Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.05.2022, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 28.05.2022, Qupperneq 22
n Í vikulokin Ólafur Arnarson Brestirnir í þessari ríkisstjórn eru alvar- legri en í ríkisstjórn Jóhönnu. Markmiðið með bók- inni og þessu viðtali er að vekja fólk til umhugs- unar, ekki síst þá karla sem kaupa sér vændi. BJORK@FRETTABLADID.IS Við mælum með Brestirnir í stjórnarsamstarfinu sjást með berum augum Kaffi Ó-le Við Hafnarstræti 11 hefur verið opnað viðkunnanlegt kaffihús og er nafnið bein vísun í hið goðsagna- kennda Café Au Lait sem áður var til húsa á sama stað. Ljúffengar súpur, samlokur og eðalkaffi eru aðals- merki staðarins þar sem ljúft er að sitja í björtu og stílhreinu umhverfi. Hljómsveitin Írafár fékk í vikunni afhenta tvöfalda platínuplötu fyrir plötuna sína Allt sem ég sé, sem á árinu fagnar tuttugu ára afmæli og verður í kvöld flutt í heild sinni í Eldborg. bjork@frettabladid.is Um leið og sveitinni var af hent platínuplatan, fékk Birgitta Hauk- dal, söngkona hennar, heiðursverð- laun bæjarlistamanns Garðabæjar og náðum við tali af henni í tilefni þessara margföldu tímamóta. „Það var virkilega gaman að fá í hendurnar þessa tvöföldu platínu- plötu enda sjaldgæft að plata seljist í 20 þúsund eintökum hér á landi. Umhverfið hefur jafnframt breyst svo mikið í þessum efnum að eng- inn veit hvort gull- eða platínu- plötur verði afhentar meir,“ segir Birgitta og bætir við að ekki skemmi fyrir að platan eigi stórafmæli í ár, 20 ára. Bæjarlistamaður Garðabæjar Birgitta er bæjarlistamaður Garða- bæjar fyrir árið 2022 og segist hún farin að skjóta rótum í bænum. „Ég hef búið hér í rúman áratug með fjölskyldunni og er farin að skjóta rótum. Maðurinn minn er fæddur hér og uppalinn og börnin orðin rótgróin svo ég sé okkur ekk- ert fara þaðan á næstunni. Okkur líður rosalega vel hér,“ segir Birgitta, sem enn á þó sterkar taugar norður á Húsavík þar sem hún bjó fyrstu 18 ár ævi sinnar. En að kvöldinu, þar sem sveitin ætlar að koma saman í Eldborg eins og hún gerði fyrir fjórum árum, þá eftir 12 ára hlé. „Það var Viggi, Vignir Snær Vign- isson gítarleikari Írafárs, sem ýtti þessu í gang núna því hann lang- aði að halda upp á þessa plötu. Við tökum því öll lögin af henni í bland við önnur vinsæl. Það er sérstaklega gaman að halda upp á byrjunina okkar á þennan hátt.“ Tilfinningar í hverju lagi Birgitta segir það hafa verið æðis- lega tilfinningu að koma saman aftur og því vilji þau endurtaka leikinn. „Það er einstök tilfinning að hitta þessa gaura, spila þessi lög og hanga saman.“ Birgitta segir lögin vera stóran hluta af henni sjálfri. „Í hverju lagi á maður smá sögu. Ég sem textana og þó að auðvitað séu ekki allir textar einhver heilagur sannleikur eru alltaf einhverjar tilfinningar og ein- hver saga frá manni sjálfum tengd hverju lagi.“ Aðspurð segir Birgitta það ólýsan- lega tilfinningu að flytja eigið efni á sviðinu í Eldborg, allt aðra tilfinn- ingu en að flytja efni annarra eins og hún hafði áður gert. „Það eru algjör forréttindi að fá að gera þetta.“ Höfum aldrei hætt Hún segir áhorfendur fyrri tón- leikanna hafa verið blöndu eldri og nýrri aðdáenda. „Það heyrðist alveg greinilega í hörðustu aðdáendunum en svo sá maður alveg yngra fólk inn á milli. Fólk sem var bara smábörn þegar við vorum vinsælust en er nú orðið fullorðið og mætt að öskur- syngja með lögunum. Ég vil bara þakka foreldrum þeirra fyrir gott tónlistarlegt uppeldi,“ segir Birgitta sposk. „Við erum hrikalega spennt og í leiðinni með fiðring. Maður vill standa sig. Við erum búin að æfa á fullu og þetta er allt að smella. Við ætlum bara að fara upp á svið og njóta. Við erum tilbúin.“ Aðspurð hverju gestir eigi von á svarar hún: „Ég held þetta verði blanda af rokki og róli, nostalgíu og einhverri einlægni í bland.“ Birgitta segir sveitina ekki vera að fara á fullt en hún hafi heldur aldrei hætt. „Við höfum aldrei verið hljóm- sveitin sem segist hafa hætt. Við verðum á Bræðslunni í sumar sem verður mjög líklega eini staðurinn sem við komum fram á í sumar en aldrei að segja aldrei – það er aldrei að vita hvort við poppum einhvers staðar upp.“ n Rokk, nostalgía og einlægni í bland Írafár kom saman í Eldborg fyrir fjórum árum síðan og stígur aftur á svið í kvöld. MYND/MUMMI LÚ Hljómsveitin Írafár var gríðarlega vinsæl í kringum aldamótin. Í vikunni kom út bókin, Venjulegar konur, og fjallar hún um vændi á Íslandi. Í þessu tölublaði er að finna viðtal við eina þeirra kvenna sem í bókinni segja frá reynslu sinni. Eina af þeim venjulegu konum sem leiðst hafa út í vændi hér á landi vegna fátæktar og áfalla. Frásögn hennar er sláandi. Hvort sem litið er til afleiðinga vændisins sem voru áfalla- streituröskun, kvíði, þunglyndi, félagsfælni og lágt sjálfsmat, en hún segir það fullum fetum í viðtalinu að vinna með Stígamótum hafi bjargað lífi hennar. Eða ástæðu þess að hún tók ákvörðun um að selja aðgang að líkama sínum, en veikindi og seinagangur kerfisins festi hana í slíkri fátækt að hún sá ekki aðra kosti til að ná endum saman. Eða þá fordómarnir og þekkingarleysið sem konur í hennar stöðu hafa mætt í sam- félaginu, en hún segir hæðst að þeim og gert lítið úr orðum þeirra. Markmiðið með bókinni og þessu viðtali er að vekja fólk til umhugsunar, ekki síst þá karla sem kaupa sér vændi. Eða með orðum þessarar konu: „Til að þeir átti sig á því að þeir eru að skaða aðra mann- eskju, jafnvel þó þeir vilji trúa öðru.“ n Venjulegar konur í vændi Sjónvarpsáhorfendur rak í rogastans þegar Guðmundur Ingi Guðbrands- son, félags- og vinnumarkaðsráð- herra, birtist í tíu fréttum RÚV í vikunni með fullyrðingar um að samráðherra hans, Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefði farið með ósannindi um stjórnarsamstarfið í Kastljósi fyrr um kvöldið. Brestirnir í ríkisstjórnarsamstarf- inu dyljast engum lengur Þegar ráð- herrar stunda innbyrðis tjáskipti af þessu tagi er það skýrt merki um að eitthvað mikið sé að. Samstarf VG og Sjálfstæðisflokks- ins í ríkisstjórn var undarlegt frá byrjun. Enn furðulegra varð það við endurnýjun þess í haust þegar báðir flokkar komu laskaðir til leiks. Katrín Jakobsdóttir virðist sátt við hlutverk sitt sem stuðningsmaður stækkunar NATO. Flokkur hennar var sviptur sínum helstu málaflokk- um við stjórnarmyndunina í haust. Guðmundur Ingi, varaformaður f lokksins missti umhverfisráðu- neytið og heilbrigðismálin runnu úr greipum Svandísar Svavarsdóttur. Klúður Íslandsbankaútboðsins hefur orðið til þess að Bjarni Bene- diktsson fær ekki að selja f leiri banka en hann unir þó sáttur við sitt. Stjórnarsamstarfið er varðstaða íhaldsflokka um kyrrstöðu og sér- hagsmunagæslu. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir lýsti því árið 2010 hvernig það væri eins og að smala köttum að ná meirihluta fyrir málum á þingi í samstarfi við Vinstri græn var hún að tala um óbreytta þingmenn þess flokks en ekki ráðherra. Brestirnir í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eru mun alvarlegri en brestirnir í ríkisstjórn Jóhönnu. Varaformaður f lokks forsætisráð- herra og ráðherra sakar samráð- herra, sem forsætisráðherra hafði varið fimlega í fjölmiðlaviðtölum sama dag, um lygar. Einhverjir myndu kalla slíkt hníf- stungu í bak forsætisráðherra. Ein- hverjir aðrir myndu draga þá álykt- un að stuðningur grasrótar Vinstri grænna við stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum sé á þrotum. n Fiski dagsins á Apótekinu  Á Apótekinu má fá fisk og súpu dagsins í hádeginu á 2.990 krónur. Þarna mætist smekkleg hönnun í sögufrægu húsi og rúsínan í pylsu- endanum er glæsilegt eftirrétta- borð, en þar má grípa með sér fal- legt og framúrskarandi góðgæti inn í daginn. n 22 Helgin 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.