Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 45
Viltu taka þátt í mótun
orkuumhverfis á Íslandi?
Orkustofnun auglýsir ný störf sem munu gegna lykilhlutverki í mótun umgjarðar orkumála í takt
við kröfur samtímans þar sem áhersla er lögð á orkuskipti, nýsköpun og loftslagsmál.
Tilgangur starfsins er að greina rekstar forsendur fyrirtækja á raforkumarkaði
og hafa eftirlit með rekstri dreifiveitna og flutningsfyrirtækis raforku. Meðal
annars að tryggja fylgni við raforkulög, hafa eftirlit með tekjumörkum og rekstri
og ákvarða tekju mörk og eftirlit með gjaldskrám raforkufyrirtækja.
Við leitum að öflugum greinanda með mikla færni í hagnýtingu gagnasafna,
færni til að greina og miðla gögnum á skýran og faglegan máta og brennandi
áhuga á þróun orkumála.
Tilgangur starfsins er að taka þátt í að móta umgjörð vindorkumála á Íslandi til
framtíðar og stuðla að uppbyggingu þekkingar á sviðinu.
Við leitum að framsýnum sérfræðingi með þekkingu og reynslu á sviði vindorku
og brennandi áhuga á orku- og umhverfis málum og sjálfbærri auðlindanýtingu í
víðu samhengi.
Tilgangur starfsins er að nútíma- og sjálfvirkni væða gagnamál Orkustofnunar í því
skyni að setja fram hagnýtar upplýsingar og greiningar sem nýtast til ákvarðanatöku
og bæta upplýsingagjöf til sérfræðinga, stjórnvalda og almennings.
Við leitum að kraftmiklum umbreytingaleiðtoga með þekkingu á uppbyggingu og
hagnýtingu gagnagrunna og greiningartóla, hæfni til að setja fram gögn á skýran,
faglegan og gagnvirkan máta og brennandi áhuga á á greiningu, nýtingu og
framsetningu gagna.
Tilgangur starfsins er gagnasöfnun, þróun mæla borðs orkumála og vinna tengd
orkuspám og rekstrar hermunum raforkukerfisins.
Við leitum að öflugum greinanda með mikla færni í hagnýtingu gagnasafna, færni
til að greina og miðla gögnum á skýran og faglegan máta og brennandi áhuga á
þróun orkumála.
Tilgangur starfsins er að halda utanum starfsemi Orkuseturs Orkustofnunar,
vinna að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orku notkun
og möguleika til orkusparnaðar og styðja við verkefni tengd orkuskiptum,
loftslags málum og nýsköpun. Starfsstöð verkefnastjóra Orkuseturs Orkustof-
nunar er á Akureyri.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á loftslagsmálum, orkumálum
og orkuskiptum, og reynslu í að leiða verkefni og virkja ólíka aðila til
samstarfs.
os.is
Nánari upplýsingar um störfin veita:
Ólafur Dan Snorrason, mannauðsstjóri olafur.dan.snorrason@os.is
Anna Lilja Oddsdóttir, sérfræðingur anna.lilja.oddsdottir@os.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt bréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga
og hæfni í starfi út frá hæfnikröfum auglýsingar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag. Um er að ræða fullt starfshlutfall.
Starf verkefnastjóra Orkuseturs Orkustofnunar er með starfsstöð á Akureyri, önnur
auglýst störf eru með starfsstöð í Reykjavík, nema um annað sé samið.
Umsóknir eru gildar í sex mánuði frá birtingu þessarar auglýsingar innan stofn unar-
innar og umsóknir gilda í öll störf þessarar auglýsingar. Orkustofnun stefnir að því
að halda jöfnu kynjahlutfalli í starfsliði sínu. Öllum umsóknum verður svarað eftir
að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Orkustofnun starfar í þágu samfélagsins og í takt við orkustefnu Íslands. Hlutverk
hennar er að skapa skýra umgjörð um orkumál, stuðla að nýsköpun og upplýstri
umræðu og að veita stjórnvöldum faglega ráðgjöf í þágu almannaheilla.
Stefna Orkustofnunar er að byggja upp þekkingu á fagsviðum stofnunarinnar
svo sem á sviðum orkuvinnslu, orkunýtingar og loftslagsmála, stunda skilvirka
og gagnsæja stjórnsýslu, sem og sjálfstætt vandað eftirlit. Orkustofnun leggur
áherslu á að vera framsýn, traust og skilvirk.
Umsóknum skal skilað í gegnum 50skills.
Umsóknafrestur er til og með 28.mars 2022
Þróunarstjóri gagna
Sérfræðingur í greiningu orkumarkaðar Verkefnastjóri Orkuseturs Orkustofnunar
Sérfræðingur á sviði vindorku og sjálfbærrar auðlindanýtingar
Sérfræðingur á sviði raforku rekstrar og hagræns eftirlits