Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 62
Um er að
ræða djarfa
yfirlýsingu
um að þú
sért nóg
og þú sért
heil.
Sologamy, sem gæti útlagst
á íslensku sem sjálfkvæni,
er notað um sjálfsbrúðkaup,
táknræna athöfn þar sem
brúðurin skuldbindur sig til
að viðhalda merkingarbæru,
djúpu og ástríku sambandi
við sjálfa sig.
Ég segi brúðurin, því það eru
nánast alfarið konur sem
ákveða að giftast sjálfum
sér. Um er að ræða djarfa
yfirlýsingu um að þú sért
nóg og þú sért heil. Það má vera að
þú sért tilbúin að deila lífi þínu með
annarri manneskju en þú þarft ekki
á „betri helmingi“ að halda til að
vera hamingjusöm.
En þó um sé að ræða skuldbind-
ingu við sjálfa sig skal ekki rugla því
við skírlífi eða að viðkomandi þurfi
að vera einhleypur. Það er ekkert að
því að henda í sjálfsbrúðkaup hvort
sem þú ert hamingjusamlega ein-
hleyp/ur, í leit að maka eða nú þegar
í sambandi.
En um hvað snýst þetta þá? Er pæl-
ingin að halda gott partí og fá svo-
litla athygli, jafnvel gjafir? Eða er um
að ræða fallega ástarjátningu gagn-
vart sjálfum sér? Er ekki sífellt verið
að tala um að til þess að elska aðra
sé mikilvægt að sannarlega elska
sjálfan sig? Í raun er frítt spil þegar
kemur að útfærslunni, á meðan ein-
hverjir hafa sett upp hringinn einir
með sjálfum sér heima við hafa aðrir
haldið risaveislur og tekið á móti
gjöfum – og svo allt þar á milli. n
Sjálfkvæni æ vinsælla Sjálfkvæni er
ein leið til að
segja umheim-
inum að það
megi vera að þú
sért tilbúin að
deila lífi þínu
með annarri
manneskju en
þú þurfir ekki á
„betri helmingi“
að halda til að
vera hamingju-
söm. Frétta-
blaðið/Getty
Vinsælt í Japan
Sjálfkvæni-trendið hefur
þróast undanfarna rúma tvo
áratugi víða um heim, til að
mynda í Japan, Bretlandi,
Bandaríkjunum, Ástralíu
og Ítalíu. Heimildarmynda-
streymisveitan BBC
Select fjallaði um auknar
vinsældir sjálfsbrúðkaupa
í Japan í nýútkominni
heimildarmynd: A Japanese
Solo Wedding. Segir í
umsögninni að sífellt fleiri
ungar japanskar konur
velji að fagna æsku sinni
og sjálfstæði með því að
giftast sjálfum sér á meðan
hefðbundnum brúðkaupum
fækki í landinu.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Brasilíska undirfatafyrirsætan, Cris
Galêra vakti athygli þegar hún, undir
lok síðasta árs, gekk að eiga sjálfa sig
fyrir framan kaþólska kirkju í stór-
borginni São Paulo, í heimalandi
sínu.
Sjálf sagðist fyrirsætan hafa
ákveðið að láta verða af þessu sem
ákveðna staðfestingu á sjálfsást.
Í samtali við New York Post sagði
hún frá því að reynsla hennar af
samböndum við karlmenn hefði
ýtt undir ákvörðunina enda hefðu
þeir oft verið henni ótrúir. Eftir að
hún birti myndir af brúðkaupinu á
Instagram-reikningi sínum höfðu
fjölmargir vonbiðlar samband en
Cris afþakkaði bónorðin pent. Hún
bætti þó við að ef ný ást birtist myndi
hún ekki afneita henni. „Ég myndi þá
setja þá manneskju í annað sæti, sjálf
verð ég alltaf í fyrsta sæti.“
Einhverjir miðlar birtu reyndar
fréttir af því að 90 dögum eftir brúð-
kaupið hefði fyrirsætan fundið
ástina í öðrum aðila en ef hún hefur
staðið við orð sín hefur hún varla
sagt skilið við sjálfa sig.
Victoria Secret-
fyrirsætan
Adriana Lima
tilkynnti á Insta-
gram-reikningi
sínum árið 2017
að hún hefði
gifst sjálfri sér.
Mynd/instaGraM
Skuldbundin sjálfri mér
Nokkrum árum áður, eða 2017, hafði
samlanda hennar, Victoria Secret-
fyrirsætan Adriana Lima tilkynnt á
Instagram-reikningi sínum að hún
hefði gert það sama – gifst sjálfri
sér. Adriana birti mynd þar sem
forkunnar demantshringur er í for-
grunni og við myndina skrifaði fyrir-
sætan: „Hvað er með hringinn? Hann
er táknrænn, ég er skuldbundin
sjálfri mér og minni eigin hamingju
– ég er gift sjálfri mér. Stelpur, elskið
sjálfar ykkur. Og já, ég er einhleyp.“ n
Brasilíska undir-
fatafyrirsætan
Cris Galêra segir
reynslu sína af
karlmönnum
hafa ýtt undir
þá ákvörðun
að giftast sjálfri
sér.
Verð sjálf alltaf í fyrsta sæti
30 Helgin 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið