Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 35
Landeldi leitar að öflugum yfirmanni eldismála.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Ábyrgð á lífmassa og daglegum rekstri stöðvar.
• Innra eftirlit, gæðastjórnun og smitvarnir stöðvar.
• Þátttaka í uppbyggingu stöðvar.
• Starfsmannahald og starfsþjálfun í samvinnu við mannauðsstjóra.
• Áætlanagerð, skráningar og skýrslugerð.
Hæfniskröfur:
• Nám í fiskeldisfræðum.
• Reynsla af sambærilegu starfi og bakgrunnur í fiskeldi.
• Stjórnunarreynsla er æskileg.
• Frumkvæði og drifkraftur.
• Metnaður fyrir sjálfbærni og umhverfisvernd.
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hefur
Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is).
Yfirmaður laxeldis Landeldis
Landeldi er framsækið nýsköpunarfyrirtæki
sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi,
og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands
á sjálfbæran hátt. Landeldi starfrækir
þegar seiðaeldisstöð við Hveragerði og
vinnur að uppbyggingu laxeldisstöðvar
við Þorlákshöfn. Verkefnið nýtur afburða
aðstæðna í Ölfusi þar sem gott aðgengi
er að landrými, umhverfis vænni orku
og ekki síst ferskvatni og sjóvatni við
kjörhitastig fyrir laxeldi. Félagið hefur lokið
umhverfismati og hefur öðlast öll leyfi til að
ala árlega um 6.500 tonn af laxi á landi, en
markmið félagsins er að framleiðslugeta
félagsins verði á endanum 33.500 tonn á
ári. Ársvelta Landeldis þegar fullri fram
leiðslugetu verður náð er áætluð um 2530
milljarðar króna. Hjá Landeldi starfa nú um
30 starfsmenn en áætlað er að þeir verði á
annað hundrað innan fárra ára. Hluthafar
Landeldis eru um 50 talsins en stærsti
hluthafinn er fjárfestingafélagið Stoðir hf.
Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is
Norðurál leitar að framsýnum og metnaðarfullum
einstaklingi, sem hefur brennandi áhuga á fræðslu
málum, til að sinna skemmtilegum verkefnum í um
hverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Fræðslustjóri er hluti af öflugu teymi á mannauðssviði.
Fræðslustjóri
Nánari upplýsingar, s.s. um menntunar- og hæfniskröfur, veita Jensína K.
Böðvars dóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.
is) í síma 552 1212. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðar mál. Starfið hentar öllum kynjum. Æskilegt er að viðkomandi hefji
störf sem fyrst. Starfsstöð er á Grundartanga, en starfsfólki bjóðast ferðir til
og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí næstkomandi.
Sótt er um á www.vinnvinn.is.
Starfssvið og viðfangsefni: Skipulag og stjórnun fræðslu og
þjálfunar, þarfagreining, gerð fræðsluáætlana, innleiðing og
eftir fylgni. Fræðslustjóri sinnir innleiðingu rafrænnar fræðslu,
stöðugum umbótum á sviði fræðslumála og veitir starfsmönnum
og stjórnendum ráðgjöf.
Jafnlaunaúttekt
PwC 2020
Framtíðin er spennandi í álframleiðslu á Íslandi og mun fram-
þróun grænnar álframleiðslu hafa raunveruleg áhrif á útblástur
gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 23. apríl 2022