Morgunblaðið - 24.02.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Páll Vilhjálmsson hefur verið ið-
inn við kolann. Og á daginn
kom að hann hafði mun meira fyrir
sér en ýmsum þótti þægilegt:
- - -
RÚV var með
þann uppslátt
um helgina að al-
þjóðalögreglan Int-
erpol leitaði þriggja
Íslendinga, Sam-
herjamanna auðvit-
að.
- - -
Í fréttinni segir að
namibískur sak-
sóknari vilji ,,að
mennirnir þrír beri
vitni“.
- - -
Ha? Beri vitni?
- - -
Þetta eru sömu þrír mennirnir og
RÚV sagði fyrir ári að væru
ákærðir i Namibíu.
- - -
Fréttin stendur enn á heimasíðu
RÚV, óleiðrétt og óuppfærð.
- - -
Ef einhver ætti að þekkja muninn á
að bera vitni og vera ákærður þá er
það RÚV.
- - -
En RÚV er hjartanlega sama um
sannleikann.
- - -
RÚV hannar skáldskap eftir for-
skrift þar sem sumir eru fyrir-
fram sekir en aðrir saklausir.
- - -
Þeir sem veiða fisk og selja eru
sekir.
- - -
Þeir sem byrla og stela eru sak-
lausir.“
Páll
Vilhjálmsson
Vandræðagangur
og vond samviska
STAKSTEINAR
Stefán
Eiríksson
Hallgrímur Jónsson
frá Laxamýri, fyrrver-
andi yfirlögregluþjónn
og frjálsíþróttakappi,
lést á Skjóli 20. febr-
úar sl., 94 ára að aldri.
Hallgrímur var
fæddur 22. júní 1927 á
Bessastöðum á Álfta-
nesi en uppalinn á
Laxamýri í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Foreldrar hans voru
hjónin Jón H. Þor-
bergsson, f. 31.7. 1882,
ráðunautur hjá Bún-
aðarfélagi Íslands og
bóndi á Bessastöðum á Álftanesi og
Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu,
og Elín Vigfúsdóttir, f. 29.9. 1891,
kennari og húsfreyja.
Hallgrímur lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Húsavíkur
1948 og búfræðiprófi frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1951. Hann
hóf störf hjá lögreglunni í Reykja-
vík 1952, sótti námskeið hjá lög-
reglunni í Reykjavík veturinn 1953-
54 og stundaði nám við lögreglufor-
ingjaskóla í Bandaríkjunum
veturinn 1957-58. Hallgrímur var
yfirlögregluþjónn í Vestmanna-
eyjum 1963-65, varðstjóri hjá lög-
reglunni í Reykjavík 1966-71,
fulltrúi hjá Gjaldheimtunni í
Reykjavík 1971-79 og for-
stöðumaður Breiðholtssundlaugar í
Reykjavík 1980-97, er
hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Hallgrímur var for-
maður Lögreglufélags
Reykjavíkur, sat þing
BSRB og skrifaði bók-
ina Á slóðum manna
og laxa sem kom út
1985 hjá Skjaldborg.
Einnig skrifaði hann
bókina Reynsluslóðir
lögreglumanns og
íþróttakappa sem kom
út árið 2009.
Hallgrímur varð
margsinnis Íslands-
og Reykjavíkurmeistari í kringlu-
kasti og setti tvö Íslandsmet í
þeirri grein á árunum 1953-64.
Hann er einnig methafi í kringlu-
kasti og kúluvarpi öldunga.
Fyrst byrjaði hann í kúluvarpi og
var kominn í fremstu röð 1949 en
sá að kringlukastið lá betur fyrir
honum og var það síðan helsta
íþróttagrein hans. Hann var lands-
liðsmaður í 11 ár og valinn í lands-
lið Norðurlandanna ásamt Vilhjálmi
Einarssyni.
Hallgrímur kvæntist 21.11. 1959
Þórunni Franz, f. 19.9. 1931, full-
trúa og fyrrverandi kaupkonu. Þau
áttu þrjú börn saman en fyrir
hjónaband átti Hallgrímur tvær
dætur. Þórunn, eiginkona Hall-
gríms, átti áður tvær dætur.
Andlát
Hallgrímur Jónsson
Opnað verður fyrir framtalsskil ein-
staklinga 2022, vegna tekna ársins
2021, þriðjudaginn 1. mars nk., á
sprengidaginn. Lokaskiladagur er 14.
mars. Venjan hefur verið sú und-
anfarin ár að veita þeim sem á þurfa
að halda nokkurra daga viðbótarfrest.
Í fyrra voru framteljendur 312.513
talsins og töldu þeir fram 1.320 millj-
arða króna í laun og hlunnindi.
Framtalið verður aðgengilegt á
þjónustuvef Skattsins, www.skatt-
ur.is og ber öllum þeim sem náð hafa
16 ára aldri í lok árs 2021 að skila
skattframtali og telja fram tekjur sín-
ar og eignir.
Boðið verður upp á að panta símtal
og fá aðstoð við framtalsgerð í gegn-
um síma, en engin framtalsaðstoð
verður í afgreiðslum Skattsins.
Framtalsleiðbeiningar 2022 er til-
búnar og komnar á vefinn ásamt
bæklingi með einföldum framtals-
leiðbeiningum þar sem stiklað er á
stóru yfir það helsta sem einstak-
lingar þurfa að huga að við skil á
skattframtali, segir á veg Skattsins.
Notast þarf við rafræn skilríki eða
veflykil til auðkenningar inn á þjón-
ustuvefinn við innskráningu.
Lendi fólk í vandræðum með fram-
talið verður hægt að hafa samband
við framtalsaðstoð í síma 442-1414
eða senda fyrirspurnir á netfangið
framtal@skatturinn.is.
sisi@mbl.is
Opnað fyrir framtöl á sprengidaginn
- Hafa tvær vikur til að skila framtalinu - 312 þúsund framteljendur í fyrra
Morgunblaðið/sisi
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15