Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 42
Hjúkrunarfræðingar
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa
við Meltingarsetrið sem fyrst. Starfið felst í aðstoð
við meltingarfæraspeglanir. Tölvukunnátta æskileg.
Starfshlutfall 20-70%.
Góður starfsandi og skemmtilegur vinnustaður.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda til Meltingarsetursins
Þönglabakka 6, 109 Reykjavík eða á netfangið:
meltingarsetrid@gmail.com
Álftanesskóli
• Umsjónarkennari
Garðaskóli
• Deildarstjóri
• Íslenskukennari
• Kennari í hönnun og smíði
• Kennari til að stýra starfi í
upplýsingaveri
• Náttúrufræðikennari
• Samfélagsgreinakennari
• Sérkennari
• Stærðfræðikennari
Hofsstaðaskóli
• Umsjónarkennari
Sjálandsskóli
• Íslenskukennari
• Þroskaþjálfi
Leikskólinn Akrar
• Leiðbeinandi
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Mánahvoll
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Bókasafn Garðabæjar í Urriðaholti
• Útibússtjóri
Móaflöt - skammtímavistun fyrir fötluð
börn og ungmenni
• Sumarstarfsmaður
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
LEIKSKÓLASTJÓRI ÓSKAST
Á LEIKSKÓLANN AKRA
Í GARÐABÆ
gardabaer.is
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf leikskólastjóra við leikskólann Akra í Garðabæ. Í
leikskólanum dvelja allt að 89 börn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Leikskólinn er fjögra deilda og vinnur
samkvæmt áherslum Uppeldis til ábyrgðar (e: restitution) þar sem lögð er áhersla á jákvæð
samskipti, uppbyggilega orðræðu og ábyrgð einstaklingsins á eigin hegðun. Leikskólinn hefur
verið framsækinn í fjölbreyttum þróunarverkefnum. Einkunnarorð leikskólans eru Virkni og
Vellíðan.
Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við
nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli
hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.
Leitað er að leikskólastjóra til að leiða skólastarfið í samvinnu við starfsfólk, foreldra og börn.
Leikskólastjóri tekur einnig þátt í að móta skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og
framsýnum hætti í samvinnu við fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar.
Helstu verkefni:
• Vera faglegur leiðtogi
• Bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans, stjórna daglegri starfsemi hans og
hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu leikskólans
• Vinna náið með starfsfólki að því að skapa frjótt námsumhverfi þar sem vellíðan er tryggð og
styrkleikar hvers og eins fá notið sín
Menntunar og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf
• Góðir skipulagshæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Sveigjanleiki og framsýni
• Hæfni í samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2022. Staðan er laus frá 1. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar um starfið veita Halldóra Pétursdóttir leikskólafulltrúi, netfang
halldorapet@gardabaer.is eða í síma 5258500 og Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður
fræðslu- og menningarsviðs, netfang eirikurbjorn@gardabaer.is eða í síma 5258500.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda
í leikskólum.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda og menntun ásamt reynslu
hans sem stjórnanda og þeim verkefnum sem hann hefur unnið að og lýsa færni hans til að sinna
starfi leikskólastjóra. Umsækjandi þarf einnig að skila greinargerð með hugmyndum sínum um
starfið og hvernig hann sér Akra þróast í skólasamfélagi Garðabæjar undir sinni stjórn.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 19. mars 2022 LAUGARDAGUR