Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 30
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hafsteinn Valur Guðbjartsson
ásamt Bjarna Jónssyni rekur
verslunina í samstarfi við 4F í
Póllandi, en þar var fyrirtækið
stofnað árið 1995. Fyrirtækið er ört
vaxandi enda hefur því verið vel
tekið alls staðar þar sem versl-
anir hafa opnað. Ísland er fyrsta
Norðurlandið þar sem 4F er í boði.
„Eigendur 4F eru mjög spenntir
að sjá viðbrögðin á Íslandi en þeir
hyggjast opna verslanir á öllum
Norðurlöndum,“ segir Hafsteinn,
en hann hefur rekið verslanir Nor-
dic Store sem hafa fyrst og fremst
verið hannaðar fyrir erlenda ferða-
menn og sérhæft sig í CANADA
GOOSE fatnaði.
Fyrirtæki í sókn
„4F hefur verið í gríðarlegri sókn
með aukningu upp á 20% á ári og
stefna á 70 nýjar verslanir á þessu
ári. Um síðustu mánaðamót voru
fjórar nýjar 4F verslanir opnaðar
í Evrópu með þeirri í Smáralind.
4F býður upp á allar vörur sem
tengjast sporti og hvers kyns úti-
vist fyrir alla fjölskylduna. Þetta
er gæðafatnaður sem er glæsi-
lega hannaður en samt á frábæru
verði,“ segir Hafsteinn.
Verslunin er með hvers kyns
útivistar- og hlaupaskó, auk annars
fatnaðar sem hentar fyrir hvers
konar íþróttir eða útivist, þar með
talið húfur, vettlinga og sokka.
„Hvort sem er fatnaður fyrir skíði,
sund, reiðhjóla-, fjalla- eða göngu-
fólk – allt þetta fæst í 4F. Úrvalið á
eftir að aukast mikið hjá okkur á
næstunni en við tökum upp nýjar
vörur í hverri viku. Siglingar milli
Íslands og Póllands eru einstaklega
góðar sem gerir flutningskostnað-
inn ódýrari,“ segir Hafsteinn. „4F
er breið gæða vörulína og verðin
eiga eftir að koma Íslendingum
skemmtilega á óvart.“
Féllu fyrir vörunni
Hafsteinn sem hefur verið með
smásölurekstur frá árinu 2009 seg-
ist lengi hafa leitað eftir heillandi
vöru fyrir innlendan markað.
„Þetta er spennandi markaður og
allt öðruvísi en það sem við höfum
verið að einblína á fyrir erlenda
ferðamenn,“ segir hann. „Við
erum búin að byggja upp reynslu
og þekkingu sem nýtist okkur
vel fyrir nýjan rekstur. Reyndar
höfum við leitað eftir ýmsum
tækifærum en það var ekki fyrr
en okkur var sagt frá 4F sem áhugi
okkar kviknaði fyrir alvöru. Í
framhaldinu höfðum við samband
við eigendurna sem buðu okkur að
koma að skoða framleiðsluna. Við
gjörsamlega heilluðumst af þessu
vörumerki og öllu þessu flotta
vöruúrvali. Þetta var eitthvað allt
annað en við höfðum áður séð,“
bætir hann við.
Hafsteinn segir að mikið sé lagt
upp úr upplifun viðskiptavinarins
þegar hann gengur inn í búðina.
Hún sé einstaklega smekklega upp
sett með „lifandi“ myndböndum
og fallegu umhverfi. „Ég hafði aldr-
ei áður séð svona glæsilega verslun
en allar nýjustu verslanirnar líta
eins út,“ segir hann. „Útlitið hefur
verið í þróun í mörg ár og að mínu
viti eru þeir komnir á toppinn
hvað varðar uppsetningu, vöruval,
gæði og verð,“ segir hann.
Síbreytilegt vöruúrval
Hugmyndin er að byrja í Smára-
lindinni þar sem verslunin er núna
en færa síðan út kvíarnar þegar
hentugt verslunarrými finnst, til
dæmis í Kringlunni. „Við sjáum
fyrir okkur að minnsta kosti þrjár
verslanir 4F á Íslandi,“ segir Haf-
steinn. „Við finnum fyrir því að
Pólverjar sem eru búsettir á Íslandi
þekkja merkið og hafa verið dug-
legir að koma í búðina. Þeir vita
að 4F er gæðavara á lágu verði. Nú
4F er á fyrstu
hæð við hlið
Vínbúðarinnar
næst aðalinn
ganginum í
Smáralind.
Robert Lewand
owski og kona
hans, Anna
Lewondowska,
eru bæði með
sína eigin
fatalínu hjá 4F.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hafsteinn segir
að nýjar vörur
muni berast
reglulega í
verslunina
þannig að fólk
fær alltaf nýja
upplifun við
heimsóknina.
Verslunin sjálf er fallega hönnuð og það er skemmtileg upplifun að koma þar inn.
Gönguskór eru
til í miklu úrvali
og sömuleiðis
hlaupaskór
ásamt skóm
fyrir hinar ýmsu
íþróttir og
útivist.
w
Hjá 4F er líka að finna ýmsan fatnað fyrir líkamsræktina.
erum við að kynna merkið fyrir
Íslendingum og vonumst til að því
verði vel tekið hér eins og í öðrum
löndum. Þar sem vörulínan er
mjög stór reynum við að vera með
árstíðabundnar vörur hverju sinni
og fljótlega tökum við inn fatnað
sem tengist útivist að sumri miðað
við íslenskar aðstæður. Verslunin
verður síbreytileg og alltaf með
eitthvað nýtt.“
Hafsteinn segir að 4F verslana-
keðjan geri stífar kröfur um að
verslunin sé rekin á sama hátt og
4F í öðrum löndum. Þegar eru
mjög góð viðbrögð við þessari
nýjung í verslunarflórunni í
Smáralind og margir sem nýta sér
þetta góða verð á sportfatnaði.
Netverslun með haustinu
Fyrirhugað er að opna netverslun á
næstunni þannig að fólk geti keypt
hvar sem það er statt á landinu.
„Við stefnum á að netverslunin
verði komin í fullan gang með
haustinu,“ segir Hafsteinn, en
slóðin er 4fstore.is og á fyrirtækið
á heimsvísu er 4fstore.com en
þar er hægt að skoða allar vörur.
„Við getum ekki boðið upp á allt
í einni verslun en verðum alltaf
með það nýjasta. 4F eru líka með
flott myndbönd á YouTube sem
hægt er að skoða til að kynna sér
vörurnar,“ segir hann.
„Það hefur verið strangur undir-
búningur að opnun verslunarinnar
en við höfum allan tímann verið
mjög sannfærðir um að þetta sé
frábær vara fyrir Íslendinga og
höfum mikla trú á að sú verði
raunin,“ segir Hafsteinn. n
4F sport og útivistarverslun er á
fyrstu hæð í Smáralind, staðsett
við hliðina á Vínbúðinni við aðal
innganginn. Opið er til kl. 19 alla
virka daga í Smáralind, frá 1118 á
laugardögum og 1217 á sunnu
dögum.
2 kynningarblað A L LT 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR