Fréttablaðið - 23.04.2022, Qupperneq 26
myndaðist ákveðinn balans. Ég
veit að hinir strákarnir höfðu líka
þörf á því að það væri ekki bara
þessi harðkjarnamenning heldur
blönduð menning.“
„Það sem var skrítið við þennan
hóp er að sá sem var sterkastur og
mesti slagsmálahundurinn hafði
líka mestu þörf fyrir nánd og var
með minnstu hómófóbíuna af
okkur öllum. Þetta er ekki svart
og hvítt. Hann var mjög mjúkur og
góður strákur líka.“
Óhugsandi að halda áfram í skóla
Guðmundur segir strákana að
mörgu leyti hafa vantað stefnu.
„Tilhugsunin um að halda áfram
í skólakerfinu langt fram eftir full-
orðinsaldri var í raun óhugsandi
þegar við höfðum upplifað í mörg ár
að það kerfi væri ekki fyrir okkur.“
Listin heillaði Guðmund en lítið
var um skapandi greinar í náms-
skránni.
„Ég man eftir að hafa sótt um í
leiklistarvali, fann þörfina til þess
að komast út úr hlutverkinu sem
ég var í en fékk ekki pláss. Ég var
góður að teikna og gat gleymt mér í
að skrifa sögur en það var aldrei inni
í myndinni að maður gæti lifað á því
að vera listamaður eða kvikmynda-
gerðarmaður enda var kvikmynda-
iðnaðurinn á Íslandi svo lítill.“
Annað var uppi á teningnum hjá
systrum hans, sem Guðmundur
horfði á úr fjarlægð skrifa ljóð og
mála málverk og viðurkenndi ekki
fyrir neinum að þetta væri það sem
hugur hans kallaði eftir.
„Síðan um 18 ára aldurinn dró
ég besta vin minn með mér inn á
stofnfund áhugaleiklistarfélags í
Iðnskólanum og þá var í raun ekki
aftur snúið fyrir mig. Ég heillaðist
af leiklist, ljósmyndun, skrifum og
nánast öllum listformum. Frelsið
og það að geta gleymt sér í ljóð-
rænum heimi var svo fallegt. Þegar
ég svo horfði á mynd eftir kínverska
leikstjórann Wong Kar Wai, Fallen
Angel, áttaði ég mig á því að til var
eitt listform sem sameinaði öll þau
sem ég hefði áhuga á og það var
kvikmyndaformið.“
Neitað í kvikmyndaskóla
Guðmundur fór í myndlist í Listahá-
skólanum og gerði tilraunakenndar
stuttmyndir.
„Ég reyndi svo að komast í kvik-
myndaskóla en fékk alltaf neitun.“
Guðmundur kynntist Rúnari
Rúnarsyni leikstjóra sem tók hann
í starfsnám og hvatti hann áfram.
„Rúnar sagði eitt sinn við mig
setningu sem var rosalega sárt að
heyra en þörf á þeim tíma. Eftir
að hann hafði hitt mig margsinnis
og ég var alltaf á leiðinni að fara
gera mína fyrstu leiknu stuttmynd
eftir handriti, sagði hann við mig
að sumir töluðu um að gera stutt-
myndir og aðrir gerðu þær. Það væri
munurinn á þeim sem vildu og væru
leikstjórar.“
Setningin stakk Guðmund og
hann fann að hún átti við um hann.
„Ég ákvað þá að drífa mig af stað
og gerði Hvalfjörð, sem var frum-
sýnd á Cannes og vann þar til verð-
launa og opnaði möguleikann fyrir
mig að gera mína fyrstu mynd í
fullri lengd.“
Fullorðnir vissu lítið um okkur
Ár ið 2016 kom út kvikmyndin
Hjartasteinn eftir Guðmund, sem
fjallar einnig um unglingsdrengi og
vakti hún mikla athygli. En hvers
vegna ætli þetta tímabil sé honum
svo hugleikið?
„Ég átti mjög litríka barnæsku og
unglingsár og upplifði mig oft sem
áhorfanda á vini mína og fullorðið
fólk. Ég var mjög meðvitaður um
hversu tvískiptur heimur unglinga
og fullorðinna var. Í raun vissu full-
orðnir mjög lítið um okkar heim.
Ég man vel eftir því þegar heimur
fullorðinna opnaðist fyrir mér og
þau fóru að tala saman fyrir framan
mig eins og þau gerðu þegar engin
börn voru nærri. Ég var hissa á því
að fullorðið fólk skyldi haga sér
svona. Þegar ég fór að heyra full-
orðna menn tala saman og hugsaði:
„Þetta er bara eins og við tölum og
ég er 16 ára og þeir fimmtugir.“
Hegðunin mátti ekki smitast
Þegar Guðmundur fór að skrifa
leitaði hann ítrekað í fjársjóðskistu
unglingsáranna.
„Maður þarf smá fjarlægð til að
átta sig á því hversu mikill efniviður
er í umhverfinu.“
Það var árið 2017 sem Guðmund-
ur byrjaði að skrifa söguna á bak við
Berdreymi og hefur ferlið frá fyrstu
blaðsíðu að frumsýningu því verið
fimm ár. Umfjöllun í Kastljósi RÚV í
september 2020 um að ofbeldi ungl-
inga á milli hefði aukist á árunum
2014 til 2018 varð til þess að Guð-
mundur fann fyrir auknu mikilvægi
myndarinnar. „Þannig tengdist hún
unglingum í dag enn frekar.“
Það eru fjórir ungir drengir sem
bera myndina uppi ásamt f leiri
aukaleikurum af báðum kynjum.
Hópurinn fékk sex mánaða þjálfun
og undirbúning svo ferlið hefur
bæði verið langt og strangt.
„Þetta er heildarpakki, við erum
að kenna þeim leiklist og viljum að
þetta sé uppbyggilegt og skemmti-
legt en þetta er líka vinna sem þarf
að taka alvarlega. Við setjum stífar
reglur um að allir þurfi að vera vinir
og ef einhver virðir það ekki er hann
látinn fara. Þetta er mikið agaferli
og hentar betur krökkum sem hafa
lært það, af til dæmis íþróttum,
að undirbúningur skilar seinna
árangrinum,“ segir hann.
„Þessir strákar sem leika í mynd-
inni eru ólíkir karakterum sínum,
enda myndu þessir karakterar aldr-
ei mæta í prufu,“ segir hann í léttum
tón. „En hegðun karakteranna mátti
ekki smitast til leikaranna og um
leið og kameran hætti að rúlla var
mikilvægt að þeir væru orðnir þeir
sjálfir. Það mátti ekki taka neitt á
milli. Við erum með krakka á við-
kvæmum aldri sem eru ekki leik-
arar og því þarf að kenna þeim og
halda vel utan um þá.“
Lengra í land hjá körlum
Kynferðisof beldi er tekið fyrir í
myndinni og segist Guðmundur
hafa viljað hafa það í handritinu
enda sé það enn oft tabú fyrir stráka
að ræða slíkt.
„Ég veit um stráka sem lentu í
slíku án þess að það væri nokkurn
tíma talað um það. Það er mann-
Guðmundur
segir sig hafa
dreymt fyrir
skýrum hlutum
og treystir
innsæi sínu vel
enda búinn að
þjálfa það upp
frá því í kringum
tvítugt.
Fréttablaðið/
Valli
skemmandi og þeir þurftu að reka
sig á veggi fullorðnir. Það er svo frá-
bært að það sé farið að ræða þessa
hluti og #MeToo er að breyta við-
horfum okkar. En ég held að enn sé
skömmin meira farin hjá konum og
enn sé lengra í land hjá körlum.“
Talið berst að eitraðri karl-
mennsku, hugtaki sem hefur verið
töluvert í umræðunni hér á landi og
erlendis en Guðmundur vildi óska
þess að til væri betra nafn yfir hug-
takið.
„Mér finnst ekki rétt að setja
orðið karlmennska við hlið orðsins
eitrað því mörkin þar á milli verða
oft mjög óljós í umræðunni og ekki
alltaf á uppbyggilegan máta fyrir
unga stráka. Kannski er það vegna
þess að ég er alinn upp hjá mjög
feminískri móður og tveimur systr-
um, en það sem hefur stuðað mig
í þessari umræðu er hvernig karl-
mennska og karlmenn almennt eru
settir í neikvætt samhengi, eins og
að eðli okkar sé neikvætt.
Eftir tíu ár er ég orðinn miðaldra
hvítur karlmaður sem er orðið að
níðyrði. Mér finnst það sjúkt fyrir
samfélagið að það að vera miðaldra
hvítur karlmaður sé eitthvað til að
skammast sín fyrir. Mér finnst það
ómannlegt.“
Áttum ekki að sýna veikleika
Að því sögðu bætir Guðmundur við
að hann hafi alist upp í samfélagi
sem var stútfullt af gildum sem falli
undir hugtakið.
„Ekki síst þegar kom að því að
ræða tilfinningar, samfélagslega
áttum við sem strákar ekki að sýna
veikleika. Ég þurfti alveg að venja
mig á það í samböndum við fyrr-
verandi kærustur, og núna unn-
ustu mína, að tala um tilfinningar
án þess að upplifa að ég væri að gera
eitthvað rangt. Ég á enn smá erfitt
með að opna mig alveg, það kemur
ekki alltaf náttúrlega og þarf stund-
um meðvitaða ákvörðun.“
Guðmundur á son á níunda ári,
þriggja ára dóttur og fimmtán ára
stjúpdóttur. Hann segist leggja sig
fram við að ræða tilfinningar við
börnin sín og sérstaklega son sinn.
„Það kemur mér oft á óvart hversu
góður hann er í þessu og það er
móður hans sérstaklega að þakka.“
Hefur dreymt fyrir hlutum
Andleg málefni, berdreymi og inn-
sæi eru ákveðið stef í myndinni og
segir Guðmundur slíkt alltaf hafa
fylgt sér. „Við systkinin erum alin
upp við að draumar og innsæi væri
mikilvægur hlutur að læra inn á og
ég er gífurlega þakklátur fyrir það
núna.“
Guðmundur bendir á að slík trú
sé algengari en margir telji, eins og
komið hafi fram í könnun félagsvís-
indasviðs Háskóla Íslands um mál-
efnið árið 2008.
„Þar kemur fram að 40 prósent
þjóðarinnar sögðust hafa upplifað
það að vera berdreymin og 60 pró-
sent þjóðar hafi skynjað hluti sem
síðan gerðust. Ég held að bless-
unarlega séu Íslendingar tengdari
þessum hluta af sér og það er afar
jákvætt.“
„Mig hefur dreymt fyrir skýrum
hlutum en það þýðir ekki að allir
draumar hafi þýðingu. Skýrasta
svona dæmið er líklega þegar ég
var nýbúinn með Hjartastein og
vaknaði upp klukkan fjögur um
nótt með þessa sterku tilfinningu
um að ég yrði að hringja í mömmu.“
Guðmundur segist hafa túlkað til-
finninguna sem órökrétta enda mið
nótt og því hafi hann reynt að sofna
bara aftur en ekki tekist.
„Þetta togaði í mig. Ég hringdi svo
í mömmu sem svaraði ekki svo ég
reyndi aftur að sofna án árangurs.
Á endanum fór ég út í bíl og keyrði
heim til hennar.“
Þegar Guðmundur kom að húsi
móður sinnar um blánóttina sá
hann hvernig rauk úr kjallaranum.
„Þá hafði hitavatnsrör sprungið
og heitt vatn flætt um allt. Ég vakti
þá mömmu sem var steinsofandi.
Það hefði allt eyðilagst ef ég hefði
ekki komið. Ég er ekki að vakna
um miðja nótt og finna svona án
ástæðu.“
Guðmundur trúir og treystir
innsæinu sem hann segir okkur öll
geta þjálfað.
„Til að tengjast innsæinu er mikil-
vægt að vera samkvæmur sjálfum
sér. Hluti af því er að vera ekki í
óreglu og passa til dæmis vel upp á
svefninn.“
Guðmundur leitaði af tur í
æskuár sín til að skapa sögu sinni
vettvang og ramma en leyfði svo
skáldskapnum að fylla í eyðurnar.
Á tímum þar sem karlmennskan er
í ákveðinni endurskilgreiningu og
ungir strákar eiga oft erfitt með að
fóta sig á mótum töffaraskapar og
tilfinninga, er mikilvægasta stefið
líklega vinátta, kærleikur og sam-
staða. n
Í svona
strákahóp
myndast
hollustu-
kerfi og
hluti af því
er að styðja
hvern
annan. Það
vantaði
eflaust upp
á stuðning-
inn heima
hjá mörg-
um.
26 Helgin 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið