Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 49

Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 49
Hjá Kömbum sameinast kraftar fjögurra rótgróinna íslenskra framleiðslufyrirtækja. Hjá okkur sameinast áratuga reynsla og þekking á íslenskum byggingarmarkaði og saman erum við einn stærsti framleiðandi landsins á gluggum, gleri og hurðum fyrir íslenskar aðstæður. Lagerstjóri í Kópavogi Leitum að jákvæðum og þjónustumiðuðum einstaklingi í starf lagerstjóra. Þarf að vera skipulagður, fær í mannlegum samskiptum og geta unnið bæði sjálfstætt og með öðrum. Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er æskileg. Helstu verkefni og ábyrgð: – Dagleg umsjón með birgðahaldi og vöruflæði – Móttaka og afhending á vörum – Samskipti við söludeild og viðskiptavini Starfsmenn í framleiðslu Leitum að jákvæðum og samviskusömum einstaklingum til starfa í framleiðslu á starfsstöðvum okkar á Akureyri, Selfossi, Hellu og Hafnarfirði. Viðkomandi þurfa að vera vandvirkir, hafa gott auga fyrir smáatriðum og geta unnið bæði sjálfstætt og með öðrum. Helstu verkefni og ábyrgð: – Framleiðsla á vörum fyrirtækisins – Önnur tilfallandi verkefni KAMBAR LEITA AÐ STARFSFÓLKI FJÖLBREYTT STÖRF HJÁ SPENNANDI FYRIRTÆKI SAMVERK GLERVERKSMIÐJA BÖRKUR TRÉSMIÐJA GLUGGASMIÐJAN SELFOSS SVEINATUNGA SVALAHANDRIÐ Söluskrifstofa Smiðjuvegi 2 | Sími 488 9000 | kambar.is Verkefnisstjóri í söludeild Leitum að húsasmið og/eða byggingariðnfræðingi í starf verkefnisstjóra í söludeild. Þarf að vera jákvæður og þolinmóður, lausnamiðaður, lipur í samskiptum, geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir og fundið lausnir í samráði við sitt bakland. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af verklegum framkvæmdum og sölustörfum. Helstu verkefni og ábyrgð: – Almenn sala á vörum og þjónustu Kamba – Samskipti við viðskiptavini – Tilboðsgerð og reikningar Nánari upplýsingar veita Kristján Geir Gunnarsson framkvæmdastjóri (kgeir@kambar.is) og Eiríkur Guðmundsson framleiðslustjóri (eirikur@kambar.is). Umsóknir berist á umsoknir@kambar.is Umsóknarfrestur er til og með 9. maí Vegna aukinna umsvifa hjá sameinuðu félagi leitum við að metnaðarfullu starfsfólki á nokkrar starfsstöðvar okkar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.