Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 2
Ég tók sextán hnífa um
síðustu helgi og í
vikunni er ég með tólf
hnífa.
Ýmir Hafliðason Garcia,
hnífabrýnari
Heimalningum gefið
Henrik Lange, stórbóndi í Mývatnssveit, gefur heimalningunum Rauð og Hrafni pela en síðasta ærin hjá Henrik og föður hans Daða bar í gær. Þar með lauk
sauðburði hjá þeim feðgum þetta vorið. Hrafn, sem er svarta lambið, hefur braggast vel síðan hann kom í heiminn en hann var ákaflega lítill og veikburða
þegar hann birtist og vart hugað líf. Henrik gefur heimalningunum pela tvisvar á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/BENEDIKT BÓAS
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Ýmir Hafliðason Garcia
byrjaði ungur að brýna hnífa
en hollensk-amerískur fjöl-
skylduvinur kenndi honum
réttu handtökin. Hann segist
hafa brýnt fjölskylduhnífana
trúlega um þúsund sinnum
en nú sé hann farinn að færa
út kvíarnar og noti peningana
sem hann fái til að borga
keppnis- og skólaferðalög.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Það er hægt að finna
bit í hverjum hníf. Það þarf bara að
veita þeim smá umhyggju,“ segir
hinn þrettán ára Ýmir Hafliðason
Garcia sem vakið hefur athygli með
hnífabrýningum. Mælt var með Ými
í hverfagrúppunni 108. Amerískur
fjölskylduvinur kenndi guttanum
réttu handtökin.
Edwin Demper, sem er Hollend-
ingur frá Utrecht, býr nú og starfar
sem framhaldsskólakennari í New
York og brýnir og smíðar hnífa í frí-
stundum. Hann kom til landsins og
gaf Ými svissneskan hníf og brýn-
ingarstein til að halda bitinu við.
„Ég hef verið að brýna fyrir fjöl-
skylduna síðan sem hefur undið
upp á sig. Ætli ég hafi ekki brýnt
fjölskylduhnífana svona þúsund
sinnum,“ segir Ýmir og hlær. „Ég fékk
góða kennslu frá honum en ég var
mjög ungur þannig að ég gleymdi
nú alveg smá hluta. En grunnurinn
festist. Lærdómurinn kemur frá
honum en svo fór ég á YouTube og
fann frekari upplýsingar.“
Ýmir er stoltur af því að stuðla að
endurvinnslu og minni mengun.
„Ég er með hér hjá mér núna tólf
hnífa sem hefðu allir getað endað
á haugunum. Þetta kennir líka
ungu fólki að endurnýta hlutina
eins og gert var í gamla daga. Það er
mengandi að gera hnífa og óþarfi að
henda því sem hægt er að endurnýta
auðveldlega.“
Ýmir segir að hann geti með þessu
safnað sér fyrir keppnis- og skóla-
ferðalögum framtíðarinnar en hann
er á fullu með SR í íshokkí.
„Ég tók sextán hnífa um síðustu
helgi og í vikunni er ég með tólf
hnífa. Það er mjög mismunandi
hvað ég er lengi með hvern hníf,
það fer bara eftir ástandinu á þeim.
Núna tók ég tíu mínútur með vel
farinn hníf en stundum fer þetta
upp í klukkutíma ef hnífurinn er illa
farinn. Við keppum mikið á Akur-
eyri og þær ferðir eru dýrar fyrir mig
þannig að þetta er góð viðbót.“
Ýmir var fjórði stigahæstur á
landinu í U16 og ellefti stigahæstur
í U18 á síðasta tímabili þrátt fyrir að
vera einungis þrettán ára. En hann
brýnir samt ekki skautana sína.
„Ég er fæddur í Kína og síðustu
árin sem ég bjó þar bjuggum við
nálægt verslunarmiðstöð og þar var
skautasvell inni. Ég fór einu sinni
með mömmu á skauta og sá þar tvo
krakka vera að skauta ógeðslega
hratt fram og til baka í svona kúl
búningi. Þá kom áhuginn,“ segir
Ýmir
„Þegar við fluttum til Íslands fór
ég á námskeið hjá Birninum sem
nú er Fjölnir og þannig byrjaði
íshokkíið,“ segir brýnirinn ungi sem
athugar bitið á hverjum hníf eftir að
hafa unnið með þá.
„Það eru alls konar leiðir til að
prófa bitið aftur á hnífum. Til
dæmis með pappír. Ef hann sker
pappírinn hreint er það gott bit. Það
eru miklir pappírsklumpar um allt
húsið sem gleðja mömmu og pabba
mjög mikið,“ segir Ýmir og hlær. „En
ég tek til eftir mig. Það er góð regla
að taka til eftir sig. Það er held ég
bara góð regla í lífinu.“ n
Borgar keppnisferðalög
með því að brýna hnífa
Ýmir segir að hann geti safnað sér fyrir keppnis- og skólaferðalögum fram-
tíðarinnar með hnífabrýningum. Hann er í íshokkí hjá SR. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
gar@frettabladid.is
SVÍÞJÓÐ Ann Linde, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, segir það vera
alvarlegar og óréttmætar ásakanir
að Svíar styðji PKK, aðskilnaðar-
hreyfingu Kúrda sem Tyrkir skil-
greina sem hryðjuverkasamtök.
Þetta segir í tísti sem Linde sendi
frá sér á Twitter.
Linde segir að bornar séu á borð
rangar upplýsingar um að sænskir
stjórnmálamenn í lýðræðislegum
samtökum séu fulltrúar PKK.
„Ofbeldi, hryðjuverk og öfgastefnur
eiga sér ekkert pláss í lýðræðislegu
samfélagi okkar,“ skrifar Linde.
Recep Tayyip Erdoğan, forseti
Tyrklands, segir Tyrki ekki geta fall-
ist á inngöngu Svía og Finna vegna
meints stuðnings þeirra við hryðju-
verkasamtök. n
Ásakanir Tyrkja
eru alvarlegar
Ann Linde, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
arnartomas@frettabladid.is
BANDARÍKIN Á meðan að skotárásin
í Robb Elementary-skólanum stóð
yfir braust móðir fram hjá lögreglu
til að bjarga börnum sínum sem
voru inni í skólabyggingunni. Fjöldi
foreldra hafði reynt að komast inn í
skólann en lögreglan meinaði þeim
inngöngu. Áður en hún tók málin í
eigin hendur var Angeli Rose Gomez
handjárnuð fyrir að reyna að trufla
rannsókn lögreglu. Hún hljóp strax
af stað inn í skólann þegar lögreglan
losaði handjárnin.
Lögregluyfirvöld í Texas hafa verið
harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð sín
í skotárásinni þar sem nítján börn og
tveir kennarar voru myrtir í borginni
Uvalde.
Á blaðamannaf undi í gær
sagði Steven McCraw, yfirmaður
almannavarna í Texas, að ákvörðun
lögreglustjóra um að láta lögreglu-
menn ekki reyna strax að fara inn í
skólann til að fást við byssumanninn
væri röng. „Eftir á að hyggja þá var
þetta auðvitað ekki rétt ákvörðun.
Þetta var röng ákvörðun – punktur!“
sagði McCraw á fundinum. „Ég var
ekki þarna en miðað við það sem
við vitum núna þá hefði átt að fara
inn inn eins fljótt og auðið varð.“
SJÁ SÍÐU 12
Segir lögreglu hafa brugðist rangt við
Steven McCraw yfirmaður almanna-
varna í Texas. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2 Fréttir 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ