Morgunblaðið - 24.02.2022, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
50 ÁRA Elvar er Reyk-
víkingur, ólst upp í Voga-
hverfinu, en bjó einnig í
Iowa í Bandaríkjunum 6-8
ára og 9-11 ára á Ísafirði.
Eftir að hann sleit barns-
skónum bjó hann með fjöl-
skyldu sinni í Kaupmanna-
höfn 2000-2004 en eftir það
í Kórahverfinu í Kópavogi,
þar sem fjölskyldan
byggði sér heimili. Hann
er viðskiptafræðingur að
mennt frá Háskóla Íslands
og er með M.Sc.-gráðu frá
Copenhagen Business
School. Elvar er verk-
efnastjóri á Nýsköpunar-
og vísindasviði hjá HÍ.
Áhugamál Elvars eru
hestamennska, fótbolti og
útivist, og stundar hann
m.a. skíði, stangveiði og gönguferðir. „Ég hef alltaf verið með hestadellu og
byrjaði sjálfur að vera með hesta tvítugur og hef verið með þá síðan. Við
stundum hestamennskuna í landi Hælis í Gnúpverjahreppi þar sem tengda-
fjölskyldan á sumarbústað.“ Elvar fylgist mikið með fótboltanum og spilar
sjálfur bumbubolta. „Ég er mikill Þróttari og Liverpool-maður. Ég er búinn
að fara á tvo leiki með Liverpool. Sá 4-0 leikinn á móti Barcelona á Anfield og
5-0 leikinn á móti Man. Utd. á Old Trafford í haust svo ég er búinn að hitta
ágætlega á leikina.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Elvars er Kristín Steingrímsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur að mennt og þjónustustjóri hjá Heilbrigðislausnum Origo. Börn
þeirra eru Auðunn Orri, f. 1998, Steinunn Silja, f. 2002, og Andri Hrannar, f.
2008. Foreldrar Elvars eru Eiríkur Þorláksson, f. 1953, listfræðingur, bú-
settur í Mosfellsbæ, og Hallfríður Jónasdóttir, f. 1952, fv. forstöðumaður í Ís-
landsbanka, búsett í Vogahverfi í Reykjavík. Eiginkona Eiríks er Margrét
Þorkelsdóttir og eiginmaður Hallfríðar er Þórður Björnsson.
Elvar Daði Eiríksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er engin ástæða til að láta
hugfallast þótt á móti blási í dag. Þú færð
tilboð sem kemur huganum á flug.
20. apríl - 20. maí +
Naut Skilin á milli vináttu og ástar geta
stundum vafist fyrir fólki. Baktjaldamakk
er ekki þinn stíll. Komdu fram af heil-
indum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Umfram allt verður þú að gæta
þess að halda hlutunum í jafnvægi í dag.
Leyfðu þér að njóta kvöldsins í faðmi fjöl-
skyldunnar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú átt það svo sannarlega inni að
líta upp úr dagsins önn og gleðjast með
vinum og vandamönnum. Þú kemst að því
að þú átt góða nágranna.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að komast í smáfrí til að
endurnýja þig til sálar og líkama. Láttu
ekkert trufla bjartsýni þína.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er hætt við að spenna sem
hefur verið að safnast upp í þér að und-
anförnu brjótist fram í dag. Varastu að
senda öðrum misvísandi skilaboð.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það getur verið gaman að hafa
mannaforráð en gættu þess að fara vel
með vald þitt. Þú ferð fljótlega út fyrir
landsteinana.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Viðgerðir og endurbætur
verða í brennidepli á næstunni. Leiddu
hugann að því hvar þú kýst að vera eftir
nokkur ár og hvað þú þarft að gera til að
komast þangað.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú fæst við einhvern sem
segir eitt og gerir annað. Þú færð hól frá
yfirmanninum. Það fjölgar í fjölskyldunni á
árinu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nú geturðu ekki lengur þráast
við að framkvæma það sem þú veist innst
inni að er óhjákvæmilegt. Reyndu að gefa
þér tíma til að lyfta þér upp.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú átt bágt með að einbeita
þér að vinnunni þar sem áhyggjur af
einkalífinu skjóta upp kollinum. Haltu
áfram að sinna ættingja sem þarf hjálp.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur kjark til að ráðast í verk-
efni sem þú myndir ekki alla jafna leggja í.
Veldu að vera jákvæð/ur.
formaður hjá FKA og SVÞ og varð
varaformaður hjá FÍS, SA og Við-
skiptaráði. Þessi störf öll leiddu til
þess að ég fékk mýmörg tækifæri til
að hafa áhrif á það umhverfi sem at-
vinnulífið starfaði í. Ekki síst að auka
stórkaupmanna (FÍS, nú FA) og síð-
an hjá Félagi kvenna í atvinnurekstri
(FKA), Samtökum verslunar og þjón-
ustu (SVÞ), Samtökum atvinnulífsins
(SA) og Viðskiptaráði.
„Ég var svo lánsöm að fá að vera
M
argrét Kaldal Krist-
mannsdóttir er fædd
24. febrúar 1962 í
Reykjavík. „Ég tel
mig Vesturbæing
enda bjó ég flest æskuár í vesturbæ
Reykjavíkur.“
Margrét gekk í Melaskóla og
Hagaskóla, fór síðan í Verzlunarskóla
Íslands, þaðan í viðskiptafræði í HÍ
og síðan í framhaldsnám í Stetson
University í Bandaríkjunum þar sem
hún tók MBA árið 1991.
„Ég kannaðist við andrúmsloftið í
sjónvarpsþáttunum Verbúðinni enda
vann ég frá 12 ára aldri og þar til ég
lauk stúdentsprófi alltaf í fiski – fyrst
í humri í Vestmannaeyjum en síðan í
gömlu Bæjarútgerðinni úti á Granda.
Ástæðan var einkum að vinnan var
oft mikil og kaupið því gott og yfir
sumartímann var staðurinn fullur af
ungu fólki og því mikið fjör og
djamm. Ég vann því aldrei í fjöl-
skyldufyrirtækinu Pfaff fyrr en ég
kom heim úr framhaldsnámi tæplega
þrítug, en ákvað þá að „prófa“ í eitt
ár.“ En Margrét hefur verið þar síð-
an og tók við framkvæmdastjóra-
stöðunni árið 1994.
„Ég held að það sem hafi verið
fyrirtækinu til gæfu sé að þessar
þrjár kynslóðir sem hafa stýrt því
hafa rekið mjög ólík fyrirtæki. Ég
rek ólíkt fyrirtæki því sem pabbi
gerði og pabbi rak ólíkt fyrirtæki því
sem afi gerði. Við höfum verið
óhrædd við að henda út vöruflokkum
og taka inn nýja. Hver kynslóð þarf
að aðlaga fyrirtækið að sér og sínum
áhugamálum. Við tókum fyrir 20 ár-
um t.d. þá ákvörðun að framtíð fyrir-
tækisins lægi ekki í þessum týpísku
heimilistækjum sem við vorum að
selja, þvottavélum, kæliskápum og
þess háttar vörum. Við hættum því að
selja þær og keyptum í staðinn Borg-
arljós og erum stór í ljósum og jóla-
ljósum.“
Margrét hefur verið mjög virk í fé-
lagsmálum í gegnum tíðina. Hún tók
virkan þátt í félagslífinu í Versló og á
háskólaárunum tók hún þátt í JC-
hreyfingunni og keppti í mörg ár í
ræðumennsku. Í kringum 1999 fór
hún að sinna í hagsmunagæslu í við-
skiptalífinu, fyrst hjá Félagi íslenskra
tækifæri og sýnileika kvenna í stjórn-
un fyrirtækja, hafa áhrif á niður-
fellingu tolla og vörugjalda og þátt-
töku í gerð kjarasamninga og þeim
mörgu átaksverkefnum sem var ýtt
úr vör, ekki í síst í kjölfar hrunsins.“
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff – 60 ára
Fjölskyldan Birta Dís, Sigurjón, Margrét, Sindri Már og tengdadóttirin Helga.
Missir varla af leik með Liverpool
Á Bessastöðum Margrét með foreldrum sínum, Hjördísi og Kristmanni, eftir viðtöku fálkaorðunnar.
Hjónin Sigurjón og Margrét í einni
af mörgum golfferðum.
Til hamingju með daginn
Mikið úrval af
hálkubroddum
Verð frá Kr. 6.990.-
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
EYJAFJALLAJÖKULL
hlý dúnúlpa
Kr. 48.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES Merínó ennisband
Kr. 2.990.-
ATLI softshell buxur
Kr. 17.900.-
BRIMNES
meðalþykkir
göngusokka
Kr. 2.150
r
.-
HVÍTANE
Merínó lambhúshetta
Kr. 4.990.-
S
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
HVÍTANES Merino peysa
Kr. 13.990.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
SANDEY Flíshanskar
Kr. 2.990.-