Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 18
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Íslands-
banka-
salan á
dögunum
er enn eitt
dæmið um
góðvina-
væðingu
þar sem
innherja-
upplýs-
ingar rata
til sinna.
Kaup-
endur voru
handvaldir.
Klíkan var
látin vita.
Gervi-
dómar eru
samfélags-
mein sem
ekki aðeins
háir vef-
verslun.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Vandræði Orlando Figes, eins þekktasta sagn-
fræðings Bretlands, hófust með bókardómi
á Amazon. Gagnrýnandinn, sem gekk undir
dulnefninu Sagnfræðingurinn, gaf bók Figes
um Stalín fimm stjörnur og sagðist vona að
höfundurinn héldi áfram að skrifa bækur um
„alla eilífð“.
Ekki hlutu þó allir náð fyrir augum gagn-
rýnandans. Bækur helstu keppinauta Figes
fengu aðeins eina stjörnu. „Maður veltir fyrir
sér hvort nokkuð hefði átt að skrifa þessa
bók,“ sagði gagnrýnandinn um verk Rúss-
lands-sérfræðingsins Rachel Polonsky. „Illa
skrifuð og leiðinleg bók,” sagði hann um rit
sagnfræðingsins Robert Service.
Polonsky og Service grunaði strax að
maðkur væri í mysunni. Eftir stutta eftir-
grennslan töldu þau víst að gagnrýnandinn
væri enginn annar en sjálfur Orlando Figes.
Figes brást ókvæða við ásökuninni. Hann
réði sér lögfræðing og hótaði þeim kollegum
og blaðamönnum meiðyrðamáli sem vændu
hann um að vera Sagnfræðinginn.
Ekki leið þó á löngu uns spilaborgin féll.
Með nokkrum músarsmellum á Amazon
tókst Polonsky og Service að sýna fram á svo
ekki varð um villst að dularfulli bókagagn-
rýnandinn væri tengdur notandareikningi
Orlando Figes. Figes brá á það ráð að kenna
eiginkonu sinni um skrifin. Fáir trúðu undan-
brögðunum og nokkrum dögum síðar játaði
Figes sig sekan.
Frá því að Orlando Figes skrifaði gervidóm
um sjálfan sig árið 2008 hefur vefverslun í
Bretlandi þrefaldast. Ný könnun sýnir að 97
prósent þeirra sem versla á netinu reiða sig á
gagnrýni annarra við val á vörum. Slíkt getur
þó reynst þrautin þyngri.
Undanfarin ár hefur gervidómum snar-
fjölgað á vefsíðum eins og Amazon. Gerðist
það í kjölfar þess að hægt varð að kaupa
góðan dóm um vöru eða þjónustu fyrir
aðeins 2.500 krónur. Bresk stjórnvöld kynntu
í vikunni nýtt lagafrumvarp sem ætlað er að
vernda neytendur. Verður það senn ólöglegt
að kaupa slíka gagnrýni.
Gervidómar eru samfélagsmein sem ekki
aðeins háir vefverslun. Könnun Fréttablaðs-
ins í vikunni sýndi að 83 prósent landsmanna
eru óánægð með fyrirkomulag sölu Íslands-
banka sem fram fór í mars. En þrátt fyrir að
þjóðin hafi gefið sölunni falleinkunn má víða
lesa um hana fimm stjörnu dóma.
„Útboð ríkisins á 22,5 prósenta hlut í
Íslandsbanka á dögunum var vel heppnað“
(Fréttablaðið, 30. mars). „Útboðið afar vel
heppnað“ (Mbl.is, 6. apríl). „Að öllu leyti vel
heppnað útboð“ (Hringbraut, 13. apríl). „Segir
að salan hafi í heildina heppnast vel“ (Ruv.is,
19. apríl).
Breska fréttaveitan BBC fjallar um gervi-
dóma á Amazon og leiðbeinir neytendum um
hvernig megi greina þá frá alvöru umfjöllun.
Eitt helsta viðvörunarmerkið er sagt svipað
orðalag.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og
ábyrgðarmaður sölu eignarhlutar ríkisins í
Íslandsbanka, er eins og Orlando Figes. Hann
gefur sjálfum sér fimm stjörnur og segir að
ef horft sé á heildarniðurstöðuna hafi þetta
„allt heppnast mjög vel“. Að sama skapi gefur
hann kollegum sínum í stjórnarandstöðunni
aðeins eina stjörnu og segir að málflutningur
hennar sé „beinlínis rangur“.
Stjórnvöld í Bretlandi reyna nú að koma í
veg fyrir að breskir neytendur kaupi köttinn
í sekknum. Á sama tíma reyna stjórnvöld
á Íslandi að selja almenningi fimm stjörnu
dóm um bankasölu sem fór í hund og kött.
Bretar vinna að því að laga ágalla í kerfinu,
Amazon-svindlurum til armæðu. Íslensk
stjórnvöld þylja upp gervidóma í stað þess
að draga lærdóma. Hávær krafa er hins vegar
komin fram um að Alþingi setji á fót rann-
sóknarnefnd um bankasöluna sem nýta megi
til að bæta ferlið. Aðeins þeir sem hafa hag af
fimm stjörnu fúski setja sig upp á móti slíkri
ráðstöfun. n
Fimm stjörnu fúsk
DRAUGASÖGUR
MÁNUDAGA KL. 19.00
OG AFTUR KL. 21.00
Ætli það hafi ekki verið á upphafs-
tíma fyrstu ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar fyrir rétt rífum þrjá-
tíu árum sem stjórnvöld afréðu
upp á eigin spýtur að lækka
vexti á ríkisvíxlum sem einhverra hluta vegna
skyldi taka gildi á hádegi daginn eftir, en ekki
samdægurs og ákvörðunin var tekin.
Að morgni dags voru góð ráð dýr. Þeir sem
vissu af vaxtalækkuninni í innsta hring stjórn-
valda notuðu tímann fram að hádegi til að láta
vildarvini sína vita af því sem var í kortunum
svo þeir gætu hagnast auðveldlega.
Og góðvinavæðingin sannaði auðvitað gildi
sitt. Útvalda fólkið fékk sitt, en almenningur sat
eftir og hafði ekki hugmynd um dýrmæta vitn-
eskju fámennrar klíku með fúlgur nýfengins
fjár.
Svona gerist þetta á Íslandi. Ekki einu sinni.
Og ekki tvisvar. Heldur alltaf.
Í aðdraganda efnahagshrunsins fengu
útvaldir líka að vita af því með fyrirvara hvað
biði þjóðarinnar í október 2008. Forsætis-
ráðherra bað guð að blessa þjóðina á mánu-
degi, en föstudaginn þar á undan gátu margir
efnuðustu Íslendingarnir selt hlutabréf sín í
viðskiptabönkunum sem þá voru komnir í
þrot. Og svo var einnig um sjóðina mörgu sem
valinkunnir gátu komið sér út úr í tíma, þökk
sé rétta fólkinu sem hringdi í vin.
Hafi menn haldið, að eftir hátimbraða
skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um
orsakir hrunsins, sem birtist í fjölda binda á
árunum eftir efnahagsósköpin, hafi allt komist
í lag í þessu samfélagi við ysta haf, mega þeir
hinir sömu bíta í tunguna á sér. Og það nokkuð
hraustlega svo undan svíði.
Íslandsbankasalan á dögunum er enn eitt
dæmið um góðvinavæðingu þar sem innherja-
upplýsingar rata til sinna. Kaupendur voru
handvaldir. Klíkan var látin vita.
Á stundum er sagt að þessi íslenski plag-
siður, að blanda saman pólitík og viðskiptum
svo réttu mennirnir hagnist án þess að hafa
endilega svo mikið fyrir því, sé kominn til sakir
fámennis í landinu. En það er ekki rétt. Það er
einföldun.
Hér á landi hefur skapast stjórnmálamenning
allt frá miðri síðustu öld sem gerir út á heljartök
á samfélaginu. Sömu ráðstjórnarflokkarnir
hafa meira og minna verið að völdum á þessum
tíma sem hafa raðað sínu fólki í embættis-
mannastöður svo að tímabundnar valdatökur
annarra afla hafi sem minnst áhrif.
Þetta er það sem þjóðin lifir við. Og þetta er
það sem þjóðin kýs. n
Útvaldir
Skoðun Fréttablaðið 23. apríl 2022 LAuGARDAGuR