Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 12.995 kr. / St. 27-35 Vnr.: E-71276251142 12.995 kr. / St. 27-35 Vnr.: E-71276251094 NÝ SENDING AF BARNASKÓM FALLEGIR, VANDAÐIR OG ÞÆGILEGIR GÖTUSKÓR MEÐ GORE-TEX 13.995 kr. / St. 27-35 Vnr.: E-71172251094 13.995 kr. / St. 27-35 Vnr.: E-71172260381 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is „Mig hefur alltaf langað í fjölskyldu, alveg síðan ég man eftir mér. Þegar ég var um tvítugt þá ætlaði ég mér að eiga þrjú börn fyrir 27 ára aldur,“ segir Sif. Hún segir að það sé hálf- fyndið að hugsa til þess að hún hafi alltaf haft það á bak við eyrað að ef planið gengi ekki upp gæti hún feng- ið sér frostpinna eins og hún orðar það en þar á hún við tæknifrjóvgun. „Það var alltaf fyrsta val að gera þetta með maka en það bara gekk ekki upp. Sambönd gengu ekki upp.“ Sif byrjaði á að panta viðtalstíma hjá Art Medica „Mér fannst ég vera að renna út á tíma,“ segir Sif og bendir á að það sé vitað að frjósemi kvenna minnki eftir 35 ára aldurinn. Hún byrjaði á að láta kanna horm- ónabúskapinn. „Svarið sem ég fékk var að þetta væri allt í góðu eins og var en læknirinn ráðlagði mér að bíða ekkert með þetta of lengi. Í framhaldi af því þorði ég ekki að bíða of lengi. Þetta var alveg erfið ákvörðun. Þessi hugsun um að gefa barninu bara eitt foreldri var erfið, er ég að svipta því einhverju? Þetta var ekki auðveld ákvörðun þannig lagað,“ segir Sif um ákvörðunina. Var búin að safna „Það leið ekki ár þangað til ég fór í fyrstu meðferð og það heppnaðist í fyrstu tilraun,“ segir Sif sem var þó búin að gera ráð fyrir að það gæti tekið tíma að verða ólétt. „Ég var meira að segja búin að safna pen- ingum fyrir tveimur meðferðum ef ekki fleiri. Ég gerði alveg ráð fyrir því.“ Sif er eina foreldri sonar síns en bendir á máltækið að það þurfi þorp til þess að ala upp barn. Hún var til dæmis búin að ræða ákvörðunina við ættingja áður hún fór af stað. „Í fæð- ingunni var það ein elsta vinkona mín sem fór í gegnum hana með mér. Henni fannst þetta ótrúlega skemmtilegt tækifæri. Hún var búin að eiga tvö börn sjálf en þetta var í fyrsta skipti sem hún fékk tækifæri til þess að vera viðstödd fæðingu. Henni fannst þetta bara mjög spennandi. Mér veitti ekki af stuðn- ingnum, þetta var löng og erfið fæð- ing. Það veitti ekkert af að hafa ein- hvern með sér.“ Margt breyst á stuttum tíma Það eru sex ár síðan Sif var ólétt og segir hún margt búið að breytast síðan þá. „Ég held að viðhorfið sé búið að breytast síðan ég var ólétt. Ég man að þegar ég varð ólétt þá voru nokkrir aðilar sem létu aðeins í skína að þeim fyndist þetta ekki al- veg í lagi. Það var sérstaklega einn aðili en hann hafði verið rangfeðr- aður, þetta var aðallega út frá hans vandamálum. Í dag held ég að þetta sé mun algengara, við orðnar fleiri og fólk meðvitaðra. Fyrir sex árum voru þó flestir jákvæðir og fannst þetta áhugavert. Í dag eru hins veg- ar fæstir sem spá einu sinni í þetta og finnst þetta bara eðlilegt, á Ís- landi að minnsta kosti.“ Þekkir hálfbróður sinn Sif segir að sonur sinn sé ekki mikið að velta fyrir sér af hverju hann eigi ekki pabba og bara eina mömmu. Þau hafa meðal annars les- ið bók sem fjallar um þetta fjöl- skylduform. Bókin hefur hjálpað til við að útskýra fyrir barninu hvernig hann varð til. „Eina sem hann var ekki sáttur við var af hverju þetta var kallað baun en ekki barn en í bókinni er talað um baun í stað fóst- urs. Þetta hefur ekki verið neitt vandamál hjá honum að eiga ekki pabba, honum finnst það jafn eðli- legt að eiga eitt foreldri og að aðrir eigi tvo. Það hefur nú kannski hjálp- að til að hann á hálfbróður sem hann þekkir. Við erum tvær konur sem höfum notað sama gjafa. Við tókum þá ákvörðun að láta þá kynnast sem bræður. Við erum með opinn gjafa sem þýðir það að barnið fær nafn við 18 ára aldur en í millitíðinni erum við með númer. Í hópnum Einstökum mæðrum (Félag kvenna sem velja að eignast börn einar með tæknifrjóvg- un eða ættleiðingu) getur þú deilt gjafanúmerinu en það er engin skylda. Ég hafði sett mitt númer þarna inn. Gunnur, móðir bróður hans, hafði samband við mig og sagðist hafa notað sama gjafa og það eru ekki nema tveir mánuðir á milli þeirra. Þetta er bara frábært tæki- færi. Hvorug okkar er líkleg til að eignast fleiri börn þannig að þetta er sennilega þeirra eina tækifæri til að eignast systkini,“ segir Sif sem segir bræðurna líka en auðvitað einnig mjög líka mæðrum sínum. Þakklát og glöð Lífið hefur breyst síðan Sif varð móðir en hún taldi sig vita hvað hún var að fara út í. „Ég vissi að þetta yrði erfitt en ég vissi líka að þetta yrði gefandi. Það var í sjálfu sér ekk- ert sem kom á óvart enda var ég bú- in að undirbúa mig vel. Þetta er dásamlegt. Ég er mjög glöð að hafa getað valið þessa leið. Þó ég hafi sagt að eignast barn með maka hafi verið fyrsta val þá er ég mjög þakk- lát og glöð að hafa getað valið að fara þessa leið. Bæði þekki ég konur sem hafa reynt þetta og ekki tekist og svo eru karlmenn sem eru einhleypir sem langar að eignast fjölskyldu en það er ekki hlaupið að því fyrir þá.“ Sif hvetur konur til þess að bíða ekki of lengi með að fara af stað ef þær eru að hugsa um að eignast barn. Hún segir fyrsta skrefið að fara í viðtal og athuga hvernig stað- an á líkamanum er. „Bara ekki bíða of lengi. Maður er ekkert búinn að afskrifa ástina eða gefast upp þó maður fari þessa leið. Það getur allt- af komið síðar en þetta rennur út á tíma,“ segir Sif. Eðlilegt að eiga bara eitt foreldri Sif Símonar Ólafsson ákvað að eignast barn ein. Hún segir lífsklukk- una ekki standa í stað og er það ástæða þess að hún fór að íhuga sína möguleika 36 ára gömul. Fimm ára göml- um syni hennar þykir ekkert eðlilegra en að eiga eitt foreldri. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mæðgin Sif Símonar Ólafsson og Starkaður Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.