Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
England
Burnley – Tottenham ........................... (1:0)
- Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í
leikmannahópi Burnley vegna veikinda.
Watford – Crystal Palace...................... (1:2)
Liverpool – Leeds.................................. (3:0)
_ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld.
Meistaradeild karla
16-liða úrslit, fyrri leikir:
Atlético Madrid – Manchester Utd...... (1:0)
Benfica – Ajax ........................................ (1:2)
_ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld.
Ítalía
B-deild:
Lecce – Cittadella.................................... 1:2
- Þórir Jóhann Helgason lék seinni hálf-
leikinn með Lecce en Davíð Snær Jóhanns-
son var ekki í hópi liðsins
_ Efstu lið: Brescia 47, Lecce 46, Cremo-
nese 46, Pisa 46, Monza 44, Benevento 43,
Frosinone 41, Perugia 41, Ascoli 39.
C-deild:
Virtus Verona – Renate.......................... 0:0
- Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Virtus Verona.
Algarve-bikar kvenna
Úrslitaleikur:
Svíþjóð – Ítalía ................................. (1:1) 7:6
_ Svíþjóð sigraði í vítaspyrnukeppni.
Leikur um þriðja sætið:
Noregur – Portúgal.................................. 2:0
Arnold Clark-bikar kvenna
Spánn – Kanada........................................ 1:0
4.$--3795.$
Olísdeild kvenna
HK – KA/Þór ........................................ 27:31
Staðan:
Fram 14 11 1 2 381:331 23
Valur 15 10 0 5 408:338 20
KA/Þór 14 9 1 4 385:362 19
Haukar 16 8 1 7 440:419 17
ÍBV 12 7 0 5 332:306 14
Stjarnan 15 7 0 8 385:388 14
HK 15 4 1 10 343:388 9
Afturelding 15 0 0 15 337:479 0
Olísdeild karla
KA – ÍBV............................................ frestað
_ Leikið kl. 17.30 í dag.
Afturelding – Selfoss............................ 32:31
Grótta – HK........................................ (21:19)
Fram – Valur...................................... (20:24)
Coca Cola-bikar karla
16-liða úrslit:
Hörður – FH...................................... frestað
_ Sigurliðið mætir Þór í 8-liða úrslitum.
Meistaradeild karla
A-riðill:
Aalborg – Elverum.............................. 32:27
- Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Aal-
borg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki fyrir
Elverum. Aron Dagur Pálsson var ekki í
hópnum.
B-riðill:
Kielce – Motor Zaporozhye................ 33:27
- Haukur Þrastarson skoraði ekki fyrir
Kielce en Sigvaldi Björn Guðjónsson lék
ekki vegna meiðsla.
_ Kielce 18, Barcelona 14, Veszprém 13,
París SG 12, Flensburg 9, Motor Zaporpz-
hye 8, Porto 8, Dinamo Búkarest 6.
Danmörk
Ringköbing – Ajax............................... 40:28
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 6 skot í
marki Ringköbing.
Aarhus United – Skanderborg .......... 32:28
- Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir
Skanderborg.
B-deild:
Gudme – Aalborg ................................ 24:34
- Sandra Erlingsdóttir skoraði 9 mörk
fyrir Aalborg.
Noregur
Bergen – Drammen............................. 25:37
- Óskar Ólafsson skoraði þrjú mörk fyrir
Drammen.
Svíþjóð
Skövde – Redbergslid ......................... 30:21
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5
mörk fyrir Skövde.
Sävehof – Lugi ..................................... 38:26
- Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Lilja Ágústs-
dóttir voru ekki í leikmannahópi Lugi.
Þýskaland
B-deild:
Aue – Hamm......................................... 25:26
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 5
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði eitt skot í marki liðsins.
Emsdetten – Bietigheim..................... 27:24
- Örn Vésteinsson skoraði eitt mark fyrir
Emsdetten en Anton Rúnarsson skoraði
ekki.
Dormagen – Coburg ........................... 23:23
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði ekki fyr-
ir Coburg.
%$.62)0-#
Danski knattspyrnumaðurinn
Mikkel Qvist sem hefur leikið með
KA undanfarin tvö ár er kominn í
raðir Breiðabliks. Hann hefur æft
með Kópavogsliðinu að undanförnu
og er kominn með félagaskipti
þannig að hann getur leikið með því
í næsta leik í Lengjubikarnum.
Qvist er 28 ára gamall, hávaxinn
miðvörður, sem hefur verið í láni
hjá KA frá Horsens en hefur einnig
leikið með HB Köge í Danmörku.
Hann hefur undanfarin tvö ár spil-
að 26 úrvalsdeildarleiki með KA og
skorað eitt mark.
Qvist kominn
í Breiðablik
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sterkur Mikkel Qvist er kominn í
raðir Breiðabliks frá KA.
Knattspyrnukonan Ana Paula Silva
Santos er gengin til liðs við Kefla-
vík. Santos skrifaði undir samning
sem gildir út keppnistímabilið við
Keflvíkinga en hún er fædd í Bras-
ilíu og hefur leikið í bandaríska há-
skólaboltanum undanfarin ár.
„Miki[ls] er vænst af leikmanninum
og hlökkum við mikið til að sjá
hana á HS-Orku vellinum í sumar!“
segir meðal annars í fréttatilkynn-
ingu Keflvíkinga en Keflavík hafn-
aði í áttunda sæti úrvalsdeild-
arinnar á síðustu leiktíð með 18
stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Ljósmynd/Keflavík
Framherji Santos kemur til Íslands
úr bandaríska háskólaboltanum.
Liðstyrkur í
Keflavík
VESTURDEILD NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Í upphafi keppnistímabilsins varð
ljóst að Phoenix Suns myndu verða
með í toppbaráttunni í Vesturdeild
NBA í körfubolta þar sem liðið komst
alla leiðina í lokaúrslitin í fyrra og
mætti til leiks með sama leik-
mannahópinn.
Flest vel rekin og þjálfuð NBA-lið
læra af slíkri reynslu og ef leik-
mannahópnum er haldið saman má
búast við að innri hvötin hjá öllum sé
að komast skrefi lengra næst.
Þetta erum við að sjá nú hjá Phoe-
nix.
Devin Booker og Chris Paul hafa
leikið firnavel og drífa liðið áfram
hvert kvöld, sem hefur leitt til þess að
nú hefur liðið tapað sjö leikjum færra
en nokkurt annað lið vestan megin og
ekkert því til fyrirstöðu að Suns vinni
deildina þar. Leikstíll liðsins minnir
mann á maskínu San Antonio Spurs á
meistaraárum þess liðs.
Forráðamenn Suns ákváðu samt
að fórna framtíðarvali í háskólaúrval-
inu fyrir skemmstu og náðu í tvo leik-
menn sem þjálfarinn, Monty Willi-
ams, vildi fá til að styrkja
varamannabekkinn. Þessi ákvörðun
var eflaust tekin með það í huga að
Paul er nú 36 ára, og þrátt fyrir að
hann hafi aldrei verið betri, er hug-
mynd þeirra hjá Suns að nú sé tíminn
að fórna öllu til að vinna fyrsta meist-
aratitil liðsins. Eins gott er að leik-
mannahópurinn haldi þessum góða
dampi áfram, en þeir verða að gera
það án Paul, sem meiddist í síðasta
leiknum fyrir Stjörnuleikinn og verð-
ur víst frá í sex til átta vikur eftir að
hafa brákast á hægri þumalfingri.
Golden State aftur í
meistarabaráttuna
Golden State Warriors hafa komið
mér á óvart í vetur með góðum leik.
Stephen Curry hefur verið – jú
Stephen Curry – það sem af er
deildakeppninni og Andrew Wiggins
hefur nú loks náð að sýna af hverju
hann var valinn númer eitt í háskóla-
valinu fyrir átta árum. Hann hefur nú
loks fundið rétta liðið fyrir persónu-
leika hans, en Wiggins er ekki náungi
sem er þægilegur í stöðu leiðtoga
liðsins eins og hann átti að vera í
fimm ár hjá Minnesota.
Afraksturinn er sá að Wiggins var
valinn í stjörnulið NBA í ár og eftir að
Klay Thompson hóf leik að nýju eftir
tveggja ára erfið meiðsl, má búast við
að Warriors verði með í toppbarátt-
unni þegar á hólminn kemur í vor.
Morant orðinn stórstjarna
Memphis Grizzlies og Utah Jazz
fylgja þessum liðum eftir. Memphis
er með ungt lið og Ja Morant er orðin
stórstjarna í deildinni. Grizzlies hafa
ekki nægilega reynslu í þessum leik-
mannahópi til að komast í loka-
úrslitin. Utah, með Rudy Gobert og
Donovan Mitchell sem stjörnur, ætti
að halda áfram að vera með í mynd-
inni þegar kemur til úrslitakeppn-
innar. Báðir þessir stjörnuleikmenn
eru með mikið keppnisskap og hæfni,
en það vantar enn nokkuð á hjá Utah
ef liðið ætlar sér að slá út Phoenix eða
Golden State í úrslitakeppninni.
Önnur lið virðast ekki líkleg að
blanda sér í baráttuna um toppinn í
Vesturdeildinni, og því færri orð sem
maður hefur um Los Angeles Lakers,
því betra.
_ Fyrri hluti greinarinnar var í
Morgunblaðinu í gær. gval@mbl.is
Sólirnar
stefna hrað-
byri á sigur
AFP
Phoenix Devin Booker hefur verið í lykilhlutverki hjá Phoenix Suns sem er
líklegast til að standa uppi sem sigurvegari í deildakeppni NBA í vetur.
- Phoenix á siglingu og minnir á
maskínu San Antonio Spurs
Bergdís Sveinsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir íslenska stúlknalands-
liðið í knattspyrnu þegar það sigr-
aði Sviss í vináttuleik í Miðgarði í
Garðabæ í gær, 4:1, eftir að hafa
verið marki undir í hálfleik.
Bergdís jafnaði á 58. mínútu og
kom Íslandi yfir á 75. mínútu og
þær Krista Dís Kristinsdóttir og
Kolbrá Una Kristinsdóttir bættu
við mörkum á 82. og 85. mínútu.
Þetta var fyrsti landsleikurinn
sem fram fer í Miðgarði, hinu nýja
fjölnota íþróttahúsi Garðbæinga,
en liðin mætast þar aftur á laugar-
daginn klukkan 14.
Morgunblaðið/Eggert
Tvö Bergdís Sveinsdóttir með boltann í leiknum gegn Sviss í Miðgarði í gær
en hún skoraði tvö fyrstu mörk íslenska liðsins í seinni hálfleiknum.
Skoruðu fjögur gegn Sviss
Rakel Sara Elvarsdóttir var marka-
hæst í liði KA/Þórs þegar Akureyr-
ingar unnu fjögurra marka sigur
gegn HK í úrvalsdeild kvenna í
handknattleik, Olísdeildinni, í
Kórnum í Kópavogi í gær. Leiknum
lauk með 31:27-sigri KA/Þórs en
Rakel Sara skoraði 8 mörk fyrir Ís-
lands-og bikarmeistarana.
Jafnræði var með liðunum til að
byrja með en Akureyringar sigur
fram úr um miðbik fyrri hálfleiks
og létu forystuna aldrei af hendi
eftir það.
Reyndustu leikmenn KA/Þórs,
Martha Hermannsdóttir og Rut
Jónsdóttir, skoruðu 6 mörk hvor en
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir
var markahæst í liði HK eins og oft
áður og skoraði 12 mörk.
KA/Þór fer með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar í 17 stig en
HK er með 9 stig í áttunda sætinu.
Þessi lið hafa tvívegis mæst á
skömmum tíma því á sunnudaginn
léku þau bikarleik á Akureyri og
hafði KA/Þór þá einnig betur. sport-
@mbl.is
Annar sigur KA/
Þórs gegn HK
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Markahæst Rakel Sara Elvars-
dóttir var illviðráðanleg í gær.