Bjarmi - 01.10.2018, Page 40
.'trú^r.ííreCsárahs nafni
iisiifirsr:
1 qm
f-etitíí* tm-f
Tímabíl
sköpimarvftrksíns
— virðing fyrir lífínu og verndun þess
GUNNÞOR Þ. INGASON
Vér treystum þvf, sem hönd Guðs hefur
skráð:
í hverju fræi, er var í kærleik sáð,
býr fyrirheit um himnaríki á jörðu.
Hver heilög bæn á vísa Drottins náð.
Og hví skal þá ei ógn og hatri hafna,
efhjálp og miskunn blasir öllum við
í trú, sem ein má þúsund þjóðum safna
til þjónustu við sannleik, ást og frið?
Tómas Guðmundsson
Þetta fagra sálmvers góðskáldsins
Tómasar Guðmundssonar, gefur vel til
kynna hve miklu varði að greina í trú
veruleika Guðs í sköpunarverki hans og
skynja samhengi jarðarlífs og komanda
Guðs ríkis, hafna illsku, ógn og hatri
og safna þjóðum heims í þjónustu við
sannleika hans, ást og frið. Tíðindi af
ógnvænlegum breytingum á loftslagi og
veðrakerfum jarðar, sem ekki verður lengur
mótmælt að stafi af hömlulausri brennslu
og notkun jarðefnaeldsneytis, ættu að
hvetja til samstöðu manna og þjóða um
nauðsynleg viðbrögð. Þar hefur kristin
kirkja miklu köllunarhlutverki að gegna og
þá auðvitað líka íslenska Þjóðkirkjan. Hún
sinnir því með því að vinna að framgangi
kristinna gilda og viðmiða bæði innanlands
en jafnframt líka í vfðara samhengi, og
einkum í gefandi samstarfi við kirkjur á
norðurslóðum og Alkirkjuráðið.
Á síðastliðnu ári efndi þjóðkirkja
íslands í fyrsta sinni til svonefnds „Tímabils
sköpunarverksins“, Season of Creation, í
kirkjunni að fyrirmynd kristinna kirkna og
kirkjudeilda víða um heim. Þetta tímabil,
sem hluti kirkjuársins, á uppruna sinn að
rekja til rétttrúnaðarkirkjunnar og nær frá
byrjun septembermánaðar fram tii
fyrstu daga októbermánaðar.
Þá er. í . boðskap
kirknanna, Guði sérstaklega þakkað fyrir
gjafir jarðar og uppskeru og gætt að hag
og framgangi lífs og lífríkis.
Þjóðkirkjan hefur nú efnt í annað sinni
til slíks tímabils sköpunarverksins og horfir
til þess að gera það að föstum lið í boðun
sinni og starfi. Sem táknmynd þess tók
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup íslands,
upp haustuppskeru í grenndargörðunum
Seljagarðs í Seljahverfi við fjölskyldustund
þann 6. september sl. og undirritaði síðan
áskorun um bann við notkun svartolíu
í Norðurhöfum. Biskup hefur hvatt
prestá.; og. söfnuði til að halda
uppskerúmessur og gefa góðan
gaum að Urohverfismálum,
standa að viðburðum og verkum til
umhverfisverndar, huga m.a. að endurheimt
votlendis og skógrækt á kirkjujörðum.
Kirkju- og safnaðarstarf um land allt hefur
enda borið margvísleg merki ,,tímabilsins“
og falið í sér gagnrýna ígrundun um
umhverfismálin brýnu og hvatningu
til siðbættra lífshátta. Umhverfisnefnd
Þjóðkirkjunnar kynnti í byrjun „tímabilsins"
vefinn; Græna kirkjan, og einnig bækling,
sem hún gefur út undir heitinu „Græni
söfnuðurinn okkar" og jafnframt sérstaka
„Handbók um umhverfismál“. Þar fá
söfnuðir landsins verkfæri og bent er á leiðir
til að vinna að umhverfisvernd í samræmi
við nýja og framsækna umhverfisstefnu
kirkjunnar sem samþykkt var á kirkjuþingi
2017.
Tímabil sköpunarverksins verður
nú lengt líkt og í fyrra langt fram í
októbermánuð. Því mun Ijúka með því, að
höfuðbiskupar evangelísku lútersku kirkna
Norðurlanda koma saman í boði Agnesar
M. Sigurðardóttur, biskups ísland, til
biskupafundaríhúsakynnumDómkirkjunnar
í Reykjavík laugardagsmorguninn 20. okt.
nk. - Antje Jackelén, erkibiskup Svíþjóðar,
Kari Makinen, erkibiskup Finna, Helga
Haugland Byfuglien, höfuðbiskup Noregs
og Jógvan Fríðriksson, Færeyjabiskup. -
Peter Skov Jakobsen, höfuðbiskup dönsku
Þjóðkirkjunnaráþvímiðurekkiheimangengt.
- Biskupamir munu ráða ráðum sínum
um viðbrögð við umhverfisháskanum og
hvernig kristnar kirkjur og trúarsamfélög
geti haft vekjandi áhrif til
umhverfisverndar og hvatt til
breytinga á framleiðslu- og
jif: lífsháttum til lífsbjargar.
Biskuparnir
. múfiú " jafn-
:■■■ ■ f ramt
sitja í pallborði á 6. Hringborði
Norðurslóða, Arctic Circle Assembly, í
ráðstefnu- og tónlistarmiðstöðinni, Hörpu,
sunnudaginn 21. okt. nk. Ögmundur
Jónasson, fyrrverandi alþingismaður
og innanríkisráðherra mun stýra
pallborðsumræðunum. Þess er vænst
að kanadíski frumbyggjabiskupinn,
Mark MacDonald, sem er forseti
Alkirkjuráðsins í Vesturheimi, muni taka
þátt í biskupafundinum og einnig fjalla
á Hringborðinu um lífsviðhorf og lífskjör
frumbyggja við umbreytt loftslag og
umhverfi.
Guðfræðistofnun, Guðfræði- og
trúarbragðadeild Háskóla íslands og
Stofnun Sigurbjörns Einarssonar efna
einnig til málstofu á Hringborðinu,
síðdegis laugardaginn 20. okt. Þar verður
fjallað um vonina á tímum afgerandi
loftslagsbreytinga á Norðurslóðum.
Auk þess sem biskuparnir munu,
sunnudaginn 21. okt., sitja í pallborði
við Hringborð Norðurslóða, sækja
þeir opinn fyrirlestur dr. Andrésar
Arnalds í Hallgrímskirkju sem hefst
kl. 09:30. Þeir munu síðan prédika í
guðsþjónustum, sem hefjast kl. 11, í
fimm kirkjum á höfuðborgarsvæðinu,
Hallgrímskirkju, Seltjarnarneskirkju,
Kópavogskirkju, Vídalínskirkju í Garðabæ
og Hafnarfjarðarkirkju. Guðsþjónustan
í Hallgrímskirkju verður samkirkjuleg og
mun biskup íslands leiða hana.
Dagskrá „tímabils sköpunarverksins"
felur með þessum atriðum í sér
rökrétt framhald á þeim merku
umhverfisverndarviðburðum sem
Þjóðkirkjan beitti sér fyrir á sama tíma árs
í fyrra. Þá stóð hún ásamt Alkirkjuráðinu,
World Council of Churches, að ráðstefnu
um um „Réttlátan frið við jörðu“ sem
haldin var í Digraneskirkju og á Þingvöllum.
Ráðstefna Alkirkjuráðsins tengdist
sem aðfararatburður Hrin-
gborði Norðurslóða,
.... ArcííC Circle
Assembly '17, sem haldið var í Hörpu
og einnig víðar. Ráðstefnan var merkis
kirkjusögulegur viðburður hér á landi.
Af þessu tilefni kom höfuðsmaður
rétttrúnaðarkirkjunnar, Bartólómeos I.
patríarki og erkibiskup í Konstantínópel,
Græni patríarkinn svonefndi, vegna
eindreginnar afstöðu sinnar til
umhverfisverndar, í opinbera heimsókn til
landsins í boði Þjóðkirkjunnar, ríkisstjórnar
og Hringborðsins ásamt fimm öðrum
háttsettum forystumönnum kirkju sinnar.
Patríarkinn flutti innihaldsríka lykilræðu, á
Hringborðinu í þéttsetnu Silfurbergi Hörpu.
Alkirkjuráðið stóð að tveimur málstofum á
Hringborðinu, sem fóru fram í Safnahúsinu
á Hverfisgötu. Fyrri málstofan fjallaði um
trúarviðhorf frumbyggja sem gjöf til að
umbreyta heimi. Síðara málþingið hafði
að yfirskrift sinni: „Loftslagsréttlæti og
þá siðferðilegu nauðsyn að bregðast við
vandanum. Trúarleiðtogar í samræðu við
vísinda- og ráðamenn.“
Ráðstefna Alkirkjuráðsins hér
á landi í fyrra um „Réttlátan frið við
jörðu" náði glæstu hámarki sínu á
Þingvöllum. í helgistund á Lögbergi var
ályktun ráðstefnunnar samþykkt eftir
að ráðstefnufulltrúar höfðu skipst á að
lesa upp kafla hennar. Frá Lögbergi var
haldið í Þingvallakirkju til að undirrita
ályktunina, Agnes, biskup og Anders
Wejryd Evrópuforseti Alkirkjuráðsins og
fyrrverandi erkibiskup Svía fyrst og síðar
aðrir þátttakendur. Ályktunin er innihaldsrík
og gefur vel til kynna þau stefnumið sem
mörkuð voru og horft var til á ráðstefnu
Alkirkjuráðsins. Dagskráratriði og
viðburðir - sem Þjóðkirkjan vinnur að og
skipuleggur á „tímabili sköpunarverksins"
á þessu minningarári um fullveldi íslenskrar
þjóðar, 2018 - taka mið af ályktuninni.
Farsæld þjóða og heims felst enda í því að
huga og vinna að réttlæti og friði manna
á meðal og við lífssköpun alla. Köllun
kristinnar kirkju er sú.að gera það í kjarki
og kærleika skapandi.æg endurleysandi