Morgunblaðið - 24.02.2022, Side 22
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú þegar hillir undir lok heimsfarald-
urs kórónuveirunnar er starfsemi Al-
þingis Íslendinga að komast í eðlilegt
horf. Síðastliðinn mánudag sátu þing-
menn sameinaðir í þingsal í fyrsta
sinn síðan í ágúst 2020, eða í eitt og
hálft ár. Og alþingismenn eru á ný
farnir að sækja fundi erlendis.
„Ákveðið hefur verið að stækka
enn frekar það svæði á 2. hæð Alþing-
ishússins sem ætlað er til þingfunda.
Þá verða fundir nefnda alla jafna fjar-
fundir.“ Þetta sagði í tilkynningu á
heimasíðu Alþingis 26. ágúst 2020,
daginn áður en þing kom saman til
framhaldsfunda. Engan grunaði þá
að þetta fyrirkomulag stæði jafn
lengi yfir og raun bar vitni.
Tryggja nándarreglu sóttvarna
Enn fremur sagði í fréttinni:
„Í því skyni að tryggja örugga
framkvæmd nándarreglu sóttvarna og
til að stuðla að hnökralausum þing-
störfum hefur forseti Alþingis ákveðið,
að höfðu samráði við forsætisnefnd og
þingflokksformenn, að stækka enn
frekar það svæði á 2. hæð þinghússins
sem ætlað er til þingfunda. Þingfunda-
svæðið tekur nú auk þingsalar til
hliðarsala báðum megin þingsalarins.
Í þingsal verða sæti fyrir 27 þingmenn
og ráðherra. Aðrir ráðherrar og þing-
menn fá sæti í hliðarsölum (efrideild-
arsal, ráðherraherbergi, lestrarsal og
skjalaherbergi). Þá verður sú breyting
að atkvæðagreiðsluhnappar þeirra
þingmanna og ráðherra sem fá sæti í
hliðarsölum verða fluttir á þau borð
sem koma þar í þeirra hlut. Allir þing-
menn og ráðherrar hafa því fast at-
kvæðagreiðslusæti og geta þannig
greitt atkvæði beint úr sæti sínu með
rafrænum hætti.“ Forseti Alþingis á
þessum tíma var Steingrímur J. Sig-
fússon.
Í samræmi við ráðleggingar sótt-
varnalæknis var áfram brýnt fyrir
þingmönnum og starfsfólki að þvo og
spritta á sér hendur, lágmarka þann
tíma sem þeir væru í fjölmenni og að
virða nándarregluna. Þeir sem í ein-
hverjum tilfellum óskuðu eftir and-
litsgrímu og hanska gátu nálgast slíkt
hjá þingvörðum í Skála.
Síðasta vika var kjördæmavika á
Alþingi. Var tækifærið notað til að
gera breytingar á þingsalnum, svo
sem að færa atkvæðagreiðslukerfið í
upprunalegt horf. Birgir Ármanns-
son þingforseti tilkynnti á mánudag
að framvegis yrðu allir þingmenn í sal
og settust í þau sæti sem þeir drógu
um við upphaf þings.
Nýtt þing var kjörið í fyrrahaust
og í fyrsta sinn frá kosningum sitja
nú allir þingmenn, sem þá voru kjörn-
ir, saman í þingsalnum. Þó eru enn
nokkur borð í hliðarsal, ef þingmenn
kjósa frekar að sitja þar, með tilliti til
sóttvarna.
Vegna heimsfaraldursins hafa
fundahöld erlendis verið af skornum
skammti í tvö ár og fyrirkomulaginu
breytt í fjarfundi. En nú er að verða
breyting á. Alþingismenn hafa sótt
tvo alþjóðlega fundi að undanförnu,
upplýsir Ragna Árnadóttir, skrif-
stofustjóri Alþingis. Annars vegar
fund Evrópuráðsþingsins í Strass-
borg 24.-28. janúar (einn þingmaður)
og hins vegar fund þingmanna-
nefndar EFTA í Brussel 7.-9. febrúar
(fimm þingmenn). Gert er ráð fyrir að
þingmenn sæki til viðbótar fimm
fundi erlendis í febrúar. „Fundarsókn
erlendis af hálfu Alþingis fer eftir
ákvörðunum alþjóðlegra þingmanna-
samtaka um hvort fundir fari fram
sem staðfundir eða í fjarfundarformi.
Slíkar ákvarðanir eru teknar í sam-
ráði við gestgjafaríki viðkomandi
funda. Eftir óvissu um alþjóðlegt
fundarhald á síðustu vikum og mán-
uðum er verið að efna til staðfunda í
auknum mæli að nýju í takt við opnun
og afléttingu sóttvarnatakmarkana,“
segir Ragna.
Þingmenn loksins sameinaðir
- Vegna sóttvarnaaðgerða hefur hluti þingsheims setið í hliðarsölum í eitt og hálft ár - Frá og með
mánudeginum eru þingmenn sameinaðir í þingsal - Byrjaðir að sækja fundi í útlöndum á nýjan leik
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Tvö verðtilboð bárust í verðkönnun
Garðabæjar um kaup og leigu á fær-
anlegum húseiningum fyrir leikskóla
sem reisa á í Kauptúni. Bæjarráð
samþykkti með fjórum atkvæðum á
fundi í vikunni að fela bæjarstjóra að
leita samninga við Terra einingar
ehf. um leigu á húseiningunum. Í til-
boði Terra er leiguverðið 2,7 millj-
ónir kr. á mánuði í 24 mánuði eða
samtals 64,8 milljónir og kaupverð
að tveimur árum liðnum hljóðar upp
á um 202 milljónir kr. eða samtals
267 milljónir kr.
Stólpi Gámar ehf. sendu einnig inn
tilboð með lægra leiguverði fyrir
húseiningarnar eða 2,3 milljónir kr. á
mánuði, samtals 55,2 milljónir kr. á
tveggja ára leigutíma, en kaupverðið
að leigutíma liðnum er hærra en hjá
Terra einingum eða 245 milljónir kr.
í tilboði Stólpa Gáma, sem samtals
hljóðar upp á 300 milljónir kr.
Á fundi bæjarráðs lagði Sara
Dögg Svanhildardóttir, bæjar-
fulltrúi Viðreisnar, fram bókun þar
sem hún gagnrýnir vinnubrögð
meirihlutans að taka umdeilda
ákvörðun og leita verðtilboða í stað
þess að fylgja lögum um opinber inn-
kaup og bjóða út kaup á þjónustu og
möguleg kaup á einingum undir leik-
skólann. Fór hún fram á að minn-
isblað sem bæjarfélagið lét vinna
verði gert opinbert. Bæjarráð fól
bæjarstjóra á fundinum að auglýsa
eftir áhugasömum aðilum til að ann-
ast rekstur á leikskólanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lóð í Urriðarholti Byggja á varanlegan leikskóla við Holtsveg sem taki til
starfa 2023 og í haust eiga að standa til boða leikskólapláss í Kauptúni.
Leita samninga við
Terra einingar ehf.
- Bauð 2,7 milljóna leiguverð á mánuði
Samkvæmt starfsáætlun Al-
þingis, 152. lögjafarþingsins,
verður þinghaldið nokkuð slitr-
ótt fram á vorið.
Samkvæmt henni verður gert
hlé á þinghaldinu yfir páska.
Þingfundur er á dagskrá föstu-
daginn 8. apríl og næsti þing-
fundur er ekki á dagskránni fyrr
en mánudaginn 25. apríl.
Aftur verður gert hlé vegna
sveitarstjórnarkosninganna,
sem fram fara 14. maí. Þing-
fundur er á dagskrá föstudag-
inn 29. apríl en næsti fundur
þar á eftir er á dagskrá mánu-
daginn 16. maí.
Eldhúsdagsumræður verða 8.
júní og stefnt er að þingfrestun
föstudaginn 10. júní.
Slitrótt þing-
hald til vors
STARFSÁÆTLUN
Morgunblaðið/Kristinn
Sameinaðir Alþingismenn geta nú allir setið í þingsalnum sem búið er að færa í það horf sem var fyrir faraldurinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Faraldurinn Hluti þingheims hefur setið í hliðarsölum síðan í ágúst 2020.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
COMPONIBILI
HIRSLA
2ja hæða frá 13.900,-
3ja hæða frá 18.900,-