Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Sjávarútvegurinn á ekki lengur
mikla beina hagsmuni undir Rúss-
landsmarkaði og hefur heldur lítið
verið selt þangað af sjávarafurðum
síðastliðin ár, ef marka má tölur
Hagstofu Íslands. Það er því fátt
sem bendir til þess að hugsanlegar
refsiaðgerðir Rússa sem gætu verið
svar við aðgerðum Vesturlanda
myndu bitna mikið á íslenskum
sjávarútvegi.
Árið 2021 voru flutt 1.483 tonn af
sjávar- og eldisafurðum frá Íslandi
til Rússlands að verðmæti 499 millj-
ónir króna. Var það töluvert meira
en árið 2020 þegar útflutnings-
verðmæti sjávar- og eldisafurða til
Rússlands nam 219 milljónum
króna.
Bæði árin eru þó heldur smá í
sögulegu tilliti og tengist það við-
skiptaþvingunum sem Rússar settu
á Íslendinga árið 2015, en það ár
voru flutt út rúm 58 þúsund tonn til
Rússlands fyrir um 12 milljarða
króna. Árið á undan höfðu verið
flutt 134 þúsund tonn til Rússlands
að verðmæti 27 milljarðar króna.
Lengi vó makríllinn þungt og var
hann um 37% af verðmætunum
2014.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fiskur Makríll var fyrirferðarmikill
í útflutningi til Rússlands.
Lítið um
fisk til
Rússlands
- Aðeins 1.483 tonn
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Ríkisendurskoðun gagnrýnir í úttekt
sinni á starfsemi Landhelgisgæslu
Íslands hvernig farið sé með fé sem
ætlað er rekstri sjófara stofnunarinn-
ar.
„Að mati Ríkisendurskoðunar er
varðskipakostur Landhelgisgæsl-
unnar vannýttur og skoða þarf hvort
nýta megi úthald varðskipanna á skil-
virkari og hagkvæmari hátt. Í því til-
liti verður að horfa til þess hversu
takmarkandi þáttur tiltækar áhafnir
hafa verið, hversu marga daga varð-
skipin liggja bundin við bryggju og að
hve takmörkuðu leyti skipin hafa get-
að sinnt gæslu og eftirliti,“ segir í út-
tektinni sem birt var í gær á vef Rík-
isendurskoðunar.
Á tímabilinu sem tekið er til skoð-
unar, 2018 til 2020, sinntu varðskipin
Þór og Týr eftirliti með fiskveiðum,
að meðtöldu eftirliti með veiðum
krókamarks- og strandveiðibáta á
grunnslóð. Auk þess höfðu varðskipin
eftirlit með skipum og bátum í þjón-
ustu fiskeldisfyrirtækja sem starf-
rækja sjókvíar.
Fram kemur í úttektinni að kostn-
aður við sólarhringsúthald skipanna
hafi verið á bilinu 2,2 til 2,9 milljónir
króna og að varðskipin Þór og Týr
voru 1.101 dag á sjó og 1.091 dag við
landfestar.
Margra ára aðgerðaleysi
Sérstaklega er gagnrýnt hve „illa
það fjármagn hefur verið nýtt sem
varið hefur verið til reksturs varð-
skipsins Ægis síðustu ár. Skipið hef-
ur ekki verið haffært síðan í febrúar
2016 en var fyrst auglýst til sölu í
nóvember 2020.“ Á tímabilinu 2018 til
2020 námu hafnargjöld og annar
kostnaður um 37 milljónum króna.
Landhelgisgæslan bar fyrir sig að
vonir hafi verið um að fé fengist til að
gera Ægi haffæran á ný en þegar
slíkt gekk ekki eftir hafi verið óskað
eftir söluheimild.
„Ríkisendurskoðun telur einsýnt
að dómsmálaráðuneyti og Landhelg-
isgæslan hefðu þurft að taka skýra
ákvörðun um framtíð skipsins miklu
fyrr. Margra ára aðgerðaleysi í mál-
efnum varðskipsins Ægis vekur
undrun,“ segir í úttektinni.
Þá er gagnrýnt hve lítill undirbún-
ingur var að baki kaupum á notuðu
varðskipi (Freyju) í stað Týs og Æg-
is. „Þrátt fyrir að ástand Týs hafi ver-
ið talið gott allt fram til ársloka 2020
hefði verið tímabært að hefja undir-
búning endurnýjunarinnar miklu
fyrr. […] Skortur á raunsærri lang-
tímaáætlanagerð þegar kemur að
rekstri og fjárfestingum í skipakosti
Landhelgisgæslunnar hefur reynst
vera alvarlegur veikleiki.“
Bjóði út sjómælingar
Sjómælingaskipið Baldur er sögð
„óhagkvæm rekstrareining“ í úttekt-
inni og er bent á að Baldur var árin
2018 til 2020 gerður út í 92 til 100
daga á ári. „Í því skyni að efla útgerð
varðskipanna telur Ríkisendurskoð-
un að kanna þurfi kosti þess að bjóða
út verkefni sjómælinga. Ef af því
yrði, væri unnt að selja bæði sjómæl-
ingaskipið Baldur og þann sérhæfða
búnað sem hefur verið aflað til að
sinna verkefninu. Þannig mætti
skapa viðbótarsvigrúm til að efla getu
stofnunarinnar til að sinna leit, björg-
un og eftirliti á íslensku hafsvæði.“
Ríkisendurskoðun gerir at-
hugasemdir við rekstur LHG
- Varðskipakosturinn vannýttur - Aðgerðaleysi vegna Ægis veki undrun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskip Ríkisendurskoðun segir undirbúning að kaupum á Freyju hafa
verið of lítinn og gagnrýnir að undirbúningur hafi ekki verið hafinn fyrr.
„Þeir aðilar sem þiggja rekstr-
arfé sitt úr ríkissjóði geta ekki
vísað til þess að með því að
komast hjá greiðslu opinberra
gjalda sé stuðlað að rekstr-
arhagkvæmni. Siglingar Land-
helgisgæslunnar í þessum til-
gangi fela í sér sóun, óþarfa
mengun og skerðingu á við-
bragðsgetu varðskipa innan
efnahagslögsögunnar,“ segir í
úttekt Ríkisendurskoðunar.
„Landhelgisgæslan þarf að
hætta olíukaupum fyrir íslensku
varðskipin í Færeyjum.“
Ríkisendurskoðun segir í út-
tekt sinni „mikilvægt að hafa í
huga“ að virðisaukaskattur sem
Landhelgisgæslan er að komast
hjá að greiða rennur allur til rík-
issjóðs. „Í heildarsamhengi rík-
isrekstrarins verður ekki séð að
um haldbær rök sé að ræða.“
Vakin er athygli á því að á
þeim tíma sem siglt er til Fær-
eyja er viðbragðstími varðskip-
anna lengdur enda skipin fjarri
lögsögunni sem þau eiga að
gæta.
Þá er ekki um ótvíræðan
sparnað að ræða með olíu-
kaupunum þar sem kostnaður
fylgir því að sigla til Færeyja.
Bent er á olíunotkun, slit á
tækjum og laun áhafna. „Einnig
má benda á þá óþörfu kolefn-
islosun sem þessar siglingar
hafa í för með sér.“
Gagnrýna
olíukaup
UNDANSKOT
Afurðaverð á markaði
23. febrúar 2022,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 436,16
Þorskur, slægður 487,91
Ýsa, óslægð 453,12
Ýsa, slægð 361,58
Ufsi, óslægður 273,78
Ufsi, slægður 320,89
Gullkarfi 326,24
Blálanga, slægð 375,76
Langa, slægð 297,21
Keila, slægð 142,50
Steinbítur, óslægður 172,61
Steinbítur, slægður 262,94
Skötuselur, slægður 801,22
Skarkoli, slægður 621,43
Þykkvalúra, slægð 986,83
Langlúra, óslægð 237,00
Sandkoli, slægður 91,00
Skrápflúra, óslægð 13,00
Bleikja, flök 1.792,33
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 1.385,25
Grásleppa, óslægð 205,00
Hlýri, óslægður 302,00
Hlýri, slægður 378,49
Hrogn/langa 94,00
Hrogn/þorskur 562,94
Hvítaskata, slægð 18,00
Lúða, slægð 980,10
Lýsa, slægð 10,00
Skata, slægð 40,60
Undirmálsýsa, slægð 66,00
Undirmálsþorskur, óslægður 234,33
Undirmálsþorskur, slægður 259,20