Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
hafnað ósk Leiguíbúða ehf. um að
flytja fjögur eldri hús á lóðina
Frakkstíg 1, sem er á horni Frakka-
stígs og Skúlagötu.
Kemur fram í umsögn verkefnis-
stjóra skipulagsfulltrúa að gert sé
ráð fyrir miklu byggingarmagni á
lóðinni, með 1.665 fermetrum ofan-
jarðar og bílakjallara. Lóðin sé hluti
af áætlun sem kallast Græn upp-
bygging, sé hluti af Græna planinu
og í úthlutunarferli.
Eins og fram kom í frétt í Morg-
unblaðinu 2. febrúar sl. barst
Reykjavíkurborg fyrirspurn frá
Zeppelin arkitektum f.h. Leiguíbúða
um mögulega endurskipulagningu
lóðarinnar nr. 1 við Frakkastíg.
Markmiðið var að flytja þangað hús
sem til skamms tíma stóð á baklóð
Laugavegar 37 og endurbyggja þar
gamla húsið við Laugaveg 74, ásamt
því að undirbúa lóðina fyrir tvö önn-
ur flutningshús.
Atvinnuhús og íbúðir
Fyrirspurninni var vísað til með-
ferðar verkefnisstjóra skipulagsfull-
trúa. Umsögn hans var kynnt á
fundi skipulagsfulltrúa 18. febrúar
sl. og hún samþykkt.
Í umsögn verkefnisstjórans kem-
ur fram að heimilt sé að reisa á lóð-
inni sjö hæða nýbyggingu, ásamt
bílastæðakjallara, innan byggingar-
reits skv. deiliskipulagsuppdrætti. Á
1. hæð skal vera atvinna, verslun og
þjónusta en íbúðir, þar með talið
námsmannaíbúðir, á 2.-7. hæð. Lóð-
in Frakkastígur 1 var ein þriggja
lóða sem Reykjavíkurborg lagði
fram í fyrsta áfanga verkefnisins
Re-Inventing Cities um umhverfis-
vænar byggingar. Hinar tvær eru á
Ártúnshöfða og í Lágmúla 2.
Eins og margoft hefur komið fram
í Morgunblaðinu hafa staðið yfir
deilur um þessa fyrirhuguðu sjö
hæða byggingu undanfarin ár. Ná-
grannar í Skúlagötu 20 og Íbúa-
samtök miðborgarinnar hafa haft
uppi mótmæli og vildu að hætt verði
við áformin um háhýsi.
„Uppbyggingin sem óskað er eftir
er djörf og athyglisverð í þessu þétta
umhverfi. Hún er ekki í samræmi við
gildandi deiliskipulag, byggðar-
mynstur að Skúlagötu né fyrirætl-
anir borgaryfirvalda sem kallast
Græna planið,“ segir verkefnisstjór-
inn og tekur neikvætt í erindið.
Eldri húsin fara ekki á Frakkastíg
- Tekið neikvætt í fyrirspurn - Frakkastígur 1 hluti af græna planinu - Þar mun rísa sjö hæða hús
Tölvumynd/Zeppelin
Frakkastígur 1 Forsvarsmenn Leiguíbúða ehf. og arkitektarnir höfðu áhuga á að reisa á lóðinni fjögur eldri hús sem standa nú á öðrum stöðum í borginni.
Hreint loft –betri heilsa
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum.
Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum,
bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E
Air Genius 5.
Hreinsar allt að 99.9%
af óhreinindum.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420