Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 21
Karen, Rut og Þórey
Rósa eru einu leik-
menn Íslands í dag
sem voru með Íslandi á
EM 2012 í Serbíu.
Blöndulína 3
Umhverfismats-
skýrsla
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og
sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum
framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem
umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.
Fram undan er opið hús þar sem lagðar verða
fram upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum vegna
Blöndulínu 3, sem mun liggja milli Blöndustöðvar
og Akureyrar.
Línuleiðin er innan fimm sveitarfélaga, Akureyrar-
bæjar, Hörgársveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins
Skagaarðar og Húnavatnshrepps.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta orku-
nýtingu, auka flutningsgetu og tryggja stöðugleika
raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi. Fram-
kvæmdin hefur einnig þýðingu fyrir flutningskerfi
landsins í heild þar sem um er að ræða mikilvægan
hlekk í styrkingu tengsla milli sterkari hluta kerfisins
á suðvesturhorninu og veikari hluta þess á
Austurlandi.
Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðum
Skipulagsstofnunar, Landsnets og Mannvits til 13.
maí 2022. Að auki liggur umhverfismatsskýrslan
frammi til kynningar á eftirtöldum stöðum:
Í ráðhúsi Akureyrarbæjar, á skrifstofum Hörgár-
sveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagaarðar
og Húnavatnshrepps og hjá Skipulagsstofnun.
Öllum er velkomið að koma á framfæri umsögnum
um umhverfismatið og skal senda þær til Skipulags-
stofnunar, Borgartúni 7b, eða á skipulag@skipulag.is.
Opið hús vegna mats
á umhverfisáhrifum
Hafðu áhrif
– taktu þátt
í samtalinu
Opinn fundur
Reykjavík,
veitingastaðnum
Nauthól
þriðjudaginn 26. apríl
16.00 – 18.30
Verið velkomin
kristinnpall@frettabladid.is
Handbolti Stelpurnar okkar í
íslenska kvennalandsliðinu leika
hreinan úrslitaleik gegn Serbíu í
undankeppni Evrópumótsins 2022
í Zrenjanin síðdegis í dag. Íslenska
liðið veit að allt annað en sigur þýðir
að þær sitji eftir með sárt ennið, en
um leið að sigur kemur liðinu á sitt
fyrsta stórmót í tíu ár.
Ljóst er um leið að verkefnið verð-
ur erfitt, enda Serbar verið fastagest-
ir á öllum stórmótum síðastliðinn
áratug og afar erfiðir heim að sækja.
Ísland vann tveggja marka sigur
þegar liðin mættust fyrr í undan-
keppninni, sem var einn af bestu
leikjum kvennalandsliðsins undan-
farin ár. Stelpurnar okkar voru með
frumkvæðið allan leikinn í 23-21
sigri á Ásvöllum.
Óvænt tap íslenska liðsins gegn
Tyrkjum ytra ásamt sterkum sigri
Serba á Svíþjóð á heimavelli fyrr í
riðlakeppninni, gerir það hins vegar
að verkum að Stelpurnar okkar
verða að vinna leikinn í dag. n
Sigur kemur Stelpunum okkar á sitt fyrsta stórmót í tíu ár
Rut Arnfjörð er leikjahæsti leikmaður liðsins í Serbíu. Fréttablaðið/Valli
kristinnpall@frettabladid.is
Fótbolti Ralf Rangnick, þjálfari
Manchester United, segist ekki vera
viss hvort Paul Pogba nái öðrum
leik það sem eftir er tímabilsins
vegna meiðslanna sem hann varð
fyrir gegn Liverpool. Pogba verður
frá næstu fjórar vikurnar en samn-
ingur hans við félagið rennur út í
lok tímabilsins. Manchester Uni-
ted greiddi á sínum tíma metfé
fyrir Pogba en franski landsliðs-
maðurinn hefur verið orðaður við
Juventus og PSG.
Rangnick ýjaði að því að það væri
ólíklegt að Pogba myndi ná síðustu
fimm leikjum Manchester United
á tímabilinu á blaðamannafundi í
gær, eftir að hafa farið meiddur af
velli í upphafi leiks gegn Liverpool
á þriðjudaginn. Þjóðverjinn sagði
að endurhæfingin ætti að taka að
minnsta kosti fjórar vikur en loka-
leikur tímabilsins er þann 22. maí
næstkomandi.
Á sama tíma tilkynnti Rangnick
að Cristiano Ronaldo væri byrjaður
að æfa aftur og yrði í leikmanna-
hópi liðsins gegn Arsenal á morgun,
nokkrum dögum eftir að sonur
hans lést í fæðingu þegar unnusta
hans, Georgina Rodríguez, eignaðist
tvíbura. n
Tímabilinu líklega
lokið hjá Pogba
kristinnpall@frettabladid.is
Handbolti Aganefnd Handbolta-
sambands Íslands óskaði að beiðni
framkvæmdastjóra sambandsins
eftir útskýringum frá Val vegna
ummæla Björgvins Páls Gústavs-
sonar, markmanns Vals, í samtali
við vefmiðilinn mbl.is eftir leik Vals
og Fram í úrslitakeppni Íslands-
mótsins í handbolta í vikunni.
Björgvin gæti átt yfir höfði sér leik-
bann eða sekt verði hann dæmdur
sekur vegna ummælanna.
Valur vann leikinn með tíu mörk-
um en í viðtali eftir leik gaf Björg-
vin til kynna að Framarar virtust
vera að skjóta viljandi í hausinn á
honum.
Valsmenn hafa til ellefu í dag til
að skila inn umsögn. Ef Björgvin
verður dæmdur í bann missir hann
af seinni leik liðanna á sunnudag-
inn. n
Aganefnd skoðar
ummæli Björgvins
Björgvin gaf til kynna að Framarar
virust skjóta viljandi í höfuð hans.
LAUGARDAGUR 23. apríl 2022 Íþróttir 21Fréttablaðið