Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 6

Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 6
Ástandið á reit þrjú í Voga- byggð er með öllu óásættan- legt að mati íbúa, sem orðnir eru langþreyttir á umgengni og óvissu um framtíðina, en þeim finnst borgin draga lappirnar í skipulagsmálum. Börn sofa fyrir neðan meng- andi starfsemi og hafa sum fengið ertingareinkenni í húð og slímhúð sem gæti háð þeim ævilangt. benediktboas@frettabladid.is Samfélag Börn hafa orðið fyrir eitr- unaráhrifum á reit þrjú í Vogabyggð og þurfa íbúar að loka gluggum þegar verkstæðin á jarðhæð opna. Illa gengur að fá einhver svör frá ann- ars vegar borginni um deiliskipulag og hins vegar Heilbrigðiseftirlitinu um mengandi iðnað. Ástandið á reit þrjú er sagt með öllu óásættanlegt samkvæmt bréfi sem íbúaráð Laugardals tók fyrir rétt áður en páskar gengu í garð. „Systkinin hafa fengið ertingarein- kenni í húð og slímhúð sem hefur verið sett í samband við mikla lykt af terpentínu og asetoni sem berst frá bílaverkstæði á jarðhæð hússins sem þau búa í. Saga þeirra varðandi þetta finnst mér ótvíræð hvað þetta varð- ar,“ segir barnalæknir um börnin. Börnin f luttu með foreldrum sínum á reitinn fyrir skömmu en margir íbúar á reitnum búa nálægt mengandi iðnaði. Íbúum er nóg boðið og sendu íbúaráði Laugardals harðort bréf, enda átti að vera búið að deiliskipuleggja hverfið og er það auglýst nánast sem ein stór paradís. Í bréfinu segir að starfsemi á neðstu hæðum við Súðarvog taki ekkert tillit til gangandi umferðar og hertaki gangstéttir undir úrgang frá verkstæðum. Þá séu til sannanir um að fyrirtækin séu að skola eitur- efnum ofan í niðurföll – sem rúlla svo út í sjó. Þorbergur Halldórsson, formaður húsfélagsins Súðarvogs 44-48, sendi bréfið en hann keypti á reitnum árið 2009. „Börnin sem þarna um ræðir f luttu í hverfið fyrir faraldurinn. Börn með útbrot vegna eiturefna frá verkstæði Ástandið á reitnum er yfirleitt líkt þessari mynd. Íbúðar- hús fyrir ofan mengandi iðnað og þurfa íbúar að loka gluggum að morgni þegar vinnutími hefst. Systkinin fengu útbrot og ertingareinkenni vegna mengandi iðnaðar fyrir neðan íbúð þeirra. Heilbrigðiseftirlitið virkaði lítið þrátt fyrir leyfisleysi þeirra sem ollu útbrotunum. Ég varð var við að það var verið að sprauta bíla á neðstu hæðinni hjá þeim í algjöru leyfisleysi. Það tók allt of langan tíma að stoppa það þrátt fyrir að verkstæðið væri ekki með nein leyfi. Heilbrigðiseftirlitið virk- aði engan veginn því loksins þegar eitthvað var gert voru börnin komin með útbrot,“ segir Þorbergur. Hann segir að töluvert sé komið af löglegum íbúðum í hverfinu en einnig er að finna þar einhverjar ólöglegar. Þá sé allur iðnaður sem þarna sé að finna slíkur að hann geti ekki uppfyllt neinar nútímakröfur um mengunarvarnir. „Það lyktar upp úr klósettum hjá mér því það er allt sett í niðurföllin. Heilu plönin, þó þau séu full af olíu eða glussa, eru spúluð niður í niðurföllin sem hafa enga olíusíu eða neitt sem nútíminn gerir kröfu um.“ Þorbergur hefur verið í sam- skiptum við borgina fyrir hönd íbúa í nokkur ár en kemur alls staðar að lokuðum dyrum. „Við erum að fara fram á að það verði klárað að deili- skipuleggja og ef það á að vera ein- hver svona iðnaður hér áfram þá þarf að laga það húsnæði þannig það sé ekki allt sett ofan í ræsi. Þetta er frábært framtíðarsvæði og þess vegna skil ég ekki borgina að láta þetta fara svona. Hér er allt stopp því það veit enginn hvað má og hvað ekki. Verður þetta áfram iðnaðar- pláss eða breytast bilin í íbúapláss? Það er ótrúlegt að þetta fái að við- gangast árið 2022,“ segir Þorbergur. Sjálfur þarf hann að loka gluggum þegar sprautuverkstæði fyrir neðan hann opnar. „Þá er ólíft vegna lyktar. Það er engin loftræsting á verkstæð- inu önnur en hurðin til að aka bílum inn og út. Það finnst heilbrigðiseftir- litinu í lagi og er látið viðgangast. Við erum búin að vera þolinmóð og sýna mikla þolinmæði en þetta er komið út fyrir eitthvað sem er skiljanlegt,“ segir Þorbergur, en íbúa- ráð Laugardals bókaði þakkir fyrir kynninguna og beindi því til skipu- lagsfulltrúa og Heilbrigðiseftirlits að svara erindinu. n Mest af því húsnæði sem stendur í hverfinu eru byggt í kringum 1960 og uppfyllir í flestum til- fellum ekki nútímakröfur til mengunarvarna. ggunnars@frettabladid.is StjórnSýSla Breski fjármálaráð- gjafinn Michael Ridley, sem var Seðlabanka Íslands til aðstoðar þegar bankarnir féllu í byrjun októ- ber 2008, hefur verið fjármálaráð- herra og stjórnvöldum til ráðgjafar við sölumeðferð ríkisins á Íslands- banka. Ridley, sem starfaði lengi hjá fjár- festingabankanum J.P. Morgan, fór fyrir fjög urra manna teymi sem fundaði með ríkisstjórninni um miðja nótt í aðdraganda efnahags- hrunsins. Í kjölfar þess fundar var tek in ákvörðun um neyðarlög . Ridley lét síðar hafa eftir sér að hans hlutverk á fundinum með ráða- mönnum hefði verið að sannfæra ríkisstjórnina um að ekki væri unnt að bjarga íslenska bankakerfinu. Árið 2018 var Ridley kallaður til landsins á ný. Í þetta skiptið til að leggja mat á forkaupsrétt á hluta- bréfum Kaupþings í Arion banka. Ári síðar, eða árið 2019, leituðu íslensk stjórnvöld enn og aftur til Bretans en hann sat þá fund með ráðamönnum vegna stöðu f lug- félagsins WOW air. Michael Ridley hefur því veitt stjórnvöldum ráðgjöf í fjórum af stærstu álitamálum íslensks við- skiptalífs á undanförnum fjórtán árum. Fréttablaðið hefur sent fjármála- ráðuneytinu formlega fyrirspurn um aðkomu Michaels Ridley að sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka í síðasta mánuði Þá er einnig beðið svara um heild- arkostnað ráðuneytisins í tengslum við ráðgjöf breska sérfræðingsins. n Ráðgjafi stjórnvalda nú sá sami og í hruninu Michael Ridley, fjármálaráðgjafi Ridley hefur veitt stjórnvöldum ráðgjöf í fjórum af stærstu álitamálum íslensks viðskiptalífs frá alda- mótum.LÖNG HELGI Í PORTO WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS VOR Í PORTÚGAL Komdu með í langa helgarferð til Porto, undir fararstjórn Helgu Thorberg. Porto er ein vinsælasta borgin til að heimsækja í Evrópu um þessar mundir - og af mjög góðri ástæðu. Töfrandi gamli bærinn við hina fögru Douro á var settur á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996. Borgin Porto, heimsfræg fyrir púrtvínið sitt, er einn af fallegustu stöðum í Portúgal til að heimsækja. Borgarbragurinn er fremur rólegur miðað við aðrar borgir af svipaðri stærð, verðlag á mat og drykk hagstætt og fjölmargir veitingastaðir, barir og kaffihús um alla borg. BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR, ÚRVAL 3 OG 4 STJÖRNU HÓTELA MEÐ MORGUNMAT, ÍSLENSK FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI INNIFALIÐ Í VERÐI: 05. - 08. MAÍ VERÐ FRÁ 116.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Fararstjóri Helga Thorberg Systkinin hafa fengið ertingareinkenni í húð og slímhúð, sem hefur verið sett í samband við mikla lykt af terp- entínu og asetoni sem berst frá bílaverkstæði á jarðhæð hússins sem þau búa í. Barnalæknir í vottorði fyrir íbúa í Vogabyggð 6 Fréttir 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.