Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 39
www.kronan.is
Pssst ...
Krónan auglýsir eftir markaðsstjóra sem hefur ástríðu fyrir mat, umhverfismálum, stafrænum
lausnum og daglegu búðafjöri! Við leitum að öflugri markaðsmanneskju sem er til í að stíga inn í
og móta Krónuheiminn með okkur áfram til framtíðar.
Markaðsstjóri Krónunnar annast þróun, stjórnun, ábyrgð og framkvæmd á markaðsmálum
Krónunnar – í raunheimum – en ekki síður hinum stafræna heimi.
STARFSSVIÐ:
• Mótar stefnu og markmiðasetningu markaðsdeildar
• Ber ábyrgð á framkvæmd, útfærslu og eftirfylgni
markaðsáætlunar
• Sér um samræmingu aðgerða við önnur svið
Krónunnar í tengslum við markaðssetningu
• Ber ábyrgð á samskiptum og samningum
við samstarfsaðila
• Sér um daglegan rekstur og stjórnun markaðsdeildar
HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta- og/eða
markaðsfræða
• Starfsreynsla af markaðsmálum
• Þekking á samspili stafrænna og hefðbundinna miðla
• Sköpunargleði, metnaður og frumkvæði
• Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti
Hjá Krónunni starfa um þúsund Krónusnillingar í 24 verslunum auk Snjallverslunar,
við eigum ánægðustu viðskiptavinina 5. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.
Krónan leggur áherslu á lágt vöruverð samhliða bestu mögulegum gæðum og
ferskleika vöruframboðs svo og umhverfisvænum lausnum á sem flestum sviðum.
Markmið okkar er að einfalda viðskiptavinum okkar lífið í daglegum innkaupum.
Tekið er á móti umsóknum á www.kronan.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til og með 3. maí.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla María Sigurðardóttir mannauðsstjóri
Krónunnar í síma 897-8298 eða erla@kronan.is.
Við leitum að
brakandi ferskum
markaðsstjóra!