Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 28
fyrir miðnætti, og enginn mátti vita af fundinum.“ Átti að fara á fund með Pútín „Eitt sinn átti ég að fara á fund með Pútín. Allir yfirmenn á netmiðlum voru boðaðir á hringborðsfund hjá Pútín. Forstjórinn okkar var staddur í Englandi þannig að ég átti að hlaupa í skarðið, en ég tala ekki mikla rússnesku en hefði auðvitað geta farið með túlk. En um leið og annar eigandi fyrirtækisins sem er óligarki frétti af þessu þá sagði hann: „Steingrímur minn, ég skal fara fyrir þig,“ því hann vildi auð- vitað sjálfur hitta Pútín. Þannig að ég varð fyrir svolitlum von- brigðum, því auðvitað er Pútín söguleg persóna og þetta er gríðar- lega íburðarmikið í Kreml og það hefði verið gaman að fá að sjá það enn betur með eigin augum.“ Ég veit greinilega of mikið „Þegar ég hætti hjá fyrirtækinu í Moskvu, þá var það svolítið óþægi- legt. Það var í kringum Krímmálið og þessa bardaga í Donbass og víðar. Ég fór að átta mig á því að ástæðan fyrir því að það voru teknir þarna inn tveir vestrænir menn til að stjórna fjölmiðli var ekki endilega sú að við værum svona of boðs- lega klárir. En við vorum svolítið ósnertanlegir af því að við vorum Vesturlandabúar og það hentaði eig- endunum alveg örugglega. Það var ekki hægt að hræða fjölskyldu mína í Rússlandi eða höfða til ættjarðar- ástarinnar. Við hugsuðum bara um að vera faglegir og reka þetta fyrir- tæki eins og hvert annað. Ég var nokkuð viss um að yfir- völd vildu losna við mig þegar öryggisstjóri fyrirtækisins kom til mín og sagði að það væri hótun yfirvofandi um að ráðist yrði á höfuðstöðvarnar okkar og það þyrfti að gæta mín sérstaklega. Öryggislögreglan mætti á staðinn með vélbyssur og fór að spyrja alla um vegabréf sem fóru nálægt bygg- ingunni og það varð f ljótt mjög óþægilegt andrúmsloft. Ég samdi um að færa mig til Lond- on og halda vinnunni áfram þaðan. Ég var látinn skrifa undir trúnaðar- samning og nokkuð sem ég hafði aldrei séð áður – tvo samninga, fyrst trúnaðarsamning og síðan samning um tilvist trúnaðarsamningsins. Þá hugsaði ég: „Ég veit greinilega of mikið.“ Þessi trúnaðarsamningur rann út fyrir nokkrum árum og nú er mér frjálst að segja frá dvöl minni þarna.“ Duran Duran sessunautar Steingrímur segir brottför sína frá Rússlandi hafa verið ansi drama- tíska. „Það var verið að loka fyrir allt millilandaflug vegna hættuástands- ins í Úkraínu og ég náði síðasta áætl- unarfluginu með British Airways til London haustið 2014. Þurfti að kaupa rándýran miða á fyrsta far- rými því hinir voru uppseldir. Mér fannst ég eiginlega vera staddur í bíómynd og var viss um að ég kæm- ist ekki úr landi. Og til að kóróna allt saman þá sitja þar hljómsveitar- meðlimir Duran Duran, æsku-idol- in mín, inni í biðsalnum fyrir fyrsta farrými. Þeir höfðu verið að spila í einhverju einkasamkvæmi. Þetta var svo skrýtið, mjög dramatískur endir á þessu tímabili.“ Vænisýki í Kreml Talið berst aftur að Pútín og því sem er að gerast í dag. „Pútín er í erfiðri stöðu. Stríðið hefur tekið lengri tíma en hann bjóst við. Í ljós kemur að herinn er illa búinn, með úrelt vopn, úreltan mat og er að senda 17 ára krakka á vígvöllinn. Það er farin að hreiðra um sig svo- lítil vænisýki í Kreml. Fyrir skömmu var handtekinn yfirmaður heillar deildar í leyniþjónustunni og undir- maður hans sömuleiðis, sem er sú deild sem sér um leyniþjónustustörf í Úkraínu. Þeir voru settir í stofu- fangelsi. Og mér finnst þetta vera til marks um vænisýki og að Pútín sé farinn að kenna mönnum um.“ Hvað með fjölskylduhagi Pútíns? „Hann er fráskilinn og hefur nærri alltaf haldið fjölskyldu sinni frá sviðsljósinu. Börnin hans búa einhvers staðar í leyni, en þau hafa búið undir öðru nafni í Hollandi og víðar. Ein dóttir hans, sem er víst laundóttir hans og sú yngsta, lítur út alveg eins og Pútín. Sú var að loka Instagram-reikningnum sínum. Þannig að það er verið að draga úr allri áhættu og koma fólki í öruggt skjól.“ Talið berst að auði þeim sem Pútín hefur sankað að sér í krafti valds síns. „Hann er nú minnst skrifaður fyrir þessu persónulega og þetta er allt í höndum viðskipta- og vildarvina hans. Það er ansi erf- itt núna þegar það er búið að loka svissneskum bankareikningum þeirra og gera einkaf lugvélar og snekkjur upptækar. Þá er verið að gera Pútín lífið erfiðara í leiðinni.“ Óligarkarnir eru líka á Íslandi „Við þekkjum eitt land þar sem auðlindir þjóðarinnar hafa ratað á fárra hendur, þar sem menn hafa auðgast umfram aðra, og það er nú bara okkar eigið Ísland. En það hefur blessunarlega ekki verið jafn ofbeldisfullt ferli og í Rússlandi.“ Þannig að þú segir að það séu ólig- arkar á Íslandi? „Við búum í litlu landi og þekkj- um öll forsöguna, núna sérstaklega eftir sjónvarpsþættina Verbúðina og allt það. Auðvitað finnst fólki þetta ósanngjarnt. En auðvitað er líka í þessum bransa fullt af f lottu rekstrarfólki sem veitir fullt af fólki atvinnu, það má ekki gleyma því. En auðsöfnunin og samþjöppunin gengur fram af f lestu skynsömu fólki. En talandi um óligarkisma, ég held að við Íslendingar vitum alveg sjálf að við myndum ekki vilja gefa frá okkur heita vatnið eða raf- magnið til Evrópu eða fjögurra fjöl- skyldna.“ Sögusagnir um veikindi Pútíns „Það komu upp sögusagnir um það fyrir tveimur árum að hann væri með krabbamein í meltingarfærum og væri á ónæmisbælandi lyfjum og sterum sem skýri þessar andlits- bólgur. Hann hefur haldið sig í Sotsjí síðastliðin tvö ár, en það voru upp- lýsingar sem komu frá bandarísku leyniþjónustunni. Sotsjí er bærinn þar sem Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir og þar er betra lofts- lag en í Moskvu. En hann hefur verið mjög mikið frá Moskvu og frá stjórnkerfinu síðastliðin tvö ár og haldið sér til hlés. Það er staðfest af f leiri en einum að hann krefjist þess að þeir sem ætla að hitta hann fari í sóttkví áður. Þið sjáið þessi löngu borð sem hann notar og fjarlægðina milli hans og annarra.“ Villidýrið sem bítur og klórar „Ég held að Pútín sé búinn missa tengslin við raunveruleikann af því að hann er með svo mikið af já- fólki í kringum sig. Honum dettur einhver vitleysa í hug, að fara inn í Úkraínu og stækka Rússland, kannski áður en hann deyr, svona „legacy“ mál, og allir segja: „Góð hugmynd, gerum þetta!“ Hitler var eins, hefði einhver þorað að mót- mæla honum?“ Óligarkarnir eru óánægðir með meðferðina á sér á Vesturlöndum? „Já, þeir eru farnir að kvarta. Ég veit ekki hversu lengi þetta ofurefn- aða fólk þolir það að láta læsa einka- þoturnar sínar inni og að greiðslu- kortin virki ekki. Ein snekkjan, þessi silfurlita sem lónaði hér í Kollafirði og víðar um land síðasta sumar, var tekin traustataki af Ítöl- um fyrir nokkrum dögum. Þannig að pressan er gríðarleg og vaxandi.“ Aðspurður um hættuna á að Rússar beiti kjarnavopnum segist Steingrímur efast um það. „Þetta er of nálægt líka, það væri ópraktískt, geislavirknin, hún dreifist með vindinum. En hvað veit maður þegar búið er að króa villidýrið af í horninu, það bítur og klórar. Pútín verður að eiga leið út, það verður að semja.“ Átti erfitt með svefn „Nú starfa ég hjá Dicino Medical Technologies sem er íslenskt hug- búnaðarfyrirtæki í heilbrigðisgeir- anum en við erum með starfsfólk í Kænugarði. Ég er einn af stofnend- um og gegni stöðu framkvæmda- stjóra vöruþróunar hjá Dicino. Við notum gervigreind til að létta á heil- brigðiskerfinu og erum korter frá því að klára nýja vöru sem er meðal annars þróuð að hluta í Úkraínu. Það er því ekkert skrýtið að við séum uggandi yfir stöðunni. Ég svaf ekki fyrstu næturnar þegar þetta var að byrja og var bara límdur við sjónvarpið og að reyna að ná sambandi við mitt fólk og hafði áhyggjur af því.“ Steingrímur hefur hingað til ekki viljað segja söguna um Rússlands- dvölina opinberlega, ætli hann hafi verið hræddur? „Nei, ég var það ekki nema kannski rétt fyrst. En nú ég er svo ósáttur við framgöngu herliðs Pút- íns í Úkraínu að mér finnst ég verða að segja hvernig þetta var. Þessi Úkraínumál eru algerlega óboðleg og alger vitleysa.“ Pútín er farinn að gera mistök „Pútín lítur á sig sem Rússakeisara. Hann er með svipaða lífverði og frá keisaratímanum í gylltum klæðum og það er ímynd sem hefur orðið til smátt og smátt. Hann var miklu óör- uggari, en síðan hefur hann fengið meira og meira vald, komist upp með flest og hann verður einhvers konar guð, þú getur látið drepa óvini þína, býrð í kastala, ég held að hann sé einmitt kominn upp fyrir þau mörk núna að hann fer að gera mistök – færast of mikið í fang.“ n Steingrímur Árnason með tveimur af þremur dætrum á heimili sínu. Steingrímur Árnason hefur aldrei sagt sögu sína fyrr opinberlega af kynnum sínum af Pútín og hans mönnum og hvernig þeir beittu valdi meðal annars til að hefta frelsi fjölmiðla í Rússlandi. MYND/DMITRIY OLEYNICHENKO En hvað veit maður þegar búið er að króa villidýrið af í horninu, það bítur og klórar. Pútín verður að eiga leið út, það verður að semja.  28 Helgin 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.