Fréttablaðið - 01.04.2022, Page 14

Fréttablaðið - 01.04.2022, Page 14
Í skugga misvægis telja kjörn- ir fulltrúar Reykvík- inga að ríkið ráði yfir her- flugvell- inum. Hvers vegna eru engir reykvískir listar í framboði til borgarstjórnar? Hver gætir hagsmuna borgarbúa? Já, hverjir eru helstu hagsmunir Reyk- víkinga? Að sjálfsögðu eru það lang- veigamestu hagsmunir þeirra fyrr og síðar að losna við 80 ára gamlan her- flugvöll og skerðingu lofthelginnar yfir öllu Nesinu vestan Elliðaáa. Árlegt tjón af 80 ára gömlum her- flugvelli í stað miðborgar í Vatns- mýri nemur hundruðum milljarða króna. Tjónið felst einkum í því að stöðugt eru reist ný íbúðahverfi á röngum stað ár eftir ár, áratug eftir áratug. Gömul dæmi eru endalaus ný úthverfi í Reykjavík og stjórnlaus útþensla byggðar í nýju þéttbýli í SV-kjördæmi. Nýtt dæmi er byggð meðfram Suðurlandsbraut og yfir Elliðaár, sem fyrir fáum árum var fráleit hugmynd á blaði en er nú orðin hryggjarstykkið í hæpnum áformum um borgarlínu. Dæmin vitna um skort á fag- mennsku og framsýni og lýsa um leið stigvaxandi eyðingarmætti misvægis atkvæða. Frá stríðslokum risu hverfin hvert af öðru því ekki var pólitískt mögulegt að hróf la við herflugvelli á landi, sem Reyk- víkingar fengu 1. janúar 1932 fyrir nýja miðborg. Ríkið tók Vatnsmýrarsvæðið með óréttmætum og fjandsamlegum hætti af Reykvíkingum 1946, afhenti Flugfélagi Akureyrar herflugvöllinn þar til leigufrírra afnota og gerði fyrrverandi stjórnarformann þess að flugmálafulltrúa ríkisins. Hvorki eru dæmi um sambæri- legt landrán hérlendis né í nálægum löndum en þekkt tilvik í nútímasög- unni, meðal annars í Palestínu og í Úkraínu, skekja nú heimsbyggðina. Talsmáti Pútíns og annarra illvirkja minnir á þvætting þeirra, sem beita sér fyrir rekstri forkólfa Akureyringa og samherja þeirra af landsbyggð- inni á herflugvelli í Vatnsmýri. Aldrei mátti styggja forkólfana. Flugvöllurinn varð brátt sannkölluð ormagryfja hins unga lýðveldis og tifandi vítisvél, sem breytti efnilegri evrópskri smáborg í ósjálfbæra flat- neskju höfuðborgarsvæðisins (HBS) árið 2022, sem er að minnsta kosti fjórfalt víðáttumeiri en ella hefði orðið. Viðvarandi atgervisf lótti frá Íslandi, óhóflegur akstur, mikil bíla- eign, mengun, losun CO2, lök lýð- heilsa og ómæld glötuð tækifæri eru meðal einkenna byggðar og sam- félags í Reykjavík og á HBS. En hvers vegna gerir enginn neitt? Kringum- stæður í ráðhúsi Reykjavíkur eru líkt og úr leikhúsi fáránleikans og persónur og leikendur þar eins og strengjabrúður. Allt í boði misvægis atkvæða og forkólfanna. Í lok mars eru átta listar fyrir kosningar til borgarstjórnar, Fram- sókn, Íhald, Kommar og Kratar, sumir rækilega dulbúnir. Gamli Fjórflokkurinn eins og hann leggur sig. Og svo eru nokkrir nýliðar, meðal annars afsprengi klofnings og bankahruns. Við fyrstu sýn virðist þetta fjölskrúðugt framboð af alls konar, eitthvað fyrir alla. En þegar betur er að gáð kemur annað í ljós. Listarnir átta eiga sameiginlegan innbyggðan kerfisgalla, sem vinnur sjálfkrafa gegn helstu hagsmunum borgarbúa og gegn þjóðarhag. Þeir eru hreinræktaðir landsmálalistar, aukageta flokka, sem bjóða fram til Alþingis í öllum kjördæmum. Þessi kerfisgalli er banvæn bjögun vegna misvægis atkvæða. Frá lýðveldistöku og lengur hafa landsmálalistar stjórnað Reykjavík. Áratuga reynsla er af því í borgar- stjórn að þegar hagsmunir borgar og landsbyggðar skarast víkja hagsmunir borgarbúa alltaf. Þetta á einkum við um lóðina undir 80 ára gömlum herf lugvelli í Vatns- mýri og lofthelgina yfir öllu Nesinu vestan Elliðaáa, alls um 2.200 hekt- arar lands. Listarnir átta eru líkt og tróju- hestar í ráðhúsi Reykjavíkur, far- vegir fyrir fjandsamleg og eyðandi bjögunaráhrif af landsbyggðinni í krafti misvægis atkvæða. Herflug- völlinn skal festa í sessi í Vatnsmýri með öllum tiltækum ráðum. Í skugga misvægis telja kjörnir fulltrúar Reykvíkinga að ríkið ráði yfir herflugvellinum. Flestir hinna kjörnu viðurkenna þó að Samtök um betri byggð hafi faglega séð rétt fyrir sér í helstu skipulagsmálum Reykjavíkur, það sé hins vegar póli- tískt ómögulegt að láta almanna- heill ráða og ganga þannig gegn valdi og vilja ríkisins um áfram- haldandi flugrekstur. En stærstu línur borgarskipulags falla sjálfkrafa að skilgreiningu hug- taksins „almannaheill“ sem er það sem gagnast flestum í samfélaginu best hverju sinni og er hornsteinn kenninga um stjórnmál og heim- speki síðustu 2.500 ára, kjarni alþjóðlegra sáttmála, stjórnarskráa ríkja og sjálfs lýðræðisins. Formlegt vald ríkisins er því auð- vitað ekkert, keisarinn ekki í neinu. Reykvíkingar fara sjálfir með skipu- lagsvald yfir öllu landi innan marka Reykjavíkur eins og önnur sveitar- félög á Íslandi innan sinna marka, í samræmi við lög, reglur og hefðir hvar sem er, ekki aðeins á Íslandi. Það vald er algert og óskorað. Illa fengið áhrifavald af misbeit- ingu misvægis atkvæða nær aðeins til einkahagsmuna kjörinna full- trúa Reykvíkinga og til framboða landsmálaflokka. Vilji Reykvíkinga sjálfra er allt sem til þarf. Kjósendur í Reykjavík ættu nú að sameinast um framboð, sem er óháð misvægi atkvæða og vinnur eingöngu fyrir borgarbúa að reyk- vískum hagsmunum. Þeir sem ná inn í borgarstjórn af þeim lista geta unnið fyrir og rætt við kjósendur sína hvern einasta dag næstu fjögur ár. n Gæti orðið besta borg í heimi Örn Sigurðsson arkitekt Árás Rússlands á Úkraínu hefur gert það að verkum að margir hafa verið að endurskoða afstöðu sína til ýmissa hluta. Umræða um fæðu- öryggi hefur meðal annars farið aðf stað og margir óttast að stríðsátök geti breiðst út til annarra landa. Þá hafa margar þjóðir verið að skoða stöðu sína í samfélagi þjóðanna en einnig framlög sín til varnar- og öryggismála. Bæði Þjóðverjar og Danir eru að stór- auka framlög sín til sinna herja og Finnar og Svíar, sem verið hafa utan NATO, útiloka nú ekki að sækja um aðild að bandalaginu. Það fyrsta sem forseti Úkraínu óskaði eftir til þess að styrkja stöðu landsins, við þessar skelfilegu aðstæður, var að sækja um aðild að Evr- ópusambandinu, þar sem hann taldi að landinu væri best borgið í samfélagi þjóðanna í Evrópu. Hvers vegna skyldi það vera? Hér á Íslandi er umræðan um Evrópusambandið oftast lituð af eiginhagsmunum. Hvað fáum við út úr því að ganga í ESB? Vissulega er gott að spyrja slíkra spurninga og í mínum huga er enginn vafi á því að Ísland myndi njóta góðs af fjölmörgu sem þar er til staðar, aukins stöðugleika í efnahags- málum og lýðræðislegrar aðkomu að því að skrifa þær reglur sem við innleiðum nú þegar. Ég er sann- færður um að ef gerð yrði hags- munagreining á kostum þess að ganga í ESB þá myndu kostirnir vera mun f leiri en að standa fyrir utan sambandið. En við sem þjóð eigum líka að velta því fyrir okkur hvað við getum lagt til. Viljum við taka þátt í þeirri viðleitni Evrópu að skapa frið og velsæld í allri Evr- ópu, þar sem unnið hefur verið að því að tengja Evrópulöndin betur saman og jafna lífskjör milli Evr- ópulanda? Það var og hefur verið tilgangur Evrópusambandsins og f lest lönd Evrópu hafa tekið ákvörðun um að fylkja sér á bak við þau markmið. Hvenær skyldum við Íslendingar taka ákvörðun um að gera slíkt hið sama? n Í hvaða liði viltu vera? Guðbrandur Einarsson alþingismaður Viðreisnar Viljum við taka þátt í þeirri viðleitni Evr- ópu að skapa frið og velsæld í allri Evrópu, þar sem unnið hefur verið að því að tengja Evrópulöndin betur saman og jafna lífskjör milli Evrópulanda? 12 Skoðun 1. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.