Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 32
Félags-
skapurinn,
samvinn-
an, úti-
veran og
náttúru-
fegurðin
var það
sem kall-
aði okkur
út á völl
nánast
daglega.
Á morgun sunnudag hefst
kvennamótaröðin í frisbí-
golfi en fyrsta mótið fer fram
í Guðmundarlundi í Kópa-
vogi. Röðin er ætluð konum,
jafnt byrjendum sem lengra
komnum.
starri@frettabladid.is
Kvennamótaröðin í frisbígolfi hefst
á morgun sunnudag, en hún var
fyrst haldin árið 2017. Eins og nafn-
ið gefur til kynna er mótaröðin
eingöngu ætluð konum, en henni
er ætlað að skapa vettvang þar sem
auðvelt er fyrir konur að koma og
prófa að keppa í öruggum hópi
með jafningjum sem hafa mikinn
áhuga á frisbígolfi, segir Svandís
Halldórsdóttir, sem situr í móta-
nefnd ásamt Berglindi Ásgeirs-
dóttur og Maríu Eldeyju Kristínar-
dóttur. „Áhugasamar geta skráð sig
til leiks með því að skrá „going“ á
viðburðum sem heita Kvennamót
ÍFS sem birtast á Facebook-síðum
sem heita Frisbígolf og Frispíur.
Keppt er í þremur flokkum: FA1
flokkur er fyrir þær sem eru vanar
að keppa, FA2 er fyrir þær sem eru
í góðri æfingu og klárar í keppni og
FA3 er fyrir þær sem eru að stíga sín
fyrstu skref í keppni.“
Á mótunum eru spilaðir tveir
hringir á 9-11 holu völlum. „Í
upphafi hvers móts förum við yfir
reglur og ein í hverjum ráshópi
skráir skor um hvernig gengur eftir
hverja holu í hringnum. Sigur-
vegarinn er sú sem fer hringinn í
fæstum köstum.“
Miklar framfarir
Svandís starfar sem umsjónar-
kennari og íþróttakennari á
yngsta stigi í Vatnsendaskóla í
Kópavogi, þar sem hún sér meðal
annars um frisbígolf-valáfanga
á unglingastigi. „Ég er í stjórn og
mótanefnd Íslenska frisbígolf-
sambandsins (ÍFS) og hef, ásamt
þeim sem eru með mér í stjórn,
brennandi áhuga á að byggja upp
sportið hér á landi og gefa sem
flestum tækifæri á að prófa frisbí-
golfið.“
Sjálf hefur hún spilað frisbígolf
oft í viku frá því í nóvember 2020
og áhugi hennar á sportinu hefur
aukist með hverju skipti sem hún
spilar og keppir. „Ég og Soffía
vinkona mín byrjuðum að hittast
eftir nánast hvern einasta vinnu-
dag og allar helgar og spila saman
frisbígolf með Texas scramble
sniði í Grafarholti. Félagsskapur-
inn, samvinnan, útiveran og nátt-
úrufegurðin var það sem kallaði
okkur út á völl nánast daglega og
var gaman að sjá miklar framfarir
hjá okkur báðum á stuttum tíma.
Maðurinn minn hefur alltaf hvatt
mig áfram og við erum dugleg
að gefa okkur tíma til að komast
bæði út á völl að spila og keppa.
Árið 2021 keppti ég 56 daga og tók
mynd í hvert skipti af ráshópnum
mínum og kynntist fjársjóði af
fólki sem hefur sama áhugamál
og ég.“
Kjólaþema í lokin
Fyrsta mótið í kvennaröðinni fer
fram í Guðmundarlundi í Kópa-
vogi á morgun sunnudag og hefst
kl. 18. „Næsta mót er föstudaginn
13. maí á Vífilsstöðum, svo mið-
vikudaginn 1. júní á Háskólavell-
inum á Akureyri og þá mánu-
daginn 11. júlí í Laugardal. Frekari
upplýsingar um næstu mót og
mótaröðina í heild sinni má finna
á folf.is undir keppnir. Hvert mót
kostar 2.000 kr. en hægt er að
greiða 8.000 kr. fyrir öll mótin.“
Í síðasta mótinu, sem verður í
Grafarholti í september, verður
kjólaþema og lokahóf eftir mót.
„Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin eftir hvert mót í öllum
flokkum í sumar auk þess sem
verðlaun verða einnig veitt fyrir
alla mótaröðina og gilda þrjú
bestu mótin til að skera úr um
sigurvegara í f lokkunum.“ n
Nánari upplýsingar á Facebook
undir Frisbígolf og Frispíur.
Konur takast á í frisbígolfi
Svandís Hall-
dórsdóttir er í
stjórn og móta-
nefnd Íslenska
frisbígolfsam-
bandsins. Hún
hefur brenn-
andi áhuga á
að byggja upp
sportið hér á
landi og gefa
sem flestum
tækifæri á að
prófa frisbígolf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hægt er að stunda frisbígolf stærstan hluta ársins.
mYnd/BIRGIR ÓmARSSOn
Það kom mér
mikið á óvart að
eftir stuttan tíma minnk-
uðu bólgurnar mikið og
verkirnir eiginlega
hurfu.
Pétur Björnsson
Pétur segir að
Protis Liðir hafi
hentað honum
frábærlega og
gert honum
kleift að fara
aftur að hreyfa
sig og hjóla,
en áður voru
allir „demparar“
farnir úr hnján-
um. Hann fann
mikinn mun á
sér eftir fimm
daga notkun og
honum versnar
fljótt ef hann
sleppir því að
taka Liði.
mYndIR/AÐSEndAR
Sæbjúgu
eru gjarnan
kölluð „ginseng
hafsins“ en þau
innihalda lífvirka
efnið sapónín
sem er í Protis
Liðum.
Protis sérhæfir sig í þróun,
framleiðslu og sölu á líf-
virku fiskprótíni úr villtum
íslenskum þorski og öðru
sjávarfangi. Lífsgæði Péturs
Björnssonar gjörbreyttust
eftir að hann byrjaði að taka
Protis Liði.
Protis Liðir er náttúrulegt fæðu-
bótarefni sem unnið úr kollagen-
ríkum skrápi sæbjúgna með
viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni,
fyrir viðhald vöðva og túrmeriki
fyrir bólgueyðandi áhrif. Pétur er
búsettur á Sauðárkróki og starfar
sem kerfisstjóri hjá tölvufyrir-
tækinu Fjölneti, sem hann á og
rekur. Pétur hefur alla tíð stundað
íþróttir enda segist hann vera
keppnismaður. Ástæða þess að
hann byrjaði að taka inn Protis
Liði var ónýt hné.
Áhrifin komu á óvart
„Ætli ég hafi ekki byrjað að taka
Protis Liði vegna verkja í hné. Það
var fyrir um það bil sex árum.
Annað hnéð er brjósklaust og
klippa þurfti til liðþófa. Ég hef farið
í tvær aðgerðir vegna þess. Þá hef
ég einnig farið í aðgerð út af hinu
hnénu. Þar hafa liðþófar einnig
verið klipptir auk þess sem sprunga
er í brjóski. Þegar ég reyndi að
hreyfa mig urðu hnén stokkbólgin,
líkt og handbolti að stærð. Þessu
fylgdu miklir verkir, til dæmis
þegar ég gekk upp tröppur. Mér
fannst líka erfitt að sitja lengi í bíl
eða flugvél. Það var virkilega erfitt
fyrir mig að keyra frá Sauðárkróki
til Reykjavíkur,“ útskýrir Pétur.
„Ég hafði ekki mikla trú á Protis
Liðum í upphafi, en ákvað að prófa
að taka inn fjórar töflur á dag með
morgunmatnum. Um sama leyti
hætti ég að gleypa Voltaren rapid,
sem er bólgueyðandi lyf og fer ekki
vel í maga. Það kom mér mikið á
óvart að eftir stuttan tíma minnk-
uðu bólgurnar mikið og verkirnir
eiginlega hurfu. Ég veit svo sem
ekkert hvernig ég á að að útskýra
þetta, en það er eins og eitthvað
læknist í hnénu með Protis Liðum.
Ég gat allt í einu skokkað smá-
vegis og hreyft mig. Áður voru allir
„demparar“ farnir úr hnjánum,“
segir hann.
Fór að geta hjólað
Pétur er kyrrsetumaður þar sem
hann starfar við tölvur og finnst
því mikilvægt að hreyfa sig. „Ég
hjóla mikið. Það gat ég illa gert
fyrir sex árum. Það var í rauninni
alveg magnað að strax á fimmta
degi eftir að ég byrjaði á Liðum var
ég farinn að finna mikinn mun á
mér. Sömuleiðis versnaði mér fljótt
þegar ég sleppti að taka inn Liði og
fékk aftur vonda verki. Protis Liðir
hafa hentað mér frábærlega og ég
er ekkert að liggja á skoðunum
mínum um að þetta gerir mér
mjög gott. Ef ég myndi hætta alveg
að taka Liði væri ekkert annað
í stöðunni en að fara í hnjáliða-
skipti. Á meðan þetta er í lagi er ég
ekkert að hugsa um slíkt.“
Þegar Pétur er spurður hvort
hann viti um ástæðu þess að hnén
gáfu sig, svarar hann: „Ég slasaðist
fyrir rúmum 28 árum þegar ég var
að hlaupa utanvegar í Noregi þar
sem ég var í námi. Steig illa niður
og reif liðþófa, átti síðan að fara í
aðgerð sem aldrei varð úr, þannig
að fóturinn varð alltaf verri og
verri. Ég fór að setja allan þungann
á hinn fótinn og skemmdi hann
líka. Það má segja að þetta séu
týpísk íþróttameiðsli. Ég hljóp
mikið á þessum árum og tók þátt
í hinum og þessum íþróttum.
Þegar maður er vanur að hreyfa sig
kemur upp eirðarleysi og pirringur
ef það er ekki hægt af einhverjum
orsökum. Ég hef reynt ýmislegt
en á mjög erfitt með hlaup. Ég hef
hins vegar fundið mig á reiðhjólinu
enda gerir það mér gott að hjóla.
Það er frábært að hjóla hér um
sveitirnar, lítil umferð og fátt sem
truflar,“ segir Pétur. „Ég fer því út
að hjóla á hverjum degi.“
Ginseng hafsins
Skrápur sæbjúgna inniheldur
lífvirka efnið kondroitín súlfat.
Skrápur sæbjúgna inniheldur einn-
ig hátt hlutfall af sinki, joði og járni
og eru sæbjúgu gjarnan kölluð
„ginseng hafsins“ en þau innihalda
lífvirka efnið sapónín. Kollagenið
sem unnið er úr sæbjúgum inni-
heldur hátt hlutfall af mikilvægum
amínósýrum, sérstaklega tryp-
tófan, auk mangans og nauðsyn-
legra vítamína fyrir heilbrigð bein,
brjósk og liðvökva. n
Nánar á protis.is.
Protis-vörurnar fást í apótekum,
heilsuverslunum og heilsuhillum
stórmarkaða.
Fór að geta hreyft sig aftur með Protis Liðum
4 kynningarblað A L LT 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR