Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 26
myndaðist ákveðinn balans. Ég veit að hinir strákarnir höfðu líka þörf á því að það væri ekki bara þessi harðkjarnamenning heldur blönduð menning.“ „Það sem var skrítið við þennan hóp er að sá sem var sterkastur og mesti slagsmálahundurinn hafði líka mestu þörf fyrir nánd og var með minnstu hómófóbíuna af okkur öllum. Þetta er ekki svart og hvítt. Hann var mjög mjúkur og góður strákur líka.“ Óhugsandi að halda áfram í skóla Guðmundur segir strákana að mörgu leyti hafa vantað stefnu. „Tilhugsunin um að halda áfram í skólakerfinu langt fram eftir full- orðinsaldri var í raun óhugsandi þegar við höfðum upplifað í mörg ár að það kerfi væri ekki fyrir okkur.“ Listin heillaði Guðmund en lítið var um skapandi greinar í náms- skránni. „Ég man eftir að hafa sótt um í leiklistarvali, fann þörfina til þess að komast út úr hlutverkinu sem ég var í en fékk ekki pláss. Ég var góður að teikna og gat gleymt mér í að skrifa sögur en það var aldrei inni í myndinni að maður gæti lifað á því að vera listamaður eða kvikmynda- gerðarmaður enda var kvikmynda- iðnaðurinn á Íslandi svo lítill.“ Annað var uppi á teningnum hjá systrum hans, sem Guðmundur horfði á úr fjarlægð skrifa ljóð og mála málverk og viðurkenndi ekki fyrir neinum að þetta væri það sem hugur hans kallaði eftir. „Síðan um 18 ára aldurinn dró ég besta vin minn með mér inn á stofnfund áhugaleiklistarfélags í Iðnskólanum og þá var í raun ekki aftur snúið fyrir mig. Ég heillaðist af leiklist, ljósmyndun, skrifum og nánast öllum listformum. Frelsið og það að geta gleymt sér í ljóð- rænum heimi var svo fallegt. Þegar ég svo horfði á mynd eftir kínverska leikstjórann Wong Kar Wai, Fallen Angel, áttaði ég mig á því að til var eitt listform sem sameinaði öll þau sem ég hefði áhuga á og það var kvikmyndaformið.“ Neitað í kvikmyndaskóla Guðmundur fór í myndlist í Listahá- skólanum og gerði tilraunakenndar stuttmyndir. „Ég reyndi svo að komast í kvik- myndaskóla en fékk alltaf neitun.“ Guðmundur kynntist Rúnari Rúnarsyni leikstjóra sem tók hann í starfsnám og hvatti hann áfram. „Rúnar sagði eitt sinn við mig setningu sem var rosalega sárt að heyra en þörf á þeim tíma. Eftir að hann hafði hitt mig margsinnis og ég var alltaf á leiðinni að fara gera mína fyrstu leiknu stuttmynd eftir handriti, sagði hann við mig að sumir töluðu um að gera stutt- myndir og aðrir gerðu þær. Það væri munurinn á þeim sem vildu og væru leikstjórar.“ Setningin stakk Guðmund og hann fann að hún átti við um hann. „Ég ákvað þá að drífa mig af stað og gerði Hvalfjörð, sem var frum- sýnd á Cannes og vann þar til verð- launa og opnaði möguleikann fyrir mig að gera mína fyrstu mynd í fullri lengd.“ Fullorðnir vissu lítið um okkur Ár ið 2016 kom út kvikmyndin Hjartasteinn eftir Guðmund, sem fjallar einnig um unglingsdrengi og vakti hún mikla athygli. En hvers vegna ætli þetta tímabil sé honum svo hugleikið? „Ég átti mjög litríka barnæsku og unglingsár og upplifði mig oft sem áhorfanda á vini mína og fullorðið fólk. Ég var mjög meðvitaður um hversu tvískiptur heimur unglinga og fullorðinna var. Í raun vissu full- orðnir mjög lítið um okkar heim. Ég man vel eftir því þegar heimur fullorðinna opnaðist fyrir mér og þau fóru að tala saman fyrir framan mig eins og þau gerðu þegar engin börn voru nærri. Ég var hissa á því að fullorðið fólk skyldi haga sér svona. Þegar ég fór að heyra full- orðna menn tala saman og hugsaði: „Þetta er bara eins og við tölum og ég er 16 ára og þeir fimmtugir.“ Hegðunin mátti ekki smitast Þegar Guðmundur fór að skrifa leitaði hann ítrekað í fjársjóðskistu unglingsáranna. „Maður þarf smá fjarlægð til að átta sig á því hversu mikill efniviður er í umhverfinu.“ Það var árið 2017 sem Guðmund- ur byrjaði að skrifa söguna á bak við Berdreymi og hefur ferlið frá fyrstu blaðsíðu að frumsýningu því verið fimm ár. Umfjöllun í Kastljósi RÚV í september 2020 um að ofbeldi ungl- inga á milli hefði aukist á árunum 2014 til 2018 varð til þess að Guð- mundur fann fyrir auknu mikilvægi myndarinnar. „Þannig tengdist hún unglingum í dag enn frekar.“ Það eru fjórir ungir drengir sem bera myndina uppi ásamt f leiri aukaleikurum af báðum kynjum. Hópurinn fékk sex mánaða þjálfun og undirbúning svo ferlið hefur bæði verið langt og strangt. „Þetta er heildarpakki, við erum að kenna þeim leiklist og viljum að þetta sé uppbyggilegt og skemmti- legt en þetta er líka vinna sem þarf að taka alvarlega. Við setjum stífar reglur um að allir þurfi að vera vinir og ef einhver virðir það ekki er hann látinn fara. Þetta er mikið agaferli og hentar betur krökkum sem hafa lært það, af til dæmis íþróttum, að undirbúningur skilar seinna árangrinum,“ segir hann. „Þessir strákar sem leika í mynd- inni eru ólíkir karakterum sínum, enda myndu þessir karakterar aldr- ei mæta í prufu,“ segir hann í léttum tón. „En hegðun karakteranna mátti ekki smitast til leikaranna og um leið og kameran hætti að rúlla var mikilvægt að þeir væru orðnir þeir sjálfir. Það mátti ekki taka neitt á milli. Við erum með krakka á við- kvæmum aldri sem eru ekki leik- arar og því þarf að kenna þeim og halda vel utan um þá.“ Lengra í land hjá körlum Kynferðisof beldi er tekið fyrir í myndinni og segist Guðmundur hafa viljað hafa það í handritinu enda sé það enn oft tabú fyrir stráka að ræða slíkt. „Ég veit um stráka sem lentu í slíku án þess að það væri nokkurn tíma talað um það. Það er mann- Guðmundur segir sig hafa dreymt fyrir skýrum hlutum og treystir innsæi sínu vel enda búinn að þjálfa það upp frá því í kringum tvítugt. Fréttablaðið/ Valli skemmandi og þeir þurftu að reka sig á veggi fullorðnir. Það er svo frá- bært að það sé farið að ræða þessa hluti og #MeToo er að breyta við- horfum okkar. En ég held að enn sé skömmin meira farin hjá konum og enn sé lengra í land hjá körlum.“ Talið berst að eitraðri karl- mennsku, hugtaki sem hefur verið töluvert í umræðunni hér á landi og erlendis en Guðmundur vildi óska þess að til væri betra nafn yfir hug- takið. „Mér finnst ekki rétt að setja orðið karlmennska við hlið orðsins eitrað því mörkin þar á milli verða oft mjög óljós í umræðunni og ekki alltaf á uppbyggilegan máta fyrir unga stráka. Kannski er það vegna þess að ég er alinn upp hjá mjög feminískri móður og tveimur systr- um, en það sem hefur stuðað mig í þessari umræðu er hvernig karl- mennska og karlmenn almennt eru settir í neikvætt samhengi, eins og að eðli okkar sé neikvætt. Eftir tíu ár er ég orðinn miðaldra hvítur karlmaður sem er orðið að níðyrði. Mér finnst það sjúkt fyrir samfélagið að það að vera miðaldra hvítur karlmaður sé eitthvað til að skammast sín fyrir. Mér finnst það ómannlegt.“ Áttum ekki að sýna veikleika Að því sögðu bætir Guðmundur við að hann hafi alist upp í samfélagi sem var stútfullt af gildum sem falli undir hugtakið. „Ekki síst þegar kom að því að ræða tilfinningar, samfélagslega áttum við sem strákar ekki að sýna veikleika. Ég þurfti alveg að venja mig á það í samböndum við fyrr- verandi kærustur, og núna unn- ustu mína, að tala um tilfinningar án þess að upplifa að ég væri að gera eitthvað rangt. Ég á enn smá erfitt með að opna mig alveg, það kemur ekki alltaf náttúrlega og þarf stund- um meðvitaða ákvörðun.“ Guðmundur á son á níunda ári, þriggja ára dóttur og fimmtán ára stjúpdóttur. Hann segist leggja sig fram við að ræða tilfinningar við börnin sín og sérstaklega son sinn. „Það kemur mér oft á óvart hversu góður hann er í þessu og það er móður hans sérstaklega að þakka.“ Hefur dreymt fyrir hlutum Andleg málefni, berdreymi og inn- sæi eru ákveðið stef í myndinni og segir Guðmundur slíkt alltaf hafa fylgt sér. „Við systkinin erum alin upp við að draumar og innsæi væri mikilvægur hlutur að læra inn á og ég er gífurlega þakklátur fyrir það núna.“ Guðmundur bendir á að slík trú sé algengari en margir telji, eins og komið hafi fram í könnun félagsvís- indasviðs Háskóla Íslands um mál- efnið árið 2008. „Þar kemur fram að 40 prósent þjóðarinnar sögðust hafa upplifað það að vera berdreymin og 60 pró- sent þjóðar hafi skynjað hluti sem síðan gerðust. Ég held að bless- unarlega séu Íslendingar tengdari þessum hluta af sér og það er afar jákvætt.“ „Mig hefur dreymt fyrir skýrum hlutum en það þýðir ekki að allir draumar hafi þýðingu. Skýrasta svona dæmið er líklega þegar ég var nýbúinn með Hjartastein og vaknaði upp klukkan fjögur um nótt með þessa sterku tilfinningu um að ég yrði að hringja í mömmu.“ Guðmundur segist hafa túlkað til- finninguna sem órökrétta enda mið nótt og því hafi hann reynt að sofna bara aftur en ekki tekist. „Þetta togaði í mig. Ég hringdi svo í mömmu sem svaraði ekki svo ég reyndi aftur að sofna án árangurs. Á endanum fór ég út í bíl og keyrði heim til hennar.“ Þegar Guðmundur kom að húsi móður sinnar um blánóttina sá hann hvernig rauk úr kjallaranum. „Þá hafði hitavatnsrör sprungið og heitt vatn flætt um allt. Ég vakti þá mömmu sem var steinsofandi. Það hefði allt eyðilagst ef ég hefði ekki komið. Ég er ekki að vakna um miðja nótt og finna svona án ástæðu.“ Guðmundur trúir og treystir innsæinu sem hann segir okkur öll geta þjálfað. „Til að tengjast innsæinu er mikil- vægt að vera samkvæmur sjálfum sér. Hluti af því er að vera ekki í óreglu og passa til dæmis vel upp á svefninn.“ Guðmundur leitaði af tur í æskuár sín til að skapa sögu sinni vettvang og ramma en leyfði svo skáldskapnum að fylla í eyðurnar. Á tímum þar sem karlmennskan er í ákveðinni endurskilgreiningu og ungir strákar eiga oft erfitt með að fóta sig á mótum töffaraskapar og tilfinninga, er mikilvægasta stefið líklega vinátta, kærleikur og sam- staða. n Í svona strákahóp myndast hollustu- kerfi og hluti af því er að styðja hvern annan. Það vantaði eflaust upp á stuðning- inn heima hjá mörg- um.  26 Helgin 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.