Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 45

Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 45
Viltu taka þátt í mótun orkuumhverfis á Íslandi? Orkustofnun auglýsir ný störf sem munu gegna lykilhlutverki í mótun umgjarðar orkumála í takt við kröfur samtímans þar sem áhersla er lögð á orkuskipti, nýsköpun og loftslagsmál. Tilgangur starfsins er að greina rekstar forsendur fyrirtækja á raforkumarkaði og hafa eftirlit með rekstri dreifiveitna og flutningsfyrirtækis raforku. Meðal annars að tryggja fylgni við raforkulög, hafa eftirlit með tekjumörkum og rekstri og ákvarða tekju mörk og eftirlit með gjaldskrám raforkufyrirtækja. Við leitum að öflugum greinanda með mikla færni í hagnýtingu gagnasafna, færni til að greina og miðla gögnum á skýran og faglegan máta og brennandi áhuga á þróun orkumála. Tilgangur starfsins er að taka þátt í að móta umgjörð vindorkumála á Íslandi til framtíðar og stuðla að uppbyggingu þekkingar á sviðinu. Við leitum að framsýnum sérfræðingi með þekkingu og reynslu á sviði vindorku og brennandi áhuga á orku- og umhverfis málum og sjálfbærri auðlindanýtingu í víðu samhengi. Tilgangur starfsins er að nútíma- og sjálfvirkni væða gagnamál Orkustofnunar í því skyni að setja fram hagnýtar upplýsingar og greiningar sem nýtast til ákvarðanatöku og bæta upplýsingagjöf til sérfræðinga, stjórnvalda og almennings. Við leitum að kraftmiklum umbreytingaleiðtoga með þekkingu á uppbyggingu og hagnýtingu gagnagrunna og greiningartóla, hæfni til að setja fram gögn á skýran, faglegan og gagnvirkan máta og brennandi áhuga á á greiningu, nýtingu og framsetningu gagna. Tilgangur starfsins er gagnasöfnun, þróun mæla borðs orkumála og vinna tengd orkuspám og rekstrar hermunum raforkukerfisins. Við leitum að öflugum greinanda með mikla færni í hagnýtingu gagnasafna, færni til að greina og miðla gögnum á skýran og faglegan máta og brennandi áhuga á þróun orkumála. Tilgangur starfsins er að halda utanum starfsemi Orkuseturs Orkustofnunar, vinna að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orku notkun og möguleika til orkusparnaðar og styðja við verkefni tengd orkuskiptum, loftslags málum og nýsköpun. Starfsstöð verkefnastjóra Orkuseturs Orkustof- nunar er á Akureyri. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á loftslagsmálum, orkumálum og orkuskiptum, og reynslu í að leiða verkefni og virkja ólíka aðila til samstarfs. os.is Nánari upplýsingar um störfin veita: Ólafur Dan Snorrason, mannauðsstjóri olafur.dan.snorrason@os.is Anna Lilja Oddsdóttir, sérfræðingur anna.lilja.oddsdottir@os.is Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt bréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfi út frá hæfnikröfum auglýsingar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag. Um er að ræða fullt starfshlutfall. Starf verkefnastjóra Orkuseturs Orkustofnunar er með starfsstöð á Akureyri, önnur auglýst störf eru með starfsstöð í Reykjavík, nema um annað sé samið. Umsóknir eru gildar í sex mánuði frá birtingu þessarar auglýsingar innan stofn unar- innar og umsóknir gilda í öll störf þessarar auglýsingar. Orkustofnun stefnir að því að halda jöfnu kynjahlutfalli í starfsliði sínu. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Orkustofnun starfar í þágu samfélagsins og í takt við orkustefnu Íslands. Hlutverk hennar er að skapa skýra umgjörð um orkumál, stuðla að nýsköpun og upplýstri umræðu og að veita stjórnvöldum faglega ráðgjöf í þágu almannaheilla. Stefna Orkustofnunar er að byggja upp þekkingu á fagsviðum stofnunarinnar svo sem á sviðum orkuvinnslu, orkunýtingar og loftslagsmála, stunda skilvirka og gagnsæja stjórnsýslu, sem og sjálfstætt vandað eftirlit. Orkustofnun leggur áherslu á að vera framsýn, traust og skilvirk. Umsóknum skal skilað í gegnum 50skills. Umsóknafrestur er til og með 28.mars 2022 Þróunarstjóri gagna Sérfræðingur í greiningu orkumarkaðar Verkefnastjóri Orkuseturs Orkustofnunar Sérfræðingur á sviði vindorku og sjálfbærrar auðlindanýtingar Sérfræðingur á sviði raforku rekstrar og hagræns eftirlits

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.