Morgunblaðið - 24.02.2022, Síða 36
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Hér fer Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir,
sem heldur úti matarblogginu
Döðlum & smjöri, á kostum en í
aðalhlutverki er einmitt nýi Royal-
búðingurinn sem rokið hefur út úr
verslunum frá því hann kom á
markað í byrjun febrúar.
Vatnsdeigsbollur
10-14 bollur
250 ml vatn
125 g smjör
125 g hveiti
4 egg
Stillið ofn á 180°C. Setjið vatn
og smjör í pott og leyfið smjörinu
að bráðna. Takið pottinn af hitan-
um og hrærið hveitinu saman við
þar til deigið er orðið einn massi,
kælið deigið örlítið. Setjið deigið í
hrærivélarskál og bætið eggjunum
út í einu í einu og hrærið vel á
milli. Setjið deigið þá í sprautu-
poka og sprautið bollur á smjör-
pappírsklædda plötu, eða notið
tvær teskeiðar til setja deigið á
plötuna. Bakið í 18-20 mínútur. Ef
þið viljið hafa bollurnar stærri þá
er tíminn aukinn í samræmi við
það.
Fylling
½ pk. Eitt sett Royal-búðingur
250 ml mjólk
250 ml rjómi
piparfylltar lakkrísreimar
Blandið saman Eitt sett-búðingi
og mjólk og hrærið vel saman, kæl-
ið. Þeytið rjómann og gott er að
setja hann í sprautupoka en ekkert
mál að setja á bolluna með skeið
líka. Skerið niður lakkrísreimarnar
í u.þ.b. cm bita.
Takið bollurnar og skerið þær í
tvennt. Ég mæli með Nusica-
súkkulaðismyrju til að gera hatt á
bollurnar, hita það örlítið í ör-
bylgju og dýfa. Það stífnar í full-
kominn bolluhatt að mínu mati.
Takið þá búðinginn og setjið 1-2
msk. af honum í botninn á bollun-
um, magn eftir stærð. Sprautið þá
rjómanum yfir og lokið bollunum.
Sáldrið þá lakkrísnum yfir boll-
urnar og berið fram.
Ef bollurnar eru ekki bornar
fram strax, geymið þær í kæli.
Bolla ársins 2022
Bolludagur er handan við hornið og margir nú þegar byrjaðir að
baka. Þrátt fyrir að hefðbundna rjómabollan með súkkulaði og sultu
sé sívinsæl þá hafa flipp-bollurnar löngu yfirtekið markaðinn og er
hugmyndaauðgi matarbloggara og hversdagsbakara með ólíkindum.
Besta blollan „Við erum sammála
heima hjá mér að bollur gerist ekki
mikið betri," segir Guðrún Ýr.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
Það er ekkert launungarmál að
ansi margir fóru á hliðina þegar
nýi Royal-búðingurinn kom í
verslanir. Búðingurinn er gerður
í samstarfi við Nóa Síríus og er
með Eitt sett-bragði, sem er
mögulega vinsælasta súkkulaði
landsins. Það skyldi því engan
undra að viðtökurnar hafi verið
framar björtustu vonun en að
sögn forsvarsmanna Royal hafa
sölumenn ekki haft undan að
fylla á búðinginn sem hafi selst
upp í hverri viku og stefnir óð-
um í sölumet. Sérstaklega séu
menn þar á bæ ánægðir með
samstarfið við Nóa Síríus, segir í
svari við fyrirspurn mbl.is.
Jafnframt er landsmönnum
lofað að nóg verði til fyrir bollu-
dag og því þarf ekki að hamstra.
Nýi búðingurinn sé fullkomin
fylling í bollur og einstaklega
góður með flestu enda smell-
passa súkkulaði og lakkrís alltaf
saman.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heitasti bollubúðingurinn Búast má við að nýi Eitt sett -búðingurinn
verði notaður sem fylling í ansi margar bollur í ár.
Selst upp í hverri viku
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
AYJA - K129
3ja sæta, 2ja sæta og stóll.
Margir litir af áklæði eða leðri.
Komið og skoðið úrvalið26. febrúar - 12.mars
Opið virka daga
10–18,
laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
ÞORSTEINN HELGASON
Sýning í Gallerí Fold
DANS LITANNA
Sýningaropnun laugardag 26. febrúar kl. 14