Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 17
DAGSKRÁ Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður SFV, opnar fund Ávarp: Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Þrjú stutt erindi um framtíð velferðarþjónustunnar • María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistuheimilanna • Sandra Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands • Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna Pallborðsumræður, leiddar af fundarstjóra — Léttar veitingar í framhaldi af fundi Framtíð velferðarþjónustunnar MÁLÞING 26. apríl 2022 Kl. 14:30-16:00 Fundarstjóri er Gísli Einarsson Hrafnista Sléttuvegi Sléttuvegi 27 gar@frettabladid.is Finnland „Ég á von á að það berist umsókn frá Finnum um aðild að NATO í lok maí eða í síðasta lagi í júní,“ hefur vefútgáfa norska blaðs- ins Verdens Gang eftir Mikael Wigell, rannsóknarforstjóra hjá utanríkis- málastofnun Finnlands. Kveðst Wigell jafnframt vænta þess að Svíar fylgi fordæmi Finna og óski eftir aðild að NATO um leið eða strax í kjölfarið. Wigell kom til Nor- egs til að ræða við starfsfélaga sína um öryggismál á Norðurlöndum eftir innrás Rússa í Úkraínu. „Þrýstingur frá Rússum og tilraun til að hafa áhrif mun ekki breyta skoðun Finna eða hinu stjórnmála- lega ferli,“ fullyrti Wigell við VG. Hins vegar hafi hann áhyggjur af þrýstingi Rússa á hin þrjátíu núverandi NATO- löndin sem þurfa að samþykkja umsóknir Finna og Svía. Verdens Gang segir að aðeins Vinstriflokkurinn í Finnlandi hafi fallið frá fyrirvara sínum um að ganga úr stjórnarsamstarfinu verði Finnland meðlimur í NATO. Í Svíþjóð er gert ráð fyrir að hinn ráðandi Sósíaldemókrataflokkur lýsi sýn sinni á umsókn um NATO-aðild í lok næsta mánaðar. „Svíþjóð stendur frammi fyrir einni af stærstu ákvörðunum sínum í tvö hundruð ár,“ hefur VG eftir Björn Fägersten, sem leiðir starf sænsku utanríkismálastofnunarinnar gagn- vart samstarfinu í Evrópu. n Sérfræðingur segir NATO-umsóknir Finna og Svía á leiðinni birnadrofn@frettabladid.is FRaKKland Samkvæmt nýjustu könnunum hefur Emanuel Mac- ron, sitjandi forseti Frakklands, um 10-14 prósenta forskot á Marine Le Pen í forsetakosningunum sem fram fara í Frakklandi á morgun. Nærri þriðjungur franskra kjós- enda segist ekki ætla nýta atkvæði sitt í komandi kosningum eða hefur ekki gert upp hug sinn. Samkvæmt fréttastofu Reuters gæti sú stað- reynd haft áhrif á atkvæðafjölda Le Pen og niðurstöðurnar þannig komið á óvart líkt og gerðist þegar kosið var um útgöngu Breta úr Evr- ópusambandinu og þegar Donald Trump var kosinn forseti Banda- ríkjanna. Kannanir sýna að kosningaþátt- taka í forsetakosningunum gæti orðið á bilinu 72-74 prósent. Fari svo er það minnsta þátttaka í kosningu um forseta í Frakklandi síðan árið 1969. n Macron forseti enn með forystu Frakkar ganga til kosninga á morgun. Finnsk orrustuþota hefur sig á loft. Fréttablaðið/Getty erlamaria@frettabladid.is UmhveRFismál „Við erum mjög stolt af því að hljóta svo afgerandi viður- kenningu í þessari virtu alþjóðlegu keppni þar sem samkeppnin var hörð,“ segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, en fyrir- tækið vann til tvennra verðlauna í fyrri umferð XPRIZE Carbon Remo- val keppninnar í gær. Það er ekki ómerkari maður en auðjöfurinn og athafnarmaðurinn Elon Musk ásamt Musk Foundation sem efndi til verðlaunanna, en þeim er ætlað að veita hundrað milljónum Bandaríkjadollara til verkefna sem þykja líklegust til að ná árangri við föngun og förgun kolefnis. Í þess- ari fyrri umferð hlutu fimmtán lið hvert um sig eina milljón Banda- ríkjadala í verðlaunafé, en rúmlega ellefu hundruð umsóknir bárust í keppnina. n Carbfix tvöfaldur sigurvegari Edda Sif Pind Aradóttir er framkvæmda- stýra Carbfix. LAUGARDAGUR 23. apríl 2022 Fréttir 17Fréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.