Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 4
Ef ég bara gæti svarað
því í stuttu máli hvers
vegna það hefur tekið
svona langan tíma að
bregðast við.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir,
forstjóri MAST
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP.IS
EIGUM BÍLA
TIL AFHENDINGAR
STRAX!
PLUG-IN HYBRID
Jeep® Wrangler Rubicon 4xe goðsögnin rafmagnaða
hefur svo sannarlega slegið í gegn og sannað gildi
sitt við íslenskar aðstæður. Bjóðum upp á 35”-37”
og 40” breytingapakka.
Fimmtán ára skeytingarleysi
Íslendinga vegna förgunar
á dýrapörtum og hræjum
fer fyrir Evrópudóm. Víta-
hringur, segir forstjóri MAST.
Kostnaðarsamar úrbætur
óhjákvæmilegar.
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Eftirlitsstofnun EFTA
(ESA) hefur ákveðið að vísa máli til
EFTA-dómstólsins þar sem Ísland
hefur ekki farið að reglum EES um
förgun aukaafurða úr dýrum.
Fimmtán ár eru síðan ESA gerði
fyrst athugasemdir við hætti hér-
lendis í þessum efnum.
Íslandi er skylt samkvæmt EES-
lögum að tryggja að skrokkum eða
líkamsleifum dýra, sem ekki eru
ætlaðir til manneldis, sé fargað
með aðferðum sem lágmarka hugs-
anlega heilsufarsáhættu almenn-
ings og dýra.
Íslensk stjórnvöld hafa hunsað
að bregðast við.
Eftirlitsstofnun EFTA gerði fyrst
formlega athugasemd árið 2009 og
heimsótti Ísland árið 2013 til að
meta innleiðingu EES-krafna fyrir
aukaafurðir úr dýrum.
Niðurstaðan varð að tilteknum
aukaafurðum úr dýrum væri fargað
beint á óviðkomandi urðunarstöð-
um án undangenginnar vinnslu
eða þær grafnar á staðnum í blóra
við EES-reglur.
Íslensk stjórnvöld fengu áminn-
ingarbréf sem stjórnvöld sinntu
ekki. Neikvæð loftslagsáhrif hafa
orðið af því að Ísland hundsar lög-
bundnar skyldur að mati ESA.
„Enn í dag er verið að urða mörg
þúsund tonn af þessum úrgangi á
hverju ári á Íslandi, um allt land,“
segir sérfræðingur innan stjórn-
sýslunnar.
Ísland þyrfti að taka svokall-
aðan áhættuvef úr dýrum, svo sem
heilann, brenna hann fyrst og urða
svo með ákveðnum hætti. Annar
úrgangur er nýtanlegur og gæti
farið í fjölbreytta vinnslu, moltu-
gerð eða gæludýrafóður.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, for-
stjóri MAST, segir að hennar stofn-
un beri ekki ábyrgð á ástandinu.
„Ef ég bara gæti svarað því í
stuttu máli hvers vegna það hefur
tekið svona langan tíma að bregð-
ast við,“ segir Hrönn og staðfestir
að um risastórt mál sé að ræða.
Umhverfisstofnun og Matvæla-
stofnun eiga að framfylgja reglum
í þessum efnum.
Ek k i náðist í f u l lt r ú a f r á
Umhverfisstofnun vegna málsins
en MAST hefur gefið ríkinu sér-
fræðiálit, að sögn forstjóra MAST.
Málið varðar f leiri stofnanir,
sveitarfélög og að minnsta kosti
þrjú ráðuneyti: matvælaráðuneyti,
umhverfis- og loftslagsráðuneyti
og innviðaráðuneyti.
„Þetta fjallar um að áhættuvef
úr dýrum, eins og heila, hausa og
f leira, má ekki urða, samanber
hugsanleg riðusmit, en það eru
bara engin önnur úrræði hér á
landi,“ segir forstjóri MAST.
Aðeins einn brennsluofn er á
landinu fyrir sýktar afurðir. Á
sama tíma er öllum sveitarfélögum
landsins skylt að losna við þennan
úrgang.
„Ef ekki á að urða þarf að brenna
en sveitarfélögin eru fæst í stakk
búin til að setja upp háþróaða
brennslu sem getur tekið við þessu.
Við höfum verið í þessum vítahring
í næstum 15 ár,“ segir Hrönn.
„Þetta mál þarf að leysa á borði
ríkisstjórnar og sveitarstjórna, það
þarf að tryggja að þessir innviðir
séu til staðar.“ n
Langvarandi vanræksla Íslendinga í
umhverfismálum til EFTA-dómstóls
Meðferð dýra-
hræja hér á
landi er stórlega
ábótavant og
er svo komið
að ESA höfðar
dómsmál
gegn Íslandi
fyrir EFTA-dóm-
stólnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EGILL
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Margir í hælisleitenda-
hópnum sem stendur til að vísa burt
frá Íslandi hafa náð 12 mánaða tíma-
mörkum með veru sinni hér á landi.
Eigi að síður, þrátt fyrir áhrif kórón-
aveirufaraldursins, hefur þeim verið
synjað um endurupptöku og efnis-
meðferð vegna ásakana stoðdeildar
ríkislögreglustjóra um tafir.
Sumar þessara ásakana eru á ansi
veikum grunni. Í öðrum tilvikum
beinlínis rangar, að sögn Magnúsar
Norðdahl lögmanns. Magnús segir
að dómsmál hafi verið höfðað um
eitt þessara mála og verði málið flutt
13. september næstkomandi.
„Ef málið vinnst er það fordæmis-
gefandi fyrir aðra í sömu stöðu,
það er að segja hælisleitendur sem
hafa mátt sæta ásökunum um tafir.
Stjórnvöld vilja eftir sem áður ekki
bíða niðurstöðu heldur taka þess í
Vill frysta brottvísanir fram yfir prófmál
Magnús
Norðdahl,
lögmaður
stað þá áhættu að framkvæma tugi
ef ekki hundruð brottvísana sem
síðar kann að koma í ljós að séu ólög-
mætar,“ segir Magnús.
Lögmaðurinn segir að stjórnvöld
sýni óbilgirni ef þau vilja ekki bíða
eftir niðurstöðu fordæmisgefandi
dóms sem gæti haft áhrif á stöðu
þeirra sem hafa náð tímamörkum.
„Það er hvorki í samræmi við
meðalhóf né góða stjórnsýsluhætti,“
segir Magnús Norðdahl. n
thorgrimur@frettabladid.is
PALESTÍNA Fréttamiðillinn Al Jazeera
hefur ráðið teymi lögfræðinga til
að fara með morðið á Shireen Abu
Akleh fyrir Alþjóðlega sakamála-
dómstólinn í Haag.
Abu Akleh var blaðakona Al
Jazeera sem ísraelskir hermenn
skutu til bana 11. maí nærri Jenin-
flóttamannabúðunum á hernáms-
svæði Ísraela á Vesturbakkanum.
Í yfirlýsingu Al Jazeera var bent
á að dráp eða árásir á blaðamenn á
átakasvæðum eða hernámssvæðum
væru stríðsglæpur samkvæmt Róm-
arsamþykktinni. Þá vill Al Jazeera að
dómstóllinn rannsaki sprengjuárás-
ir ísraelska hersins á skrifstofubygg-
ingu fréttamiðilsins í Gasa 2021. n
Dráp í Ísrael fyrir
sakamáladómstól
Veggmynd af Shireen Abu Akleh í
Gazaborg. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ser@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Reglugerð sem heimil-
ar innflutning á hundum og köttum
flóttafólks frá Úkraínu hefur tekið
gildi hér á landi með ákvörðun
matvælaráðherra. Hún er sett í ljósi
þess að tíundi hver maður sem flúið
hefur landið á síðustu mánuðum
hefur haft gæludýr sín meðferðis.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun
segir að langflest ríki Evrópusam-
bandsins hafi veitt undanþágur
vegna innflutnings gæludýra.
Gæludýrin þurfa allt að fjögurra
mánaða einangrun við komu. Við
lok einangrunar skulu þau hafa
staðist öll skilyrði líkt og gildir um
hefðbundinn innflutning. n
Gæludýrin mega
koma til Íslands
Vegalaus köttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
4 Fréttir 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ