Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 47
442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Skatturinn leitar að öflugum og lausnamiðuðum lögfræðingi til starfa á skrifstofu ríkisskattstjóra í verkefni tengd persónuverndarmálum. Skrifstofa ríkisskattstjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir starfsemi Skattsins og viðfangsefni sviðsins eru margvísleg ráðgjöf, umsjón og samræming ýmissa málaflokka sem snerta stofnunina í heild. Má þar nefna stefnumótun og kynningarmál, samskipti við fjölmiðla, erlenda samstarfsaðila, Alþingi, undirstofnanir þess og Stjórnarráðið auk persónuverndarmála, fjölbreytilegra lögfræðiverkefna, tölfræði- og hagfræðigreininga. Skrifstofa ríkisskattstjóra er staðsett á starfsstöð Skattsins á Laugavegi 166, Reykjavík. Helstu verkefni: • Umsjón með ráðstöfunum vegna gildandi persónuverndarlöggjafar, rýni og eftirfylgni á framkvæmdar ráðstafanir. • Úrlausn álitaefna í persónuverndarmálum. • Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla um persónuvernd fyrir stjórnendur og starfsmenn. • Gerð og viðhald persónuverndarstefnu, leiðbeininga, verkferla og verklagsreglna. • Umsjón með viðhaldi vinnsluskrár Skattsins. • Aðkoma að gerð og rýni vinnslusamninga og mats á áhrifum á persónuvernd. • Samskipti við viðskiptavini og stjórnvöld og þátttaka í alþjóðlegu samstarfi. • Tengiliður við persónuverndarfulltrúa Skattsins. • Önnur tengd verkefni á málefnasviði skrifstofu ríkisskattstjóra. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði lögfræði, meistaragráða æskileg (lágmarksmenntun er bakkalárgráða). • Þekking og/eða reynsla af sviði persónuverndarréttar. • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg. • Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslurétti og upplýsingarétti er kostur. • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli er kostur. • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Frumkvæði, metnaður og geta til að fylgja málum eftir. • Fáguð framkoma, lipurð og færni í mannlegum samskiptum. • Þjónustulund og jákvætt viðmót. • Geta til að vinna undir álagi. • Góð almenn tölvukunnátta. • Hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Valborg Steinarsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu ríkisskattstjóra, í síma 442-1000 eða í tölvupósti á netfangið helga.v.steinarsdottir@skatturinn.is Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%. Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna. Lögfræðingur með þekkingu á persónuverndarrétti Erum við að leita að þér? Grunnskóli Seltjarnarness Unglingastig Dönskukennari, fullt starf Stærðfræðikennari, fullt starf Íslenskukennari, fullt starf Yngsta og miðstig Námsráðgjafi, fullt starf Umsjónakennarar Upplýsingar um störf í Grunnskóla Seltjarnarness veitir Ólína Thoroddsen skólastjóri olina.thoroddsen@seltjarnarnes.is í síma 5959-200. Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir www.seltjarnarnes.is – Störf í boði Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2022. Ráðið verður í stöðuna frá 2. ágúst 2022. Vakin er athygli á að starfið hentar öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands. Seltjarnarnesbær Laus störf seltjarnarnes.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.