Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 4
Samfylkingin og Píratar leggja áherslu á sameiginlega ábyrgð sveitarfélaga á hús- næðismálum. n Tölur vikunnar Páll  Bergþórsson veðurfræðingur sagði að sér fyndist vera von til þess að áfram verði hlýtt hér í veðri og að það fari  hlýnandi fram í miðjan júlí. „Þá er yfirleitt hámarkið hér,“ sagði Páll, sem kvað erfiðara að spá fyrir um magn úrkomu í sumar. „Hún er duttlungafyllri. En mér sýnist að það gæti orðið rakt og hlýtt sumar, einkum miðað við það sem maður vandist á árum áður.“ Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri sagði á miðviku- dag að sér þætti leitt að drengur- inn sem sér- sveitarmenn frá lögreglunni tóku í strætisvagni í misgripum fyrir eftirlýstan mann, hefði „orðið hluti af þessum aðgerðum lögreglu, en ábending barst um að hann væri sá sem var lýst eftir.“ Sjálfur hefði drengurinn ekkert unnið sér til sakar. Morguninn eftir lenti drengurinn aftur í lögreglunni sem kom í bakarí þar sem hann var, eftir ábendingu frá borgara. Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins var ein fjöl- margra sem í vikunni gagn- rýndu sölu á hlutabréfum úr eigu ríkisins í Íslandsbanka. „Það á greinilega að gera Bankasýsluna að eina söku- dólginum og láta eins og þáttur fjármálaráðherra og ríkisstjórnar- innar sé enginn,“ sagði hún. Yfirlýsing um að Bankasýslan yrði lögð niður væri þó viðurkenning á að bankasalan hefði verið klúður. Kallaði Ásthildur eftir óháðri rannsóknarnefnd. n n Þrjú í fréttum 80 prósent þeirra sem afstöðu tóku í netkönnun Prósents sögðust óánægð með hópuppsögnina í Eflingu. 42 íslensk mál eru nú til efnismeð- ferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu, að sögn ríkislögmanns. 89 prósent þeirra sem afstöðu tóku í netkönnun Prósents sögðust óánægð með fyrirkomulag sölu hlutabréfa ríkisins i Íslandsbanka. 211 einstaklingar hið minnsta eru sagðir hafa stytt sér aldur á Ís- landi frá árinu 2017. 76 prósent Íslendinga nota netið til þess að spjalla við aðra, annað hvort með hljóði eða mynd. Viðreisn vill byggja í Skerja- firði og Ártúnshöfða og Sjálf- stæðisflokkurinn í Örfirisey. Sósíalistar vilja áherslu á ódýrt húsnæði og Vinstri græn á óhagnaðardrifin leigufélög. adalheidur@frettabladid.is kosningar Húsnæðismál eru fram- arlega á lista í stefnuyfirlýsingum þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í borginni og hafa kynnt stefnu sína fyrir sveitarstjórnarkosning- arnar í vor. Samfylkingin, f lokkur borgar- stjórans í Reykjavík, kynnti stefnu- mál sín í borginni á sumardaginn fyrsta. Flokkurinn vill spýta í lófana og tvöfalda fyrri uppbyggingaráætl- anir með því að byggja 10 þúsund íbúðir á næstu 5 árum. Sjálfstæðisflokkurinn, sem kynnti áherslur sínar í Perlunni í vikunni, hyggst skipuleggja ný hverfi að Keldum og í Örfirisey og þétta byggð innan hverfa sem hafa til þess svig- rúm, svo sem Úlfarsárdal, Staðar- hverfi og Kjalarnesi. Þá vilja sjálfstæðismenn bjóða stofnstyrki til þeirra sem vilja hefja starfsemi í auðum rýmum en með því vill f lokkurinn efla verslunar- kjarna innan borgarhverfa. Flokkur- inn leggur einnig áherslu á svokölluð 15 mínútna hverfi, þar sem finna megi bæði verslun og þjónustu innan fimmtán mínútna göngufæris. Áherslu á fimmtán mínútna hverfi má einnig sjá í stefnuyfirlýsingu Vinstri grænna, en flokkurinn hefur birt stefnuyfirlýsingu fyrir þau sveit- arfélög sem flokkurinn býður fram í. Viðreisn vill tryggja lóðir fyrir minnst 2.000 íbúðir á ári. Bæði þétta byggð og byggja ný hverfi. Svo sem við Ártúnshöfða og ljúka skipulagi vegna fyrstu áfanga Keldnalands. Einnig stækka hverfi, svo sem á Skeifusvæðinu, við Kringluna, í Úlf- arsárdal og Kjalarnesi. „Við viljum að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri og þar rísi í staðinn þétt, blönduð byggð. Hefja skal sem fyrst uppbyggingu í Skerjafirði og á öðrum svæðum í Vatnsmýri,“ segir í stefnu Viðreisnar. Píratar leggja áherslu á að hraða uppbyggingu „fjölbreytts húsnæðis í þéttri lífsgæðabyggð í takt við þarfir almennings,“ eins og það er orðað í stefnu flokksins. Samfylkingin leggur í sinni stefnuyfirlýsingu sérstaka áherslu á samstarf við ríki og önnur sveitar- félög um húsnæðisuppbyggingu. „Við gerðum samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Nú þurf- um við húsnæðissáttmála,“ segir í stefnuyfirlýsingu f lokksins. Með slíkum sáttmála eigi að tryggja framboð af húsnæði fyrir alla, en til þess þurfi Reykjavík að fá bæði ríki og nágrannasveitarfélög til að feta í fótspor borgarinnar og byggja félagslegt húsnæði og að fjölga íbúð- um á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga fyrir tekjulægri hópa, stúdenta og eldri borgara. Píratar leggja einnig áherslu á sameiginlega ábyrgð en „fjölga þurfi félagslegum íbúðum sem hlutfalli af heildaruppbyggingu og stuðla að því að öll sveitarfélög axli sinn hluta, tryggja að að lágmarki 25% uppbyggingar sé fyrir efnaminni hópa,“ eins og segir í stefnunni. Í stefnu Vinstri grænna segir að sveitarfélög skuli styðja óhagnaðar- drifin leigufélög með því að tryggja þeim lóðir. Flokkurinn leggur áherslu á að húsnæðiskostnaður eigi aldrei að vera hærri en 33 prósent af ráðstöf- unartekjum fólks. Flokkurinn vill meðal annars setja skýrar reglur um skammtímaleigu húsnæðis til ferða- manna. Þetta eigi að gera í þágu almannahagsmuna. Sósíalistaf lok k ur inn leg g ur áherslu á að ódýrt og öruggt hús- næði sé forsenda allrar velferðar- og heilbrigðisþjónustu. Til að unnt sé að uppræta fátækt og byggja öflugt velferðarkerfi þurfi stórátak í upp- byggingu félagslegs húsnæðis. „Sósíalistar leggja til húsnæðis- byltingu þar sem 30 þúsund félags- legar íbúðir verði byggðar um allt land á næstu tíu árum,“ segir í nýbirtri áætlun flokksins. Ríki og sveitarfélög þurfi að starfa saman að þessari uppbyggingu og leggur f lokkurinn til stofnun sér- staks húsnæðissjóðs sem tryggja muni almenningi öruggt leiguhús- næði. Sjóðurinn verði fjármagnaður með sölu á skuldabréfum, framlagi frá sveitarfélögum í formi lóða og lánsframlagi frá ríkinu. Ekki hafa allir f lokkar sem bjóða fram í borginni kynnt stefnumál sín og mun Fréttablaðið fjalla um hús- næðisstefnur annarra flokka þegar þær hafa verið kynntar. n Húsnæðismálin fyrirferðarmikil í stefnum borgarstjórnarflokkanna Viðreisn telur mögulegt að stækka hverfin við Kringluna og á Skeifu- svæðinu. Fréttablaðið/ Ernir 4 Fréttir 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.