frá opinberu lífi en hélt áfram að skrifa bækur til hvatningar og uppörvunar fram á síðustu ár. Billy Graham lifði löngu og ávaxtasömu lífi. Hann lést í febrúar á þessu ári, níu mánuðum fyrir aldarafmæli sitt. Hans verður minnst vegna þeirra gífurlegu áhrifa sem hann hafði á milljónir manna um víða veröld. Trúlega fyllir enginn skarðið enda fór saman maður, köllun og ákveðinn tími og aðferðir sem báru ríkulegan ávöxt. Verkið var þó ekki hans, heldur Guðs. „Ég hef ekki snúið nokkrum manni til Guðs," sagði hann þegar árið 1956, „aðeins Kristur getur breytt lífsstefnu mannsins." Og dag hvern bað hann: „Hjálpaðu mér, Drottinn!" Fyrir fimm árum kom út á íslensku bók Svisslendingsins Hanspeter Nuesch, Ruth og Billy Graham - hjón sem breyttu heiminum. Undirritaður hvetur lesendur Bjarma til að lesa hana. Margt gott má læra af Ruth og Billy Graham fyrir utan uppörvunina og hvatninguna sem bókin færir lesandanum.1 ’Grein þessi byggir á ýmsum heimildum, en meginstofninn ergrein eftir David Barnes: The Most Influential Evangelist of Our Timesem birtist í Premier Christianity, Apríl2018 og fleirí greinar og innskot I þvi blaði. Christianity Today helgaði eðlilega aprílútgáfu sína minningu Billys Graham með fjölda greina um hann. bjarmi | apríl 2018 | 39

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.