Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 38
Benchmark Genetics Iceland hf. leitar að öflugum sölustjóra á Íslandi. Í boði er spennandi og fjölbreytt starf hjá alþjóðlegu fyrirtæki
í örum vexti sem hefur að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki. Viðkomandi mun hafa umsjón með sölu á laxahrognum á
Íslandi og Færeyjum auk þess að vinna náið með alþjóðlegu söluteymi Benchmark Genetics. Starfið heyrir beint undir sölustjóra
Bechmark. Starfinu fylgja einhver ferðalög innanlands og erlendis. Það væri gott ef viðkomandi hefði bakgrunn í líffræði eða reynslu
af fiskeldi.
Sölustjórinn er hluti af alþjóðlegu teymi og því geta verkefni átt sér stað annarsstaðar en á Íslandi eða í Færeyjum.
Staðsetning starfsins er í höfuðstöðvum Benchmark Genetics Iceland í Hafnarfirði.
Það væri mikill kostur ef að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Geir Olav Melingen, sölustjóra Benchmark Genetics (norska eða enska), sími: +47 92244511
eða Geir.Olav@bmkgenetics.com eða Jónas Jónasson, jonas.jonasson@bmkgenetics.com, framkvæmdarstjóri Benchmark Genetics
Iceland sími: +354 6936306
Helstu verkefni
• Sala á laxahrognum til viðskiptavina á Íslandi og í Færeyjum.
• Sala á sláturlaxi fyrirtækisins.
• Tæknileg aðstoð við viðskiptavini.
• Tengiliður milli söluteymis og framleiðslu á Íslandi.
• Skipuleggja og fylgja eftir sendingum á hrognum til
viðskiptavina.
Hæfniskröfur
• Tala góða ensku og helst einnig íslensku og eða annað
norðurlandamál.
• Hafa góða samskiptahæfni og reynslu í að halda kynningar.
• Góð tölvukunnátta
Sölustjóri fyrir sölu á laxahrognum
á Íslandi og Færeyjum
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu
er stærsta stéttarfélagið á opinberum
vinnumarkaði. Félagið þjónar rúmlega
12500 félagsfólki um land allt. Hjá
félaginu starfar jákvætt starfsfólk með
mikla þekkingu og reynslu. Á skrifstofu
félagsins starfa 20 starfsmenn.
Sjá nánar á sameyki.is
Umsóknarfrestur er til 2. maí nk. Um
er að ræða fullt starf.
Nánari upplýsingar veita Gunnsteinn R.
Ómarsson, skrifstofustjóri á netfangið
gunnsteinn@sameyki.is og Jakobína
Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar á
netfangið jakobina@sameyki.is.
Sameyki leitar að kröftugri manneskju sem er tilbúin að taka þátt í uppbyggingarstarfi hjá
stærsta stéttarfélagi opinberra starfsmanna á Íslandi. Starfið snýr m.a. að afgreiðslu umsókna
í sjúkra- og styrktarsjóð félagsins og tilheyrir félagsdeild. Deildin er í framlínuþjónustu við
félagsmenn og er oft fyrsta snerting þeirra í heimsóknum, símhringingum og netsamskiptum.
Unnið er í teymi í þjónustudeild þó starfsmenn hennar sinni auk þess tilteknum verkefnum
þvert á deildir.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Utanumhald umsókna, útreikninga og greiðsla vegna styrkja úr styrktar- og sjúkrasjóði
• Greining og vinnsla tölfræðilegra gagna
• Almenn afgreiðsla, svörun fyrirspurna og önnur almenn þjónusta við félagsmenn
Menntunar og hæfniskröfur
• Framhaldsskólanám, fagnám á sviði skrifstofu- eða viðskiptabrautar og/eða mikil
reynsla og þekking sem nýtist í starfinu
• Reynsla af starfsemi stéttarfélaga og þekking á vinnumarkaðsmálum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla af vinnu við gagnagrunna og framsetningu gagna
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Framúrskarandi samskiptahæfni
Verkefnastjóri sjóða