Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 69

Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 69
Eitt eftirminnilegasta viðtal sem Illugi Jökulsson hefur tekið á löngum ferli birtist í tímaritinu Storð fyrir 39 árum. Nú lifnar spjallið við Halldór Laxness á ný í vinsælum útvarpsþætti Illuga. gar@frettabladid.is „Mér fannst þetta hlyti að vera skemmti- legra en að ég læsi þetta bara allt sjálfur,“ segir Illugi Jökulsson, sem lokið hefur upptökum á útvarpsþætti þar sem flutt verður viðtal sem hann átti við Halldór Laxness í Tímaritinu Storð árið 1983. Með Illuga í lestrinum verður leikar- inn Pálmi Gestsson sem vitanlega les þátt Nóbelsskáldsins í viðtalinu og Ill- ugi sinn hlut. „Hann er ekki beinlínis að herma eftir Halldóri en les þó með hans rödd og raddblæ í huga, skulum við segja,“ svarar Illugi, spurður hvort Pálmi sé að herma eftir Laxness. Illugi segir frá því á Facebook-síðu sinni að viðtalið við Halldór Laxness sé eitt eftirminnilegasta verk sem hann hafi unnið á ferlinum. „Þetta er langt og mikið viðtal og mjög eftirminnilegt – fyrir mig!“ segir Illugi. Í dag eru 120 ár frá fæðingu skáldsins og lagst var í verkefnið til að minnast þeirra tímamóta. Spurður hvaðan hugmyndin um sam- lestur þeirra Pálma hafi komið segir Ill- ugi að honum hafi einfaldlega sjálfum dottið þetta í hug. Hann játar að vel hafi til tekist. „Það er mjög fínn tónn hjá Pálma, enda er maðurinn séní,“ segir Ill- ugi, sem verður ásamt Pálma Gestssyni og Halldóri Laxness í Frjálsum höndum í Ríkisútvarpinu á sunnudagskvöld. n Endurskapa fjögurra áratuga gamalt viðtal við Laxness Illugi Jökulsson og Pálmi Gestsson í hljóðveri með Halldór Laxness á milli sín. Mynd/GeorG MaGnússon Sem ungum blaðamanni á Storð var Illuga Jökulssyni falið að ræða við Nóbelskáldið og tók hann viðtalið „einn sæmilegan veðurdag snemma í júlí“. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðlaugur Ketill Ketilsson vélfræðingur, Þjóðbraut 1, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 20. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Ingibjörg Rafnsdóttir Erna Björg Guðlaugsdóttir Hörður Sigurbjarnason Rafn Hafberg Guðlaugsson Lísa Sigríður Greipsson Birkir Guðlaugsson Sif Davíðsdóttir Katla Guðlaugsdóttir Ólafur Sævarsson afabörnin og langafabörnin. Yndislegi pabbi okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Ágústsson verkfræðingur, áður til heimilis í Suðurbyggð 7, Akureyri, andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð að kvöldi miðvikudagsins 13. apríl sl. Útför hans verður frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 28. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfėlög. Alúðarþakkir sendum við þeim sem hafa annast hann og sýnt honum og okkur kærleik og hlýju. Ágúst Jóel Magnússon Ásdís Arnardóttir Gylfi Ívar Magnússon Helga Jóna Óðinsdóttir Astrid Margrét Magnúsd. Heimir Arnar Sveinbjörnsson Oddrún Halldóra Magnúsdóttir Bryndís Pernille Magnúsd. Marco Pettinelli barnabörn og langafabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Eddu Júlíusdóttur Furugrund 38, Akranesi. Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða. Guð blessi ykkur öll. Björgvin Hólm Hagalínsson Ásdís Emilía Björgvinsdóttir Pétur Pétursson Lára Hagalín Björgvinsdóttir Garðar Jónsson Júlíus Björgvinsson Bergdís Saga Gunnarsdóttir Jónas Björgvinsson Guðfinna Helgadóttir ömmubörnin og langömmubörnin. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Davíð Scheving Thorsteinsson lést á Landspítalanum föstudaginn 8. apríl sl. Útför hans mun fara fram í Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 25. apríl klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Rauða krossinn á Íslandi. Stefanía Borg Thorsteinsson Laura Sch. Thorsteinsson Magnús Pálsson Hrund Sch. Thorsteinsson Gunnar Ingimundarson Jón Sch. Thorsteinsson Ragnheiður Harðardóttir Magnús Sch. Thorsteinsson Þórey Edda Heiðarsdóttir Guðrún Sch. Thorsteinsson Stefanía Sch. Thorsteinsson Jóhann Torfi Ólafsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir. Elskulegur eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Kjartan Mogensen landslagsarkitekt, Norðurbrún 20, Reykjavík, lést á heimili sínu þann 16. apríl. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. maí kl. 15. Halldóra Ólafsdóttir Erik Julius Mogensen Asbjørnsen Marit Strand Asbjørnsen Helga Kristín Mogensen Gunnlaugur Úlfsson Anna Ingeborg Pétursdóttir Mitchell Weverka Snorre, Haakon, Úlfur, Kjartan Leó, Jackson Ólafur og Audrey Anna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Hjörleifur Jónsson skólastjóri, prestur og söngstjóri, Hrafnistu Hafnarfirði, áður Lyngrima 15, Reykjavík, lést að morgni 19. apríl. Útförin fer fram í Háteigskirkju mánudaginn 2. maí kl. 13. Athöfninni verður streymt. Upplýsingar um streymið birtast síðar. Sólveig Hjördís Jónsdóttir Stefán Stefánsson Kristín Guðrún Jónsdóttir Jón Thoroddsen Jón Árni Jónsson Linda Dís Guðbergsd. Kolbrún Sif Jónsdóttir Muchiutti Ricardo Muchiutti barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, Árni Jón Árnason húsgagnasmíðameistari, Sléttuvegi 31, lést miðvikudaginn 13. apríl á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Sléttuveg. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 29. apríl kl. 14. Edda Þorsteinsdóttir Árni Jón Árnason Ingibjörg Guðmundsdóttir Þorsteinn Árnason Erna S. Árnadóttir Guðni Gunnarsson barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir fyrrverandi kennari, lést á heimili sínu sunnudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 28. apríl kl. 15. Helga Kristín Gunnarsdóttir Þorleifur Óskarsson Vilhjálmur Gunnarsson Liming Dai Ari Þór Vilhjálmsson Gunnar Már Þorleifsson Birna Erlingsdóttir Óskar Helgi Þorleifsson Sara Þöll Finnbogadóttir Harpa Sigríður og Bergsteinn Gunnarsbörn. Ástkær eiginkona og móðir, Kristín Jóhanna Kjartansdóttir Stína frá Bakka tækniteiknari, Fiskakvísl 28, lést á GE11 Landspítala Hringbraut sunnudaginn 17. apríl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju 2. maí kl. 13.00. Stefán Hans Stephensen Kjartan Á. Guðbergsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma okkar, Eva Sóley Rögnvaldsdóttir kennari, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu Hömrum í Mosfellsbæ, miðvikudaginn 13. apríl. Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju mánudaginn 25. apríl klukkan 12. Magnús Sveinsson Cecilía Magnúsdóttir Örn Arnarson Íris Magnúsdóttir Sveinn Snorri Magnússon Elín Málmfríður Magnúsdóttir og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, vinkona, amma og langamma, Edda Laufey Pálsdóttir Fróðengi 1, Reykjavík, áður til heimilis að Hafnarbergi 16, Þorlákshöfn, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 13. Streymt verður frá útförinni á: laef.is/edda-laufey-palsdottir Laufey Elfa Svansdóttir Tor Ulset Páll Kristján Svansson Kristín Berglind Kristjánsdóttir Guðrún I. Svansdóttir Bjarni Jónsson Árni Vilhjálmsson barnabörn og barnabarnabörn. Hann er ekki beinlínis að herma eftir Halldóri en les þó með hans rödd og raddblæ í huga. FréttablaðiðLAUGARDAGUR 23. apríl 2022 Tímamót 37L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.