Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við höldum uppteknum hætti frá því í fyrra að safna saman öllum glæpasögum á stórglæsilegt 16 metra langt borð,“ segir Bryndís Loftsdóttir, hjá Félagi íslenskra bókaútgefanda og framkvæmda- stjóri Bókamarkaðarins, sem opn- aður var í morgun í stúku- byggingunni á Laugardalsvelli og stendur til og með sunnudagsins 13. mars. Sem fyrr er Bókamarkaður- inn opinn alla daga milli kl. 10 og 21. Óheilindi, svik og prettir „Í ár gengur borðið með glæpa- sögunum undir yfirskriftinni: „Óheilindi, svik og prettir“. Það er Óttarr Proppé, verslunarstjóri Bók- sölu stúdenta, sem á heiðurinn af þessu nýja nafni. Það valt alveg fyrirhafnarlaust upp úr honum þeg- ar við ræddum saman um angist mína yfir því hvort kalla ætti þennan flokk krimma, spennu- eða glæpa- sögur. Ég hreifst svo af nafngiftinni að ég fékk leyfi hjá honum til þess að fá að nota hana. Það var auðfengið enda Óttarr uppeldisfaðir minni í bóksölubransanum frá því ég hóf störf hjá Máli og menningu sumarið 1991. Óheilindi, svik og prettir eru sívinsælt söguefni enda margslungið bókmenntaform sem gjarnan er flokkað niður í um 20 undirflokka. Það rímar skemmtilega við þá stað- reynd að í fyrra komu út um 20 nýj- ar íslenskar glæpasögur sem var nýtt met,“ segir Bryndís. Alls eru 5.893 titlar skráðir á Bókamarkaðinn í ár, sem skiptast þannig að 32% eru barnabækur, 27% fræðibækur, 15% þýdd skáldverk, 14% íslensk skáldverk, 6% ævisögur og 5% ljóð. Þjóð veit, ef þrír eru Að sögn Bryndísar eru merkingar á markaðinum í ár skreyttar með til- vitnunum úr fornsögunum. „Hand- ritin eru okkar píramídar og Pan- þeon. Handritasafn Árna Magnús- sonar er á varðveisluskrá UNESCO. En það er eins og við þorum ekki að nota þau og njóta þeirra, til dæmis í kringum ferðamannabransann og í opinberum byggingum. Það segir kannski meira en mörg orð að til að finna þessar tilvitnanir studdist ég meðal annars við norska heimasíðu,“ segir Bryndís og vísar þar til síðunn- ar https://heimskringla.no/wiki/ Fornir_málshættir_og_orðtök. „Ég þori auðvitað alls ekki að segja frá því að ég fann enga slíka gullorðabók fornsagnanna í íslenskri útgáfu. En mikið óskaplega var oft gaman að tvinna þessa andans snilld saman við þá bókaflokka sem hér er að finna. Ég vona svo sannarlega að þetta verði til þess að einhverjir vinni betur úr þessu efni eða slái um sig með línum sem þeir lærðu á Bókamarkaðinum,“ segir Bryndís. Meðal gullkorna sem rekast má á Bókamarkaðnum eru: „Hann stóð svo vel til höggsins“ úr Fóstbræðra sögu; „Jafnan er hálfsögð saga, ef einn segir“ og „Það verður tamast sem í æskunni nemur“ úr Grettis sögu; „Kemst, þó að seint fari“ úr Njáls sögu; „Oft er gott það er gaml- ir kveða“, „Vini sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf“ og „Þjóð veit, ef þrír eru“ úr Háva- málum; „Skömm er óhófs ævi“ úr Hrafnkels sögu Freysgoða; „Óhægt mun forlögin að flýja“ úr Vatnsdæla sögu; „Fall er fara heill“ og „Sjón er sögu ríkari“ úr Heimskringlu; „Hafa skal gott ráð, þótt úr refsbelgi komi“ úr Þorskfirðingasögu; „Allt kann sá sem hófið kann“ úr Gísla sögu Súrs- sonar og „Misjöfn eru morgun- verkin. Eg hef spunnið tólf álna garn en þú hefur vegið Kjartan“ úr Lax- dæla sögu. Barnabækur vinsælar Bókamarkaðurinn nú er sá fjórði sem haldinn er síðan heimsfaraldur- inn skall á snemma árs 2020 og því liggur beint við að spyrja hvort breyting hafi orðið á bókneyslu land- ands. „Sala á hannyrðabókum jókst mjög í kjölfar heimsfaraldurs þannig að á markaðinum í fyrra skapaðist hálfgerð þurrð. Það gladdi okkur því mikið að sjá að þó nokkrar nýjar prjónabækur hafa nú bæst á borðin. Við sáum sömuleiðis aukinn áhuga á alls kyns útivistarbókum um Ísland. Þar gætir víðfeðms fróðleiksþorsta hjá lesendum, bækur Ferðafélags Íslands rjúka út í bland við jarð- fræði, fuglafræði, sagnfræði og gönguleiðabækur að ógleymdri stór- bókinni Flóru Íslands. Barnabækur njóta alltaf mikilla vinsælda á Bókamarkaðinum og eiga gjarnan um 40% af heildarveltunni. Í fyrra settum við upp sérstakt borð með léttlestrarbókum fyrir 5-9 ára börn. Það gekk ljómandi vel og við stóraukum úrvalið í ár. Það er því til- valið að leyfa ungum og áköfum les- endum að heimsækja markaðinn og mikilvægt að gefa þeim góðan tíma til þess að skoða og velja sér bækur.“ Þess má að lokum geta að Bóka- markaðurinn verður næst opnaður á Akureyri í september. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eitthvað fyrir alla Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda nýtur mikilla vinsælda hjá landanum. Spök Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins. „Handritin eru okkar píramídar“ - Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda var opnaður í stúkubyggingunni á Laugardals- velli í morgun - Merkingar á markaðinum í ár skreyttar með tilvitnunum úr fornsögunum Hildur Loftsdóttir, kennari, rithöf- undur og blaðamaður, kennir ung- mennum íslensku í gegnum borð- spil og skemmtilega leiki á Borgar- bókasafninu í Kringlunni í dag kl. 16.00-17.30. Viðburðurinn er hluti af Tengivirkinu. „Í Tengivirkinu – Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku, í rólegu og notalegu umhverfi bóka- safnsins, lærir íslensku og fær fjöl- breytta fræðslu, auk þess að kynn- ast jafnöldrum með margvíslegan bakgrunn og reynslu. Alls eru átta viðburðir á dagskrá Tengivirkisins í vor, fjórir þar sem boðið er upp á fjölbreytta íslenskukennslu með reyndum kennara og fjórir þar sem gestir fá fræðslu og kynningar frá áhugaverðum aðilum, t. a.m. And- rými, róttæku samfélagsrými í Reykjavík og Landssamtökum íslenskra stúdenta, LÍS. Þátttaka er ókeypis og öllum opin, líka byrj- endum í íslensku,“ segir í tilkynn- ingu frá skipuleggjendum. Tengivirkið í Borgarbókasafninu í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Kennari Hildur Loftsdóttir rithöfundur. Tríó Inga Bjarna flytur nýja tón- list með áhrifum frá ýmsum stíl- um á tónleikum í Fríkirkjunni í dag kl. 12. Tón- leikarnir eru hluti af tónleika- röðinni Á ljúfum nótum. Hljóm- sveitina skipa Ingi Bjarni Skúlason tónskáld á píanó, Birgir Steinn Theodorsson á kontrabassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Tónleikarnir taka um hálfa klukkustund. Grímuskylda er á staðnum. Einn- ig er hægt að hlýða á tónleikana gegnum facebook-viðburð tónleika- raðarinnar Á ljúfum nótum í Frí- kirkjunni. Miðar eru seldir við inn- ganginn, en áhorfendur geta líka lagt inn á reikning kirkjunnar og rennur upphæðin til flytjanda. Bankanúmerið er: 0525-26-560170, kennitalan: 560169-4509 og skýr- ingin: Ingi Bjarni Trio. Tríó Inga Bjarna í Fríkirkjunni í dag Ingi Bjarni Skúlason ALLT AÐ AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM 70% FAXAFENI 14, 108 REYKJAVÍK WWW.Z.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.