Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 48
Lausar stöður / Available positions
Deildarstjóri á veitingastað / Rooftop Manager
Stjórnandi í söludeild / Sales Manager Transient
Stjórnandi í veitingahluta söludeildar / Catering Sales Manager
Forstöðumaður veitinga og viðburðadeildar / Director of Catering
Stjórnandi í bókunardeild / Reservation Manager
Öryggisstjóri / Security Manager
Þjónn / Server
Um The Reykjavik EDITION
The Reykjavík EDITION er einstök blanda af lífstíls og lúxushóteli sem býður upp á það
besta þegar kemur að veitingastöðum, afþreyingu, þjónustu og þægindum. Hótelið er
hluti af Marriott International hótelkeðjunni sem rekur 8000 hótel um allan heim sem
starfsmenn njóta fríðinda á. Um er að ræða alþjóðlegt starfsumhverfi þar sem áhersla er
lögð á faglegar ráðningar, heimsklassa þjálfun og tækifæri til starfsþróunar á
alþjóðavísu. Við tökum vel á móti þér.
Sjá fleiri stöður og atvinnutækifæri á Alfred.is / please find job posts on alfred.is
Nánari upplýsingar á / further information: careers.rek@editionhotels.com
PERSÓNUVERND ÓSKAR EFTIR
VEF- OG ÚTGÁFUSTJÓRA
Persónuvernd leitar að drífandi og kraftmiklum einstaklingi til að sjá um vefsíðu stofnunarinnar á starfsstöð
hennar á Húsavík. Leitað er að framúrskarandi einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni
með samhentu teymi hjá Persónuvernd.
Verkefni Persónuverndar eru fjölbreytt og ná til allra geira samfélagsins – og varða oft grundvallaratriði
í íslensku samfélagi. Mikið er lagt upp úr frumkvæði, öguðum vinnubrögðum, margvíslegri þekkingu,
samskiptahæfni og fagmennsku.
Um 100% starf er að ræða á starfstöð Persónuverndar á Húsavík. Ráðið verður í starfið frá 1. maí 2022
eða samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið til 12 mánaða. Um er að ræða tilraunaverkefni sem
vonast er til að framhald verði á.
Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald sem annast eftirlit með framkvæmd laga nr. 90/2018 um persónuvernd
og vinnslu persónuupplýsinga, laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglna
settra samkvæmt þeim. Persónuvernd er fjölskylduvænn vinnustaður.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2022. Umsóknir skulu berast á netfangið postur@personuvernd.is. Með
umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og
hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkisins við viðkomandi
stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri hjá Persónuvernd, í síma 510-9600.
Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá móttöku þeirra, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
HELSTU VERKEFNI:
• Ritstjórn og framsetning efnis á ytri vef
Persónuverndar, á íslensku og ensku
• Ábyrgð á skipulagi vefsins, viðhaldi hans og þróun
• Framkvæmd vefstefnu Persónuverndar
• Þróun og umsjón innri vefs fyrir Persónuvernd
• Ritstjórn, uppsetning og myndvinnsla fyrir vefræna
og prentaða útgáfu, m.a. ársskýrslu
• Yfirlestur á lögfræðilegu efni fyrir vefútgáfu
• Önnur verkefni tengd útgáfu eða vefsíðu sem
yfirmaður felur starfsmanni
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mjög gott vald á íslensku og ensku skilyrði
• Þekking á Norðurlandamáli er kostur
• Reynsla af vefþróun er kostur
• Reynsla af notkun vefumsjónarkerfa er kostur
• Þekking og reynsla af vefmælingum er kostur
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnubrögðum
er skilyrði
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum
samskiptum er skilyrði
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.