Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 Það er tilhlökkunarefni að fylgjast með leik karlalandsliða Íslands og Ítalíu í körfubolta sem fram í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Þar kemur tvennt til. Annars vegar er óratími síð- an íslenska landsliðið hefur spil- að á heimavelli en það þurfti að spila leiki sína á fyrri stigum keppninnar á útivöllum vegna heimsfaraldursins. Hins vegar er loksins hægt að stilla upp sterkasta landslið- inu sem völ er á, kannski að Kristófer Acox undanskildum. Það er kannski skrýtið að segja það, en sem betur fer er Martin Hermannsson ekki með Valencia í Euroleague í vetur, heldur í Eurocup. Þar með getur hann spilað með landsliðinu því leikir Evrópubikarsins rekast ekki á við landsleiki eins og í Euroleague. Elvar Már Friðriksson, Tryggvi Snær Hlinason, Jón Axel Guð- mundsson og Ægir Þór Stein- arsson eru allir að gera það gott með sterkum liðum í atvinnu- mennsku erlendis og Þórir G. Þorbjarnarson fer líka vel af stað á þeim vettvangi. Og ekki skemmir fyrir að fá Hauk Helga Pálsson aftur í liðið eftir fjarveru vegna meiðsla. Það munar heldur betur um hann. Áðurnefnd Euroleague, sterkasta deild félagsliða í heimi á eftir NBA, kemur Íslandi til hjálpar að þessu sinni. Ítalska liðið, sem varð í fimmta sæti á Ólympíuleikunum í fyrra, er lask- að þar sem sex leikmanna þess spila í Euroleague og einn í NBA. Þeir spila því ekki í þessum „glugga“, einmitt þegar Ísland mætir Ítalíu tvisvar. Við gætum átt fyrir höndum hörkuleik gegn einni af fremstu körfuboltaþjóð- um Evrópu. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is ég er ekki viss um að ég verði orð- inn fullfrískur fyrr en í haust. Þá er ég að tala um að ég verði búinn að endurheimta kraftinn að fullu. Lið- leikinn í ökklanum er hins vegar all- ur að koma og ég er farinn að geta beitt mér meira. En af því ég var svo lengi frá þá var krafturinn nán- ast horfinn. En þegar maður kemur til baka þá er þetta sem betur fer nokkuð fljótt að koma. Þeir hafa verið þolinmóðir gagnvart mér í Njarðvík og það hefur hjálpað.“ „Þetta verður barátta“ Haukur segir augljóst að Ítalía sé með hörkulið en hann telur Íslend- inga eiga möguleika ef íslenska liðið sýnir sínar bestu hliðar. „Þetta verður barátta. Ítalía er hörkulið og sterk körfuboltaþjóð. Ítalir eiga tvo til þrjá hörku- leikmenn í hverja stöðu. Ef við mæt- um rétt stilltir, og náum góðri frammistöðu þá, þá held ég að við getum gefið þeim leik. Ég er á þeirri skoðun að við getum stolið sigri,“ sagði Haukur en Ísland er í ágætri stöðu í riðlinum eftir tvær umferðir. Ísland hefur leikið tvo útileiki þar sem liðið vann Holland en tapaði fyrir Rússlandi. Ítalía hefur einnig unnið Holland og tapað fyrir Rúss- landi. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðil en með því myndi Ísland einnig hækka um styrkleikaflokk fyrir næstu undankeppni EM. „Já við erum í fínni stöðu eins og er. Kannski verður heimaleikurinn gegn Hollandi sá mikilvægasti fyrir okkur í riðlinum. En við getum kom- ið okkur betur fyrir með sigri á Ítöl- um. Við mætum í þennan leik með því í huga,“ sagði Haukur sem reiknar með því að spila í fjarkanum (staða kraftframherja) en Kristófer Acox gaf ekki kost á sér í leikina tvo gegn Ítalíu. „Ætli þetta verði ekki þannig að Tryggvi verði í fimmunni og ég spili í fjarkanum mest af þeim tíma sem ég er inn á. Svo erum við með alla þessa bakverði. En það hefur ekki verið gefið út. Við höfum æft tvisvar á dag síðan á mánudag og sá tími hefur nýst vel. Flestir í hópnum hafa verið að vinna saman reglulega síðastu árið en ég og Pavel [Ermol- inskij] erum orðnir hálfgerðir nýlið- ar aftur. Við höfum nýtt vikuna til að setja okkur vel inn í hlutina,“ sagði Haukur Helgi Pálsson enn- fremur. Fjallað var um íslenska hópinn í blaðinu á þriðjudaginn en einnig um Ítalina í blaðinu í gær. „Við getum stolið sigri“ - Haukur Helgi klæðist landsliðstreyj- unni á ný eftir þriggja ára fjarveru Ljósmynd/FIBA Herforinginn Hvað mun Craig Pedersen teikna upp gegn Ítölum í kvöld? HM 2023 Kristján Jónsson kris@mbl.is „Ég held að síðasti landsleikur sem ég spilaði hafi verið síðasti lands- leikur Jóns [Arnórs Stefánssonar]. Sigurleikur gegn Portúgal í Laug- ardalshöllinni sem var líklega árið 2019. Það er því orðið svolítið síðan en ekki vegna þess að mig hafi ekki langað að spila. Það hefur hist þann- ig á að það hafa alltaf verið einhver leiðindi þegar landsliðið á að spila. Ég hef verið meiddur, veikur eða eitthvað annað. Ég hef alltaf viljað gefa kost á mér vegna þess að mér finnst gaman að spila með landslið- inu,“ sagði Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, þegar Morgunblaðið spjallaði við hann í gær. Haukur er aftur kominn í landsliðshópinn eftir langa fjar- veru en Ísland tekur á móti Ítalíu á Ásvöllum í undankeppni HM í kvöld. „Ef maður getur hjálpað eitthvað, svona eins mikið og maður getur lík- amlega, þá er maður tilbúinn í það,“ sagði Haukur en hann var frá í hálft ár á síðasta ári og fór í aðgerð vegna ökklameiðsla. „Ég er á góðri leið en Íslendingaliðin Aalborg og Kielce styrktu stöðu sína í efstu sætum riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handknattleik í gær. Aron Pálm- arsson kom inn í leikmannahópinn hjá Aalborg á ný eftir meiðslin sem hann varð fyrir á EM en skoraði ekki. Liðið vann þægilegan fimm marka sigur, 32:27, gegn Elverum. Aalborg er með 18 stig í efsta sæti A-riðils og Kielce er með 18 stig í efsta sætinu í B-riðli en liðið vann 33:27-sigur gegn Motor. Sig- valdi Björn Guðjónsson lék ekki með vegna meiðsla. Aalborg og Kielce í efstu sætum Ljósmynd/Szilvia Micheller Álaborg Aron Pálmarsson er að verða leikfær eftir meiðsli í kálfa. Sandra Erlingsdóttir, landsliðs- kona í handknattleik, átti stórleik fyrir Aalborg þegar liðið vann öruggan sigur gegn Gudme á úti- velli í dönsku B-deildinni í hand- knattleik í gærkvöld. Leiknum lauk með 34:24-sigri Aalborgar en Sandra var lang- markahæst í liði Aalborgar með 9 mörk. Aalborg er í fjórða sæti dönsku B-deildarinnar með 20 stig en Sandra mun ganga til liðs við þýska 1. deildarfélagið Metzingen fyrir næsta tímabil. sport@mbl.is Sandra átti stór- leik fyrir Aalborg Morgunblaðið/Óttar Geirsson Danmörk Sandra Erlingsdóttir átti stórleik og skoraði 9 mörk. Subway-deild kvenna Breiðablik – Haukar............................. 57:96 Njarðvík – Keflavík ........................... (41:36) Valur – Fjölnir ................................... (48:24) _ Tveimur leikjum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. 1. deild kvenna ÍR – Aþena/UMFK .............................. 80:61 Tindastóll – KR..................................... 59:73 Staða efstu liða: Ármann 16 13 3 1301:1049 26 ÍR 15 12 3 1145:876 24 Snæfell 16 10 6 1167:1107 20 KR 16 10 6 1193:1109 20 Danmörk Aabyhöj – Falcon................................. 65:71 - Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 12 stig fyrir Falcon, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á 29 mínútum. >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Undankeppni HM karla: Ásvellir: Ísland – Ítalía ............................. 20 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Hlíðarendi: Valur – Fram.................... 19.30 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: KA-heimilið: KA – ÍBV........................ 17.30 Coca Cola-bikar kvenna, 8-liða: Eyjar: ÍBV – Stjarnan .............................. 18 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – Valur U.................... 18.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Víkin. Berserkir – Valur U .................. 20.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Hlíðarendi: Valur – Víkingur R........... 17.30 Leiknisv.: Leiknir R. – Kórdrengir ......... 18 Árbær: Fylkir – Selfoss ............................ 19 Í KVÖLD! Bikarmeistarar kvenna í körfu- knattleik í Haukum eru farnar að safna stigum nokkuð duglega í úr- valsdeildinni, Subway-deildinni. Haukar unnu í gær stórsigur á Breiðabliki, 96:57, í Smáranum og eru með 20 stig í fjórða sæti deild- arinnar eftir sautján leiki en Breiðablik er með 10 stig í sjötta sætinu. Haukar eru fjórum stigum á eftir Njarðvík og Fjölni en tveim- ur á eftir Íslandsmeisturum Vals. Bríet Sif Hinriksdóttir var stiga- hæst Hauka en hún skoraði 18 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoð- sendingar. Helena Sverrisdóttir skoraði 14 stig fyrir Hauka, tók sjö fráköst og gaf sjö stoðsendingar en Þórdís Jóna Kristjánsdóttir var stigahæst í liði Breiðabliks með 19 stig og þrjár stoðsendingar og Ísa- bella Ósk Sigurðardóttir tók 12 frá- köst. Haukar voru sterkari aðilinn strax frá fyrstu mínútu og juku for- skot sitt jafnt og þétt í leiknum. _ Njarðvík og Keflavík mættust í gærkvöld, sem og Valur og Fjölnir, en þeim leikjum var ekki lokið þeg- ar blaðið fór í prentun. Allt um þá á mbl.is/sport/korfubolti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Smáranum Eva Margrét Kristjánsdóttir úr Haukum leitar að skotfæri. Nálgast efstu liðin Gamli refurinn Einar Ingi Hrafns- son, fyrirliði Aftureldingar, kom til skjalanna á elleftu stundu og tryggði Aftureldingu sætan sigur á Selfossi í Olís-deild karla í hand- knattleik í Mosfellsbænum í gær- kvöldi. Afturelding sigraði 31:30 eftir mikla spennu. Í síðustu sókninni gekk Mosfell- ingum illa að finna gott skotfæri en Þorsteinn Leó Gunnarsson lét loks vaða fyrir utan. Vilius Rasimas varði í marki Selfyssinga en Einar var vel vakandi á línunni. Náði frá- kastinu og sendi boltann í netið rétt áður en leiktíminn rann út. Einar skoraði síðustu tvö mrk liðsins. Allt ætlaði vitlaust að verða að Varmá og Mosfellingar fögnuðu geysilega. Hægri skyttan Birkir Benediktsson var markahæstur með 8 mörk og var með frábæra skotnýtingu. Eftir erfið meiðsli virðist hann vera að ná vopnum sínum á ný. Blær Hinriksson og Þorsteinn skoruðu fimm mörk hvor. Einar Sverrisson var marka- hæstur hjá Selfyssingum með níu mörk og Guðjón Baldur Ómarsson skoraði átta en hann var með 100% skotnýtingu. kris@mbl.is _ Eyjamenn komust ekki til Ak- ureyrar í gær og því var leik KA og ÍBV frestað um sólarhring. Hann á að hefjast í KA-heimilinu klukkan 17.30 í dag. _ Fram mætti Val í Safamýri í gærkvöld og Grótta tók á móti HK í lykilleik fallbaráttunnar. Þeim leikjum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld en allt um þá má sjá á mbl.is/sport/handbolti. Sigurmark Einars Inga á elleftu stundu Ljósmynd/Þórir Tryggvason Fyrirliðinn Einar Ingi Hrafnsson skoraði sigurmark Aftureldingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.