Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Síða 43

Bjarmi - 01.10.2018, Síða 43
þróun og „loftslagsréttlæti" bæði á alþjóðavettvangi og í einstökum löndum. Horft er nú til þess að hagnýta umbreytandi kraft trúarinnar til þess að stuðla að þeim félagslegu, efnahagslegu, menningarlegu og atferlisbundnu umskiptum sem sem þörf er á til að bregðast við ógnum loftslagsbreytinga og gera sjálfbærni að raunsönnum veruleika. Við hvetjum kirkjur til að nýta sér sitt eigið tungutak, ekta biblíumál og kirkjuhefðir til að auka umhverfisvitund, hvetja til aðgerða og auka sjálfbærni í kirkju og samfélagi. Við hvetjum kirkjur til virkrar þátttöku við að koma á og efla sjálfbæra lífshætti á öllum sviðum, á þjóðfélagsvísu og eins í hverjum söfnuði. Og við fögnum því að kirkjur og kirkjulegar stofnanir ákveði að beina fjárfestingum sínum frá óvistvænum og ósjálfbærum iðnaði. Sé horft til þess, hvað samtök okkar kristinna manna eru víðtæk innan þjóðlanda og á heimsvísu, felast fjölmörg tækifæri í nettengslum okkar og samskiptum við samskiptaaðila innan annarra trúarbragða. Við ættum að nýta allar tiltækar leiðir, þar á meðal samskiptagetu okkar bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, til að virkja þessa kosti. Við þurfum einnig að hagnýta og fylgja þeim farvegum og skuldbindingum sem samið hefur verið um á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og glæða vilja stjórnmálamanna til að virða og standa við þær skuldbindingar er gerðar hafa verið. Þar má nefna, Aðgerðaáætlunina 2030 (Agenda 2030), og Markmið um sjálfbæra þróun, og einnig Parísarsáttmálann um loftslagsbreytingar. Með því móti fá rödd og sjónarmið trúar og siðferðis haft sín áhrif á framþróunina. Enn meiru varðar að trúin sýni sig í því að andmæla rótgrónu siðleysi þeirra lífshátta og hagkerfa sem byggjast á yfirtöku og eigingjarnri misþyrmingu á náttúru og fólki, og skeytingarleysi gagnvart því ranglæti sem af hiýst og umhverfisspjöllum. Við minnum jafnframt á þau órjúfanlegu tengsl sem liggja milli friðar við jörðu og friðar á jörðu og höfnum brjálæði síaukinnar eyðslu til hergagnaframleiðslu og viðvarandi tiltrú á kjarnavopnum. Við fögnum sáttmálanum um bann við kjarnavopnum og teljum hann vera mikilvægt framlag til að vernda umhverfi, mannlegt líf og samfélög. LÆRDÓMSRÍK LÍFSVIÐHORF FRUMBYGGJA Frumbyggjar þurfa að taki þátt í öllu samráðsferlinu vegna loftslags- breytinganna. Frumbyggjar valda ekki vandanum en kunna fremur ráð við honum, sem framverðir móður jarðar og gervallrar sköpunar í allra þágu. Frumbyggjar búa að reynslu, visku og frásögnum sem geta gagnast vel til viðbragða við loftslagsbreytingum. Við höfnum þöglu samþykki við því að líf sumra manna tapist, heimili, lönd og lífshættir og þ.a.l. glatist veruhættir og sjálfsmyndir, jafnframt því sem einhverjir aðrir hagnist á loftslagsbreytingunum. Ekki er hægt að fallast á að fólk flytjist nauðugt frá (norðuþpólsvæðum og eyjaheimkynnum og týni sjálfsmynd sinni. Loftslagsbreytingar valda tjóni og eyðileggingu sem ekki verður reiknuð í hagtölum en hefur mikil áhrif á líf frumbyggja og veldur þeim áhyggjum. f allri umræðu um ákvarðanir í loftslagsmálum ber að taka tillit til slíkra áhrifa á líf frumbyggja. Við hvetjum til þess að viska frumbyggja sé virt enda búi þeir að fornri og djúpstæðri þekkingargeymd á umhverfi sínu sem er heimkynni forfeðra þeirra. Slík lífsviðhorf og viska miða að þeirri farsæld allrar lífssköpunar, sem bæði jörð og alheimur hafa ætlað komandi kynslóðum. Við viljum ásamt öðrum hagsmunaaðilum útbreiða samþykki og virðingu fyrir og innleiðingu sáttmála og samkomulags og annarra uppbyggilegra þátta sem eindregið stuðli að því, að konur, ungmenni, frumbyggjar og allir þjóðflokkar geti átt sér framtíð. Yfirlýsing Sameinuðu bjarmi | apríl 2018 | 43

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.