Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 33
Skipulagsfulltrúi
Dalabyggð óskar eftir að ráða skipulagsfulltrúa til starfa. Auk Dalabyggðar sinnir skipulagsfulltrúi verkefnum vegna skipulagsmála fyrir
Árneshrepp, Kaldrananeshrepp, Reykhólahrepp og Strandabyggð. Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur metnað og drifkraft til
að halda áfram að þróa starfið og skipulagsmál sveitarfélaganna.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
• Yfirumsjón með skipulagsmálum á svæðinu
• Ábyrgð á að framfylgja stefnu sveitarfélaganna í málaflokkum sem heyra undir
skipulagsfulltrúa
• Framkvæmd skipulagsmála og ráðgjöf við m.a. íbúa, kjörna fulltrúa, hönnuði og
verktaka um skipulagsmál
• Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
• Undirbúningur og eftirfylgni funda nefnda sveitarfélaganna varðandi skipulagsmál
• Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði
skipulagsmála
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Menntun á sviði byggingarmála skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
• Þekking og reynsla á þeim málaflokkum sem falla undir skipulagsmál
• Þekking og reynsla af stjórnun og áætlanagerð er æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Lipurð í samstarfi, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og lausnamiðun í starfi
• Góð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.intellecta.is. Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Festi starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur
skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu
eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki er veittur
sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi
milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er
í fyrirrúmi og er ýmiss konar heilsueflandi þjónusta
í boði í Velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð
kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni og N1.
• Þarfagreiningar, kostnaðarmat og fagleg samantekt
á valkostum nýrra fjárhagslausna
• Ferlagreiningar og vinna við bestun fjármálaferla
• Fagleg stýring umfangsmikilla innleiðingaverkefna
á fjármálasviði
• Framkvæmd verkfunda og stöðufunda með
starfsmönnum og ytri þjónustuaðilum
• Eftirlit með framgangi innleiddra fjárhagslausna
• Framsetning og kynning á niðurstöðum verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í verkefnastjórnun eða viðamikil reynsla
(5 ár) af verkefnastýringu
• Reynsla af verkefnastýringu á sviði fjármálalausna/-kerfa
í meðalstórum og stórum fyrirtækjum
• Þekking á reikningshaldi og fjármálaferlum meðalstórra
og stærri fyrirtækja er kostur
• Yfirsýn og geta til að vinna undir álagi
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, kraftur og góð þjónustulund
• Menntun á sviði fjármála og/eða upplýsingatækni er kostur
Festi er móðurfélag N1, Krónunnar, ELKO, Festi fasteigna og Bakkans
vöruhótels. Hjá Festi starfar öflugur hópur fagfólks á ýmsum sviðum
sem þjónustar dótturfélögin í rekstri og framþróun.
Á fjármálasviði starfa um 30 manns fyrir öll félög samstæðunnar.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2022. Umsóknir óskast fylltar út
á festi.is/cc/atvinna
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, mki@festi.is.
Verkefnastjóri á fjármálasvið Festi
Við leitum að verkefnastjóra með brennandi áhuga á innleiðingu nýrra fjármálalausna í stórri
fyrirtækjasamstæðu. Framundan eru viðamiklar innleiðingar fjármálalausna þar sem markmiðið
er að koma öllum félögum samstæðunnar í sama fjárhagsumhverfið.
Helstu verkefni:
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára