Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 47
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir
leiðtoga um sjálfbæra þróun
Forsætisráðuneytið leitar eftir leiðtoga til að leiða samhæfingu verkefna á sviði sjálfbærrar þróunar og
réttlátra umskipta. Um er að ræða nýtt starf og hefur viðkomandi tækifæri til að koma að mótun verkefnisins.
Meðal áhersluatriða er mótun stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun, samvinna við sveitarfélög og við aðila
vinnumarkaðarins um réttlát umskipti og samhæfing ólíkra ráðuneyta við eftirfylgni aðgerðaáætlunar í
loftslagsmálum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig
umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur framlengdur til og með 2. maí 2022. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu; bryndis.hlodversdottir@for.is
Helstu verkefni
• Hafa yfirumsjón með verkefninu og leiða
þróun þess.
• Móta markmið, áherslur og forgangsröðun
verkefna.
• Tryggja framkvæmd og framgang verkefna.
• Veita upplýsingar um stefnu og verkefni
sjálfbærs Íslands.
• Undirbúa fundi stýrihóps og samráðs-
vettvangs verkefnisins, sem og að annast
önnur samskipti eins og við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla af störfum sem tengjast
hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
• Þekking á loftslagsmálum, réttlátum umskiptum og
velsældaráherslum.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og drifkraftur.
• Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfileikar.
• Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu
norðurlandamáli.
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg.
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
Byggingarstjórum
Trésmiðum
Trésmíðanemum
Verkafólki
VIÐ LEITUM AÐ Við óskum eftir öflugu fólki með
tæknimenntun sem nýtist í starfi og
reynslu af byggingarframkvæmdum.
Einnig leitum við að faglærðum trésmiðum,
trésmíðanemum og duglegu verkafólki til
ýmissa starfa á verkstöðum okkar. Mikil
vinna fram undan við fjölbreytt verkefni.
J.E. Skjanni byggingaverktakar eru alhliða
verktakafyrirtæki sem hefur víðtæka reynslu af
hvers lags verkefnum á sviði nýbygginga, viðhalds,
byggingar- og verkefnastjórnunar og samþættingar
verkþátta þar sem margir verktakar koma að málum.
Auk þess að byggja íbúðir og atvinnuhúsnæði sinnir
J.E. Skjanni verktöku fyrir aðra.
Markmið J.E. Skjanna er að skila ávallt vönduðu
verki. Mörg spennandi verkefni eru í framkvæmd og
undirbúningi. Má nefna íbúðar- og hótelbyggingu
við Pollinn á Akureyri, kennileitishús í Urriðaholti
auk nútímalegs fjölbýlishúss við Áshamar í Hafnarfirði.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir og ferilskrár
á netfangið postur@skjanni.is
VIÐ BYGGJUM TIL FRAMTÍÐAR BYGG I N G AV ER K TA K A ROkkur vantar gott fólk
við spennandi byggingarverkefni
á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri
ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 23. apríl 2022