Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 29
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 19. mars 2022
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is
Guðjón Gunnarsson og Gunnar Guðmundsson eru eigendur Tarandus ásamt tveimur öðrum. Þeir flytja inn Crawler hjólhýsi, pallhús, topptjöld og ýmsar fleiri vörur.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fullbúin Crawler hjólhýsi sem
henta í fjalla- og hálendisferðir
Loksins eru fáanleg hér á landi hjól- og pallhýsi fyrir fjallagarpa og hálendisfara sem vilja
hafa öll þægindi með í för á ferðalögum um Ísland allt árið um kring. Fyrirtækið Tarandus
ehf. verður með opið hús um helgina þar sem sýnd verða Crawler hýsi. 2
Í kvöld verður sannkallað partí á
Gauknum.
sandragudrun@frettabladid.is
Eftir ládeyðu undanfarinna ára er
loks að færast líf aftur í skemmt-
analífið. Í kvöld geta metal- og
karókí-aðdáendur glaðst því þá
verður haldið alvöru metal-karókí-
partí á Gauknum í samstarfi við
Eistnaflug. Gestir geta sungið
uppáhaldsþungarokkslögin sín
við undirspil hljómsveitarinnar
Alcoholia, en sagt er að það sé eitt
fremsta ábreiðuband landsins með
aðeins eitt markmið, að skemmta
sér ógeðslega vel. Alcoholia hefur
áður verið með partí á Gauknum
og sögur segja að stemningin hafi
verið sturluð!
Hýrt dauðarokk
Hljómsveitirnar Ottoman og
Necksplitter sjá um upphitun.
– Ottoman er reykvísk rokk-
hljómsveit sem spilar níðþungt
grúvriff-rokk. Þau eru þekkt fyrir
kraftmikla og orkuhlaðna tón-
leika. Fyrsta plata þeirra, Heretic,
hefur hlotið frábæra gagnrýni,
en hún kom út á vínil í vikunni.
Necksplitter er glænýr dauðatuddi
sem frumflytur EP-plötuna sína
Exponential Trauma í heild sinni.
Hljómsveitin var stofnuð í árs-
byrjun 2021 og platan kom út 24.
desember sama ár. Hljómsveitin
hefur meðal annars talað fyrir því
að tala ekki niður til minnihluta-
hópa í textum við dauðarokks-
tónlist og hefur meðal annars deilt
slagorðinu Make brutal death
metal gay again, sem má þýða sem
Gerum dauðarokk hýrt aftur. n
Karókí fyrir
þungarokkara