Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Skrifstofuhúsnæði óskast til
leigu fyrir Borgarmiðstöð Austur
Reykjavíkurborg óskar eftir að taka á leigu
skrifstofuhúsnæði fyrir Borgarmiðstöð Austur,
sameinaða borgarmiðstöð Árbæjar/Grafarholts
og Grafarvogs/Kjalarness.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til
10-15 ára, með mögulegri framlengingu, fullbúið til
notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu
austan við Elliðaár, helst sem næst Ártúnshöfða.
Húsnæðisþörf Borgarmiðstöðvar Austur er áætluð um
2500 fermetrar. Stærð húsnæðis fer m.a. eftir möguleika á
samnýtingu með öðrum í húsnæðinu, t.d. mötuneyti,
stórum fundarherbergjum og búningsaðstöðu.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til
leiguverðs, gæða, stærðar, skipulags húsnæðis út frá
fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma,
almenningssamgagna, staðsetningar,
aðkomu og aðgengi.
Áætlað er að húsnæðið verði tekið í notkun eins fljótt
og kostur er en eigi síðar en 18 mánuðum eftir
undirritun leigusamnings.
Fyrirspurnir varðandi auglýsinguna skulu sendar
rafrænt í gegnum útboðskerfi Reykjavíkurborgar og
verða svör birt þar. Frekari upplýsingar um þær kröfur
sem húsnæðið verður að uppfylla eru aðgengilegar á
vefslóðinni https://utbod.reykjavik.is
Leigutilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu, eigi
síðar en 31. mars 2022 kl. 14:00. Ekki verður haldinn
sérstakur opnunarfundur. Leiga á grundvelli þessarar
auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum tilboðum.
Umsjónaraðili er Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Heimsmarkaðsverð á laxi er í hæstu
hæðum um þessar mundir. Í síðustu
viku fór verðið yfir 90 norskar krón-
ur á kílóið sem svarar til tæplega
1.300 króna íslenskra. Verðið hefur
ekki farið svo hátt í háa herrans tíð.
Ójafnvægi í framboði og eftirspurn
veldur þessu.
Sigurður Pétursson, stofnandi
Lax-inn sem er fræðslumiðstöð fisk-
eldis, áður stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Arctic Fish, segir að
því sé spáð að framboð af laxi aukist
lítið frá Noregi í ár. Það eitt og sér
auki þrýsting á markaðinn. Sölufyr-
irtæki hafi skuldbundið sig til að út-
vega lax og verði að standa við
samninga. Við þetta bætist aukin
heilsuvitund fólks í kórónuveiru-
faraldrinum og eftirspurn eftir heil-
næmum mat. Þá aukist vinsældir
sushi-rétta stöðugt. Eftirspurnin sé
því meiri en framleiðendur anni.
Heimsmarkaðsverð á laxi er
venjulega hátt fyrir jól og páska en
lægra þess á milli, sérstaklega á
sumrin. Laxeldisfyrirtækin taka mið
af því við skipulagningu slátrunar.
Á þessum tíma árs ætti verðið að
lækka en það hefur hækkað og er
komið í hæstu hæðir. Síðan hefði
mátt búast við öðrum toppi fyrir
páska og lækkandi verði eftir það.
Erfitt er að ráða í þróunina þegar
ójafnvægi er á markaðnum.
Sigurður bendir á að öll stóru lax-
eldisfyrirtækin í Noregi séu með
væntingar um góða afkomu á þessu
ári, telji að árið verði í röð þeirra
allra bestu. Samkvæmt því reikni
þau með að áfram verði ójafnvægi á
markaðnum sem haldi verðinu háu.
Sjálfur telur Sigurður að markaður-
inn þoli ekki þetta háa verð í langan
tíma. Ákveðnir kaupendur, einkum
veitingahús og stóreldhús, taki lax-
inn af matseðli þegar verðið sé orðið
of hátt fyrir þá og það dragi úr eft-
irspurn.
Heimsmarkaðsverð á laxi
Meðalverð í NOK/kg frá viku 7, 2021 til viku 7, 2022
100
90
80
70
60
50
40
30
20
2021 2022
Heimild: Nasdaq salmon index
7 10 13 16 19 21 24 27 30 33 36 39 42 45 48 51 2 5 8
49,54
92,56
Heimsmarkaðsverð
á laxi í hæstu hæðum
- Útlit fyrir góða afkomu í laxeldinu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útlit er fyrir að heildarkvóti ís-
lenskra skipa á vertíðinni verði hátt
í 690 þúsund tonn. Eins og mál hafa
þróast hafa heimildir Íslendinga
aukist og verða tæplega 30 þúsund
tonnum meiri en gert var ráð fyrir í
haust. Þetta er meiri kvóti en mörg
undanfarin ár og með því mesta
sem íslenskum skipum hefur verið
heimilt að veiða á þessari öld. Ljóst
er að það er ærið verkefni að ná
þessum kvóta í stöðugum umhleyp-
ingum og gera um leið sem mest
verðmæti úr loðnunni. Hrogna-
frysting gæti hafist í næstu viku.
Eftir haustráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar var miðað við að í
hlut Íslands kæmu um 662 þúsund
tonn. Eftir skerðingu í lokaráðgjöf í
síðustu viku voru heimildir Íslend-
inga um 634 þúsund tonn. Norð-
menn náðu hins vegar ekki að veiða
allan sinn kvóta og vantaði 50-55
þúsund tonn upp á, miðað við út-
reikninga á heimildum þeirra eftir
skerðingu.
Erfitt hjá Norðmönnum
Norsku loðnuskipin héldu hvert
af öðru út úr lögsögunni í gær og í
fyrradag, sem var síðasti veiðidag-
ur þeirra hér við land í vetur. Ver-
tíðin var erfið fyrir Norðmenn, veð-
ur voru erfið til nótaveiða og loðnan
stóð djúpt. Í frétt í blaðinu í vikunni
var áætlað að þeir myndu ekki ná
að veiða 30-40 þúsund tonn, en nú
er komið í ljós að rétt tala er hátt í
55 þúsund tonn.
Landhelgisgæslan fær aflatölur
frá skipunum, en endanlegar vigt-
artölur liggja fyrir næstu daga. 62
norsk loðnuskip tilkynntu sig til
veiða innan íslensku efnahagslög-
sögunnar á þessu ári.
Ekki í þéttum flekk
Loðnuskipin voru í gær ýmist
suður af Grindavík, þar sem þau
voru flest, vestur af Þorlákshöfn og
tvö skip voru að veiðum á Faxaflóa.
Síðustu daga hafa veður verið óhag-
stæð og útlit er fyrir frátafir vegna
veðurs á næstunni.
Loðnan virðist ekki hafa þétt sig í
stóran flekk og hefur gengið dreifð
með suðurströndinni. Í síðustu viku
talaði einn skipstjórinn um að göng-
ur væru tætingslegar, en fram hef-
ur komið að loðnu er víða að sjá.
Loðnukvótinn gæti endað
í tæpum 690 þús. tonnum
- Yfir 50 þúsund tonn vantaði hjá Norðmönnum - Stöðugir
umhleypingar og frátafir - Ærið verkefni að ná kvótanum
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Loðnuvertíð Á miðunum vestan við Eyjar fyrir viku. Hoffell SU er næst, fjær sést Börkur NK vera að draga, fyrir
miðri mynd má sjá Jónu Eðvalds SF og til hægri er færeyskt skip á siglingu. Veður hafa sett strik í reikninginn.