Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 2

Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 2
Bjarni fékk kaldar kveðjur Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fékk kaldar kveðjur mótmælenda eftir ríkisstjórnarfund í gær. Bankasalan er þeim efst í huga. Fréttablaðið/Sigtryggur Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl 2022, kl. 18:00. Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara, Flatahrauni 3. Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf. Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2) Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu. 3) Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar félagsins og félagslegra skoðunarmanna, ásamt stjórnum og varastjórnum sjúkrasjóðs og orlofsheimilasjóðs. 4) Kosning 2ja manna í kjörstjórn og tveggja til vara. 5) Önnur mál. Stjórnin AÐALFUNDUR Hundaeigendur í Reykja­ vík geta farið að hlakka til komandi sumars, þar sem til stendur að stórbæta aðstöðu á hundasvæðum í borginni. erlamaria@frettabladid.is Samfélag „Við erum að prófa nýjar aðferðir á ýmsum sviðum og í sumar erum við að fara af stað með hunda­ átak,“ segir Þorkell Heiðarsson, deildarstjóri og umsjónarmaður Dýraþjónustu Reykjavíkur. „Fyrir áramót voru hundaleik­ tæki keypt fyrir hundasvæðin í borginni og verður þeim komið fyrir í vor. Við ætlum einnig að fylgjast með og sinna hundasvæð­ unum betur og koma upp nýjum ruslatunnum með hundapokum,“ segir Þorkell. Fyrir rúmlega ári var Hunda­ eftirlitið lagt niður og Dýraþjónusta Reykjavíkur stofnuð. Talsverðar breytingar áttu sér stað við stofnun þjónustunnar, meðal annars voru hundagjöld lækkuð og umsóknar­ ferli auðveldað. „Með því að lækka gjöldin vorum við að vonast til þess að nýskrán­ ingum hunda myndi fjölga, en frá því við tókum yfir hundaskrána í júní í fyrra hafa okkur borist um tvö hundruð nýskráningar,“ segir Þorkell. Fjölgunin sé þó ekki eins mikil og þeir hefðu viljað. „Í borginni eru um 2.300 hundar á skrá og á stórhöfuðborgarsvæðinu eru þeir í kring um 5.000. Það er þó erfitt að vita raunhæfa tölu. Ég held að allir átti sig á því, sem ganga um götur borgarinnar, að hundum hefur fjölgað mikið,“ segir Þorkell. Að sögn Þorkels er nauðsynlegt í takti við þessa fjölgun að skilgreina betur og kortleggja þau svæði þar sem lausaganga hunda er leyfð. Mörg svæði hafi hingað til verið illa skilgreind, en með nýrri hundasam­ þykkt sé tekið á þeim vanda. „Það var ákall frá hundaeigendum að fá skilgreiningu á svæðunum og einnig að fá leyfi fyrir tímabundna lausagöngu,“ segir Þorkell. Tímabundin  lausaganga gefur að sögn Þorkels möguleikann á því að hægt verði að skilgreina ákveðin svæði á ákveðnum tíma og leyfa lausagöngu þar. „Þá gætu hópar sótt um að fá að hittast með hundana sína til dæmis á Klambratúni á einhverjum ákveðnum tíma, sem gefur hunda­ eigendum meiri sveigjanleika,“ bendir Þorkell á. Þá standi til að gefa út kort þar sem lausagöngusvæði verði auglýst. „Það er næst á dagskrá og mun hjálpa til við að koma í veg fyrir ýmis vafamál sem við stöndum ósjaldan frammi fyrir, eins og til dæmis hvort hundar megi vera á göngustígum á lausagöngusvæð­ um,“ segir Þorkell. Kortin munu að mati Þor­ kels  boða meira frelsi öllum til handa, bæði hundaeigendum sem og fólki  sem stundi útivist í námunda við eða á slíkum svæð­ um. n Leiktæki fyrir hunda verða sett upp í borginni í sumar Skoski fjárhundurinn Max fékk að reyna nýju hundaleiktækin. Áætlað er að fyrstu tækjunum verði komið fyrir í næstu viku. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Ég held að allir átti sig á því, sem ganga um götur borgarinnar, að hundum hefur fjölgað mikið. Þorkell Heiðarsson, deildarstjóri og umsjónarmaður Dýraþjón- ustu Reykjavíkur kristinnhaukur@frettabladid.is úkraína Í gær birtist yfirlýsing frá rússneska sendiráðinu á Íslandi á Facebook þar sem Íslendingum er hótað vegna vopnaflutninga. Vísað er til f lutninga utanríkisráðuneyt­ isins á vopnum frá Ítalíu, Albaníu, Króatíu, Slóveníu og Portúgal. Yfirlýsingin fjallar ekki aðeins um Ísland heldur vopnaflutninga Bandaríkjamanna, Þjóðverja og fleiri. Þrettán flugferðir Íslendinga, á vegum Air Atlanta og Bláfugls eru þó sérstaklega nefndar. „Við vonum að íslensk stjórn­ völd geri sér grein fyrir neikvæðum afleiðingum þessara aðgerða,“ segir þar. „Við vekjum athygli á að Rúss­ land áskilur sér rétt til þess að líta á erlend hernaðargögn og búnað í Úkraínu sem löglegt skotmark.“ Í yfirlýsingunni er hins vegar ekki minnst á að íslensku f lugvélarnar f ljúga ekki með hernaðargögnin beint til Úkraínu. Heldur til austur­ hluta Póllands þaðan sem þeim er komið austur yfir landamærin. Þrýst hefur verið á íslensk stjórn­ völd að vísa Míkhaíl V. Noskov sendiherra úr landi. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð utanríkisráð­ herra hefur hefur sagst skilja þetta ákall. Þann 5. apríl sagðist hún ekki útiloka að vísa honum úr landi en síðan hefur ekkert gerst. n Sendiherra Rússa hótar Íslendingum Mótmæli Úkraínumanna við sendi- ráðið í gær. Fréttablaðið/Sigtryggur ari odduraevar@frettabladid.is lögreglumál Lög reglan á höfuð­ borgar svæðinu lýsti í gær eftir Svan­ hvíti Harðar dóttur, 37 ára. Síðast er vitað um ferðir Svan­ hvítar um klukkan þrettán á fimmtudag þegar hún fór frá heimili sínu á Völlunum í Hafnar firði. Að því er segir í tilkynningu er Svan­ hvít 167 sentímetra á hæð, sól brún með ljós litað rúm lega axlasítt hár. Svan hvít var  klædd í gráar jogging buxur og hettu peysu en ekki er vitað um lit peysunnar að sögn lögreglu, sem kveður hana hafa verið með hárið í háu tagli er síðast sást til hennar. Þau sem geta gefið upp lýsingar um ferðir Svan hvítar, eða vita hvar hana er að finna, eru vin sam legast beðin um að hafa tafar laust sam­ band við lög regluna í síma 112.n Lýst eftir konu úr Hafnarfirði Svanhvítar Harðar dóttur er saknað. 2 Fréttir 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.