Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 24.02.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 24.02.2022, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 ✝ Ingibjörg Odds- dóttir, alltaf kölluð Bíbí, var fædd á Siglufirði 23. október 1943. Hún lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar 16. febrúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Oddur Vagn Hjálmarsson, fæddur 11.7. 1912 á Akureyri, dáinn 10.6. 1979 og Gunnfríður Frið- riksdóttir, fædd 24.8. 1920 á Nesi í Flókadal, dáin 4.11. 1996. Systkini Bíbíar eru: Erna Mar- 16.6. 1944. Foreldrar hans voru Stefán Guðmundsson, fæddur 5.8. 1914, dáin 15.12. 2002 og Hulda Stefánsdóttir, fædd 22.8. 1916, dáin 31.1. 2009. Börn Bíbíar og Stefáns eru: Gunnfríður, fædd 20.8. 1960, maki Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir, Hulda, fædd 23.11. 1962, maki Carl Simpson, börn Huldu eru Stephanie og Connie Rut. Linda, fædd 8.5. 1966, börn Lindu eru Brynja, Emilía og Ingibjörg. Hannes, fæddur 13.12. 1969, maki Birna Jenný Hreinsdóttir, börn þeirra eru Eva Rún, Helena, Gunnfríður Rakel og Jenný Lind. Barnabarn Hannesar og Birnu er Magnus, sonur Evu Rúnar. Útför Ingibjargar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 24. febrúar 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat grét Oddsdóttir, 20.5. 1937, dáin 13.5. 2020, maki Haukur Jónasson, fæddur 24.4. 1936, dáin 15.10. 2015. Hannes Oddsson, fæddur 26.12. 1939, maki Erna Frið- björg Einarsdóttir, fædd 8.5. 1945, dáin 24.1. 2006 og Haf- steinn Oddsson, fæddur 7.8. 1947, maki Sigrún Ásgeirsdóttir, fædd 5.5. 1951. Eftirlifandi maki Bíbíar er Stefán Páll Stefánsson, fæddur Mamma er farin, laus úr viðjum sjúkdóms sem svipti okkur henni fyrir löngu. Eftir standa minning- ar, minningar sem enginn getur tekið frá mér. Minningar um okk- ur mömmu saman á ferðalögum, þegar hún kom og dvaldi hjá okk- ur, hláturinn og sprellið, allt sem við brölluðum saman. Kveðja Þagna sumars lögin ljúfu litum skiptir jörðin fríð. Það sem var á vori fegurst visnar oft í fyrstu hríð. Minning um þann mæta gróður mun þó vara alla tíð. Viltu mínar þakkir þiggja þakkir fyrir liðin ár. Ástríkið og umhyggjuna er þú vina þerraðir tár. Autt er sætið, sólin horfin sjónir blindna hryggðar-tár. Elsku mamma, sorgin sára sviftir okkur gleði og ró. Hvar var meiri hjartahlýja hönd er græddi, og hvílu bjó þreyttu barni og bjó um sárin bar á smyrsl, svo verk úr dró. Muna skulum alla ævi, ástargjafir bernsku frá. Þakka guði gæfudaga glaða, er móður dvöldum hjá. Ein er huggun okkur gefin aftur mætumst himnum á. (Höf. ók.) Sé mömmu fyrir mér dansa í Blómabrekkunni með fólkinu sínu sem beið hennar þar. Þín elskandi dóttir, Gunnfríður (Gunný). Mamma mín er lögst til hinstu hvíldar eftir margra ára baráttu við hinn grimma sjúkdóm sem alzheimer er. Á sama tíma og það er sárt að sjá á eftir mömmu sinni og vita til þess að aldrei aftur fái ég notið kímni hennar sem henni tókst þó að halda í lengst af, þá er þakklætið ekki minna að loksins hafi hún fengið hvíldina. Í ellefu ár hefur þessi fallega og bráðskemmtilega kona smám saman horfið inn í sinn eigin heim og að lokum var svo komið að hún gat ekkert tjáð sig. Dætrum mínum finnst það kannski vafasamur heiður að ég skyldi hafa erft húmorinn henn- ar mömmu minnar en mér finnst það ekkert leiðinlegt. Það brást aldrei að þegar ég heimsótti hana þá gátum við tvær hlegið saman að eigin fyndni og dáðst að því hversu skemmtilegar við værum. En mamma var ekki bara fynd- in og skemmtileg, hún var einstak- lega hjartahlý og góð kona og um- vafði okkur systkinin kærleik sem hún síðar deildi ríkulega með barnabörnum sínum. Sjúkdómurinn var löngu farinn að lama mömmu áður en við átt- uðum okkur hverskyns var en lengi vel skildi ég ekki hvað hefði orðið af mömmu minni því það sem áður var sjálfsagður hlutur og henni svo eiginlegt hvarf hægt og bítandi. Smám saman hætti hún að biðja um barnabörnin sín í heimsókn, hringdi æ sjaldnar í okkur og þegar við komum norður í heimsókn gat maður ekki lengur stólað á að túnfisksalatið væri tilbúið og að hryggurinn væri kominn í afþíðingu inn í ísskápinn. Allt var svo skrýtið og skyndilega gat maður ekki lengur reitt sig á stuðning hennar þegar lífið gaf manni örlítið stærri verkefni en venjulega. Þegar ég bjó ég í Noregi tæpu ári eftir að mamma var greind, ákváðu mamma og pabbi að koma í heimsókn til mín. Ég bjó á stúd- entagörðum í eins herbergis íbúð með tvær dætur og við bættust pabbi og mamma og því var þröng á þingi. En minningarnar um þessa heimsókn munu ylja mér um ókomna tíð. Þetta var síðasta utanferð mömmu en henni fannst fátt skemmtilegra en að skella sér í sólina á Spáni og koma kaffibrún heim. Ég var því voða glöð að við skyldum fá sólríka daga meðan á heimsókninni stóð. Mamma lék á als oddi en á þessum tíma var sjúkdómurinn farinn að gera veru- lega vart við sig og maður gat ekki annað en hlegið að öllu bullinu í henni, óvitandi um að þetta var bara barnaleikur hjá því sem koma skyldi. Mamma var í eðli sínu mikil skvísa, alltaf vel tilhöfð og í fal- legum fötum. Þetta breyttist ekk- ert þó sjúkdómurinn tæki sér frekjulega bólfestu í henni. Það er þó ekki síst að þakka starfsfólki Sjúkrahúss Siglufjarðar hversu vel tilhöfð hún var fram á síðasta dag. Mamma mín var nefnilega svo heppin þrátt fyrir allt að þegar sjúkdómurinn var búinn að taka yfirhöndina og hún gat litla björg sér veitt og það ekki lengur á færi pabba að annast hana fékk hún að dvelja síðustu 5 ár ævi sinnar á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Þarna sýndi starfsfólkið mikla umhyggju og vakið og sofið yfir henni og fyr- ir það mun ég ævinlega vera þakk- lát. Hvíldu í friði, elsku mamma mín, ég mun varðveita minning- arnar um þig í hjarta mínu um ókomna tíð. Þín dóttir, Linda. Ingibjörg Oddsdóttir, Bíbí, tengdamóðin mín. Hún tók mér opnum örmum frá fyrsta degi. Gleði, hlátur, sprell og hnyttin tilsvör er það sem einkenndi Bíbí. Þannig mun ég muna yndislegu tengdamóður mína. Síðustu ár hefur Bíbí glímt við hinn illvíga sjúkdóm Alzheimer. Verið lokuð í eigin heimi þar sem við hin höfum ekki hugmynd um hvað gerist. Það er sárara en orð geta lýst. En ég trúi því að það sé glatt á hjalla í Blómabrekkunni, Bíbí hrókur alls fagnaðar, laus úr viðj- um þessa skelfilega sjúkdóms. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Með þökk fyrir allt. Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir. Við systkinin viljum minnast okkar yndislegu móðursystur sem nú er látin og komin til ömmu, afa og systur sinnar. Minningar okkar um Bíbí frænku eru svo margar og skemmtilegar og þegar við hugs- um um hana þá var alltaf stutt í brosið og glensið hjá henni, það var sko aldrei leiðinlegt að heim- sækja eða hitta frænku. Margar eru góðar minningar með mömmu og Bíbi, þá var mikið hlegið og enn getum við að hlegið þegar við rifj- um þessar minningar upp. Elsku Bíbi, nú líður þér vel og ert komin í sumarlandið og við vitum að þið systur hafið fallist í faðm og haldið uppi fjörinu í sumarlandinu. Við kveðjum þig elsku frænka með sorg og þakklæti fyrir sam- fylgdina sem var okkur mjög dýr- mæt hlý og gefandi. Elsku Stebbi, Gunný, Hulda, Linda, Hannes og fjölskyldur. Við vottum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi þig og hvíl í friði. Blessuð sé minning þín. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem) Fanney, Írís, Oddur og Nína. Ingibjörg Oddsdóttir ✝ Aðalheiður Guðfinna Magnúsdóttir fæddist í Reykja- vík 21. maí 1931. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 14. febrúar 2022. Foreldrar hennar voru Sess- elja Guðlaugs- dóttir frá Sogni í Kjós, f. 1891, d. 1951 og Magnús Jörgensson frá Gilsstöðum í Hrútafirði, f. 1879, d. 1968. Aðalheiður var einkabarn foreldra sinna. Þann 19.5. 1951 giftist Að- alheiður Einari B. Guðmunds- syni húsasmíðameistara, f. 5.10. 1926, ættaður frá Hellis- sandi, d. 12. mars 2010. For- eldrar hans voru Kristín Jón- asdóttir, f. 1903, d. 1971 og Guðmundur Einarsson, f. 1899, d. 1932. Börn Einars og Að- alheiðar eru: 1) Magnús Breið- fjörð, f. 9.8. 1949, kona hans 6) Lilja Sigurrós, f. 5.7. 1968, d. 9. sept. 2017. 7) Kristín Helga Björk, f. 28.10. 1969, maður hennar er Finnur Hreinsson, f. 12.6. 1964, þau eiga þrjár dætur og eitt barna- barn. Aðalheiður ólst upp í Reykjavík en árið 1959 fluttist hún ásamt eiginmanni sínum og börnum að Múla í V-Húna- vatnssýslu og hófu þau þar bú- skap en að auki vann Einar við smíðar. Þau byggðu sér síðan hús í Birkihlíð í Víðidal árið 1968 þar sem Einar rak tré- smíðaverkstæði til ársins 1974 er þau fluttu til Akureyrar. Árið 1981 fluttu Aðalheiður og Einar aftur til Reykjavíkur og bjuggu síðast í Árskógum 6. Aðalheiður vann meðal annars hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga, Kjötbúð Tómasar og Sláturfélagi Suðurlands ásamt því að sinna búskap á Múla, prjóna lopapeysur fyrir Ála- foss, sinna húsmóðurstörfum og barnauppeldi. Útför Aðalheiðar fer fram fyrir nánustu aðstandendur í Seljakirkju í dag, 24. febrúar 2022, kl. 15. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat er Katrín Bárð- ardóttir, f. 9.6. 1953. Magnús á 6 börn, 9 barnabörn og 2 barnabarna- börn, Katrín á 3 börn, 5 barnabörn og 1 barna- barnabarn. 2) Sesselja, f. 30.6. 1952, maður henn- ar er Óli Ólafsson, f. 24.4. 1949, þau eiga 3 börn og 5 barnabörn. 3) Guðmundur, f. 22.12. 1954, kona hans er Elísabet Þor- valdsdóttir, f. 9.8. 1963, þau eiga 2 syni og 2 barnabörn. 4) Gunnlaugur Valdimar, f. 6.8. 1956, kona hans er Esther Gísladóttir, f. 6.10. 1965, þau eiga einn son og 2 barnabörn, Gunnlaugur á fyrir tvo syni og 5 barnabörn. 5) Guðrún Bryn- dís, f. 13.11. 1960, maður hennar er Þorsteinn Garð- arsson, f. 19.11. 1962, þau eiga fjóra syni og þrjú barnabörn. Elsku mamma mín. Nú hefur þú farið í þá ferð sem við öll förum í að lokum. Mér finnst ennþá svo óraunverulegt að þú skulir vera farin og mikið ósköp var erfitt að geta ekki hitt þig áður en þú fórst. Þú hefur alltaf verið svo stór hluti af lífi mínu og vorum við mjög nánar. Þú kenndir mér svo ótal margt og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Alltaf var líka hægt að leita til þín með allt mögulegt, hvort sem það var að sauma gardínur fyrir mig, kenna mér að sauma út, prjóna, baka eða hjálpa mér með dætur mínar eða passa þær fyrir mig. Þú taldir aldrei neitt eftir þér og varst allt- af boðin og búin að hjálpa mér. Þú varst líka mikil dugnaðarkona, ég man varla eftir þér öðruvísi en alltaf að. Margs er að minnast en þín helstu áhugamál voru að prjóna, dansa og ferðast. Þú elskaðir að ferðast erlendis og fórst víða, en meira til Benidorm og Kanarí nú í seinni tíð, alveg þangað til þú varst orðin 84 ára en þá fórstu í þína síðustu ferð til Kanarí. Ég man mjög vel eftir fyrstu ferðinni sem ég fór í með þér og pabba ásamt Mumma bróður og Gunnu systur til Costa del Sol þegar ég var 9 ára og pabbi fór með mig í parísarhjólið. Ég var svo matvönd þá svo þú tókst með þér pylsur og kokteilsósu handa mér á milli þess sem ég fékk grillaðan kjúk- ling. Einnig eigum við Finnur og dætur okkar þrjár dásamlegar minningar með þér og pabba á Kanarí árið 2007. Ég gleymi því svo ekki hvað þú varst spennt yfir að kaupa þér hjólhýsi, orðin átt- ræð, til að vera með okkur þremur systkinunum og mökum á Hellis- hólum, það lýsir því vel hve fé- lagslynd þú varst, vildir helst allt- af vera þar sem var líf og fjör. Sækja þurfti hjólhýsið á Akureyri og keyrðu Óli mágur og Heimir hjólhýsið á Hvammstanga þar sem Finnur minn sótti það. Liðið var fram á kvöld þegar Finnur kom með hýsið í bæinn en þá varst þú sko tilbúin með ýmislegt dót sem átti að fara í húsið, svo spennt varstu að það gat ekki beðið til morguns, enda vildir þú yfirleitt ekkert bíða með hlutina. Við átt- um svo saman margar góðar minningar í nokkur ár á Hellishól- um. Ég kveð þig nú í bili, elsku mamma mín. Ég veit að pabbi hef- ur tekið vel á móti þér og nú eruð þið sameinuð á ný. Minning um yndislega móður mun lifa áfram í hjarta mér. Ég elska þig, mamma mín, bless að sinni. Þín dóttir, Kristín (Stína). Elsku mamma mín. Sárt er að geta ekki verið við- stödd útför þína í dag en ég er þó þakklát fyrir að hafa getað kvatt þig í síðustu viku. Kallið kom frek- ar snöggt þrátt fyrir áföllin í byrj- un mánaðarins, þú hefur staðið af þér ýmis áföll í gegnum árin og alltaf hrist þau af þér. Þú kvart- aðir aldrei yfir neinu, svo ótrúlega sterk og lífsglöð alla tíð. Nú ertu komin í sumarlandið góða, þið pabbi sameinuð á ný og getið nú dansað eins og ykkur fannst svo gaman að gera. Ég gleymi því seint þegar þú hélst upp á áttræð- isafmælið þitt og þú dansaðir eins og unglingur fram á nótt. Þú varst einstaklega dugleg og góð móðir, man þú saumaðir og prjónaðir allt á okkur börnin sjö fram á nætur með öllu öðru sem þurfti að gera. Þú gast aldrei setið aðgerðalaus smástund, þá voru prjónarnir teknir fram. Eftir að við börnin flugum úr hreiðrinu prjónaðir þú lopapeysur og seldir alveg þar til fyrir rúmu ári. Það er dýrmæt minning þegar við drifum okkur tvær til Kanarí fyrir 10 árum, þar áttum við yndislegar stundir sam- an. Þú hafðir svo gaman af því að rölta í búðir og skoða, fylgdist vel með tískunni og vildir alltaf vera fín. Sakna þín, elsku mamma. Minningin lifir, Guð og englar geymi þig. Þín dóttir, Sesselja (Silla). Elsku mamma er búin að kveðja eftir stutt veikindi. Dugn- aðarforkur alla tíð, stóð margsinn- is upp úr hverju áfallinu á fætur öðru undanfarið rúmt ár, fyrst á hjúkrunarheimilinu Eir og síðar á Skjóli. Þegar ég hugsa til mömmu kemur helst í hugann hjálpsemi, gestrisni, dugnaður og eljusemi. Hvað hún var dugleg á Múla að sinna afa, börnum og búi og sam- hliða bauð hún fram hjálp sína á nærliggjandi bæjum ef einhverjir þurftu á að halda. Hún sá um allt heimilishald, saumaði á okkur föt- in, bauð meira segja fram heimilið fyrir skólahald í sveitinni einn vet- urinn. Eitt þótti henni samt skemmtilegast og það var sauð- burðurinn á vorin. Þá vílaði hún ekki fyrir sér að standa vaktina með pabba í fjárhúsunum og hjálpa lömbunum í heiminn. Seinna þegar mamma og pabbi voru hætt búskap fóru þau að njóta lífsins, fóru í sína fyrstu ut- anlandsferð, sex landa sýn, árið 1974 og fóru reglulega eftir það í hverja ferðina á eftir annarri til að sækja sér kærkomna hvíld, sól og afslöppun og þeirra helsta áhuga- mál var nefnilega líka að dansa. Mamma var dugleg að virkja okk- ur systkinin í störfum innan heim- ilisins og má segja að hún hafi eig- inlega kennt mér flest sem ég kann við heimilisstörf. Ég var ekki há í loftinu, líklega bara um 8-9 ára þegar hún byrjaði að kenna mér að elda, vaska upp, baka, prjóna, sauma, strauja og bursta skó. Og eftir að ég fór að búa voru ófáar hringingarnar í hana til að fá góð ráð. Hún var alltaf boðin og búin að aðstoða við barnauppeldið hjá mér og passa strákana okkar með pabba þegar við Steini þurft- um pössun. Kom næstum daglega við hjá mér og aðstoðaði mig við tvíburana litla. Það var mikill missir þegar pabbi dó og ein- manalegt fyrir mömmu þó við systkinin reyndum að vera til staðar eftir fremsta megni. Þá voru þau nýlega flutt í Árskóga 6 og þar fann hún fljótlega fé- lagsskap við að spila vist og fór líka stundum með vinkonu sinni á sunnudagskvöldum að dansa hjá Félagi eldri borgara á meðan heilsan leyfði. Þess á milli sat hún með prjónana sína sem veittu henni dægradvöl alla hennar tíð. Elsku mamma mín, hafðu þökk fyrir allt. Ég mun ávallt búa að öllu því sem þú kenndir mér. Hinsta kveðja frá Gunnu Dís og fjölskyldu. Guðrún Bryndís Einarsdóttir. Aðalheiður Guð- finna Magnúsdóttir - Fleiri minningargreinar um Aðalheiði Guðfinnu Magnúsardóttir bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.