Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
H
armur er sönn saga af því
hvernig sjúkdómurinn
vímuefnaneysla getur
sundrað fjölskyldum.
Móðir tveggja drengja, Guðný
(Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir), byrj-
ar aftur í neyslu sem hefur skelfileg-
ar afleiðingar ekki einungis fyrir
hana heldur alla fjölskylduna. Líf
eldri bróðurins, Ólivers (Ásgeir Sig-
urðsson), gjörbreytist á einu kvöldi
þegar Guðný býður fram yngri son
sinn, Hrafn (Jónas Björn Guðmunds-
son), í eiturlyfjasmygl til þess að
borga upp ógreiddar skuldir. Óliver
neyðist því til að fullorðnast hratt og
leita að bróður sínum í undirheimum
Reykjavíkur.
Harmur er frumraun tveggja
ungra og óþekktra kvikmyndagerð-
armanna, Antons Karls Kristensen
og Ásgeirs Sigurðssonar, og er til
marks um það að kvikmyndir eru
ekki einungis afsprengi hárra fjár-
upphæða heldur listræns metnaðar.
Sá sem heldur rétt á pennanum eða
tökuvélinni getur gert listaverk fari
hann rétt að. Aukið fjármagn kemur
ekki í staðinn fyrir vinnu listamanns-
ins heldur auðveldar hana. Harmur
var áhætta en þrátt fyrir takmarkað
fjármagn og litla reynslu ákváðu
Anton, Ásgeir og framleiðandi
myndarinnar, Halldór, að ráðast í
gerð kvikmyndarinnar og sem betur
fer. Fegurðin í Harmi felst í fjár-
magnsskortinum eða hvernig töku-
liðið þurfti að fara ýmsar útsmognar
leiðir til þess að mynda. Kvikmyndin
er þó ekki gallalaus og ef til vill hefði
verið hægt að koma í veg fyrir sum
mistökin með frekara fjármagni og
reynslumeira fólki en líklega hefði
hún tapað töfrum sínum í kjölfarið.
Það er einnig nauðsynlegt að ungt
fólk fái rými til að gera mistök í kvik-
myndageiranum til að þroskast og
vaxa sem listamenn.
Að mörgu leyti er Harmur mjög
týpísk norræn kvikmynd; hún tekst á
við þungt málefni, þ.e. fíkn, eins og
svo margir fyrirrennarar hennar,
hún er litlaus, hljóðið er oft mis-
heppnað og söguframvindan er hæg.
Þetta þurfa ekki endilega að vera
ókostir nema þá kannski í tilviki
hljóðsins en þeir eru ekki einir um
þetta vandamál. Svo virðist sem ein-
hver bölvun liggi yfir hljóðnemum
hérlendis. Þó má ef til vill túlka þess-
ar miklu sveiflur í hljóðinu sem list-
ræna ákvörðun. Lýsingin í kvik-
myndinni er hins vegar öðruvísi en
fólk er vant í norrænum kvikmynd-
um en hún er oft mjög stílfærð og
bætir miklu við myndina. Litirnir
blár og rauður eru mikið notaðir í
lýsingunni og er stillt upp sem
ákveðnum andstæðum. Rauð lýsing
er notuð í rýmum þar sem aðalper-
sónunni, Óliver, líður vel sem er yfir-
leitt í kringum litla bróður hans,
Hrafn. Blá lýsing er hins vegar notuð
þegar Óliver er í aðstæðum sem
hann vill ekki vera í. Persónusköp-
unin er einnig ólík því sem við þekkj-
um í hinum hefðbundnu íslensku
myndum. Hér er ekki um að ræða
harðbrjósta karlmann í krísu heldur
viðkvæman ungan mann sem veit
ekki hvernig hann á bregðast við í
nýjum og erfiðum aðstæðum. Mikl-
um tíma er eytt í að sýna þær tilfinn-
ingaflækjur sem Óliver gengur í
gegnum. Hann ber einnig með sér
marga „kvenlæga“ eiginleika sem
gerir persónuna raunverulegri enda
ómögulegt að framkvæma hina full-
komnu karlmennsku í raunveruleik-
anum þótt margar kvikmynda-
persónur reyni að fanga það. Þessu
eru stillt upp snemma í kvikmynd-
inni þegar Óliver mætir í vinnuna.
Úr víðu skoti sjá áhorfendur grann-
an líkama Ólivers í kringum mörgu
og stóru verkfærin á verkstæðinu.
Áhorfendur draga þá ályktun að Óli-
ver sé að fara að vinna á vélunum en í
staðinn tekur við atriði þar sem hann
er að þrífa klósettið á vinnustaðnum.
Óliver þarf einnig að stíga inn í hlut-
verk móðurinnar á heimilinu þar sem
Guðný, móðir hans, er óhæf.
Frásagnarframvinda Harms reyn-
ir ef til vill á þolinmæði margra
áhorfenda enda mörg atriðanna löng.
Áhorfendur eru látnir finna fyrir
tímanum sem getur í sumum til-
fellum reynst mikilvægt en það á þó
ekki alltaf við. Nokkur atriði þjóna
einungis þeim tilgangi að lengja
kvikmyndina, líkt og fimm mínútna
atriðið af fljúgandi umferðarljósum
eða þegar Natan (Mikael Kaaber),
vinur Ólivers, er að finna rétta dyra-
bjöllu í blokkinni. Atriði sem ættu að
vera hápunktur í myndinni eru mörg
hver of löng, sem gerir það að verk-
um að spennan tapast og myndin
verður flöt. Fjármagnsskortur setur
greinilega svip á myndina þar sem
fjöldi nærmynda bendir til að lítil
fjárráð hafi verið til að hanna stóra
og dýra leikmynd. Ljóst er að Anton
og Ásgeir sækja innblástur til
Safdie-bræðranna þar sem mikil
áhersla er lögð á nærmyndir en ólíkt
þeim tekst Safdie-bræðrum að halda
uppi spennunni jafnt og þétt í gegn-
um myndina og leika þar nærmyndir
lykilhlutverk.
Eitt atriðið í myndinni virðist
alfarið koma úr heiðskíru lofti en
þegar það er skoðað er ástæðan fyrir
atriðinu sú að myndin standist
Bechdel-prófið. Bechdel-prófið er
próf sem er ætlað að hjálpa okkur að
setja upp kynjagleraugun við kvik-
myndaáhorf og er mælistika á þátt-
töku kvenna í söguframvindunni. Til
þess að standast prófið þurfa tvær,
eða fleiri, konur að tala saman um
eitthvað annað en karla. Ljóst er að
höfundar Harms eru meðvitaðir um
þann gríðarlega meirihluta karla á
bak við tökuvélina og hafa því tekið
ákvörðun um að standast í það
minnsta Bechdel-prófið. Þetta er
gert með því að sýna atriði af tveim-
ur ungum konum, Ólöfu (Ugla
Helgadóttir) og Agnesi (Helga Sal-
vör Jónsdóttir) að tala saman um
áfengisdrykkju á leiðinni í teiti sem
Óliver er líka að mæta í. Atriðið þjón-
ar engum tilgangi í sögunni og skipta
þessar sögupersónur litlu sem engu
máli í kvikmyndinni. Eina skiptið
sem við sjáum Agnesi er í bakgrunni
í teitinu en Ólöf fær aðeins meiri
skjátíma í myndinni. Þetta er mjög
ódýr tilraun til þess að bæta upp
kynjaójafnvægið á bak við myndina
en kvikmyndaiðnaðurinn hérlendis
er mjög karllægur og þá ekki bara
við þessa kvikmyndagerðarmenn að
sakast.
Eflaust fælir viðfangsefni mynd-
arinnar þá áhorfendur frá sem eru
orðnir þreyttir á hinum þungu og
köldu norrænu sögum um neyslu en
ég hvet Íslendinga til þess að styðja
þessa ungu og efnilegu kvikmynda-
gerðarmenn og sjá myndina á bíó-
tjaldinu.
Þrátt fyrir fyrrnefnda vankanta er
hér um að ræða áhugavert og gott
byrjendaverk.
Drífandi drengir
Í bíó „Eflaust fælir viðfangsefni myndarinnar þá áhorfendur frá sem eru orðnir þreyttir á hinum þungu og köldu norrænu sögum um neyslu en ég hvet
Íslendinga til þess að styðja þessa ungu og efnilegu kvikmyndagerðarmenn og sjá myndina á bíótjaldinu,“ skrifar gagnrýnandi um kvikmyndina Harm.
Sambíóin
Harmur bbbnn
Leikstjórn: Anton Kristensen og Ásgeir
Sigurðsson. Handrit: Ásgeir Sigurðs-
son. Aðalleikarar: Ásgeir Sigurðsson,
Jónas Björn Guðmundsson og Ísgerður
Elfa Gunnarsdóttir. Ísland, 2022.
105 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR