Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 47
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Skatturinn leitar að öflugum og lausnamiðuðum lögfræðingi til starfa á skrifstofu
ríkisskattstjóra í verkefni tengd persónuverndarmálum. Skrifstofa ríkisskattstjóra
hefur miðlæga yfirsýn yfir starfsemi Skattsins og viðfangsefni sviðsins eru margvísleg
ráðgjöf, umsjón og samræming ýmissa málaflokka sem snerta stofnunina í heild. Má þar
nefna stefnumótun og kynningarmál, samskipti við fjölmiðla, erlenda samstarfsaðila,
Alþingi, undirstofnanir þess og Stjórnarráðið auk persónuverndarmála, fjölbreytilegra
lögfræðiverkefna, tölfræði- og hagfræðigreininga. Skrifstofa ríkisskattstjóra er staðsett
á starfsstöð Skattsins á Laugavegi 166, Reykjavík.
Helstu verkefni:
• Umsjón með ráðstöfunum vegna gildandi persónuverndarlöggjafar, rýni og
eftirfylgni á framkvæmdar ráðstafanir.
• Úrlausn álitaefna í persónuverndarmálum.
• Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla um persónuvernd fyrir stjórnendur og starfsmenn.
• Gerð og viðhald persónuverndarstefnu, leiðbeininga, verkferla og verklagsreglna.
• Umsjón með viðhaldi vinnsluskrár Skattsins.
• Aðkoma að gerð og rýni vinnslusamninga og mats á áhrifum á persónuvernd.
• Samskipti við viðskiptavini og stjórnvöld og þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
• Tengiliður við persónuverndarfulltrúa Skattsins.
• Önnur tengd verkefni á málefnasviði skrifstofu ríkisskattstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, meistaragráða æskileg
(lágmarksmenntun er bakkalárgráða).
• Þekking og/eða reynsla af sviði persónuverndarréttar.
• Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslurétti og upplýsingarétti er kostur.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, kunnátta í
a.m.k. einu Norðurlandamáli er kostur.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði, metnaður og geta til að fylgja málum eftir.
• Fáguð framkoma, lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
• Þjónustulund og jákvætt viðmót.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Valborg Steinarsdóttir, skrifstofustjóri
á skrifstofu ríkisskattstjóra, í síma 442-1000 eða í tölvupósti á netfangið
helga.v.steinarsdottir@skatturinn.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs,
starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um
menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn
teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu
sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Lögfræðingur með þekkingu
á persónuverndarrétti
Erum við
að leita
að þér?
Grunnskóli Seltjarnarness
Unglingastig
Dönskukennari, fullt starf
Stærðfræðikennari, fullt starf
Íslenskukennari, fullt starf
Yngsta og miðstig
Námsráðgjafi, fullt starf
Umsjónakennarar
Upplýsingar um störf í Grunnskóla Seltjarnarness
veitir Ólína Thoroddsen skólastjóri
olina.thoroddsen@seltjarnarnes.is í síma 5959-200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á
Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
undir www.seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2022.
Ráðið verður í stöðuna frá 2. ágúst 2022.
Vakin er athygli á að starfið hentar öllum kynjum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Seltjarnarnesbær
Laus störf
seltjarnarnes.is