Fréttablaðið - 28.05.2022, Side 28
Barnabækur um galdrastrák,
erótísk skáldsaga og kyn-
segin myndasaga eru á meðal
þeirra bóka sem bannaðar
hafa verið í gegnum tíðina.
Svo lengi sem bækur hafa
verið skrifaðar hafa verið
til þeir sem vilja ekki að
þær séu lesnar. Ritskoðun
hefur verið stunduð allt frá
árdögum ritlistar og lifir enn góðu
lífi víða um heim. Fréttablaðið tók
saman lista yfir fimm af bönnuð-
ustu og umdeildustu ritum bók-
menntasögunnar. Listinn er síður
en svo tæmandi og að baki bönn-
unum liggja ólíkar ástæður; allt frá
trúarhita ofstækismanna og við-
skiptabönnum woke-kynslóðar-
innar til tepruskapar íhaldsins. ■
Bönnuðustu rit bókmenntasögunnar
Íranskar konur
mótmælta
Söngvum Sat
ans eftir Salman
Rushdie í Te h
er an árið 1989.
Konurnar halda
á eftirlíkingum
af Kóraninum og
fyrir aftan þær
má sjá borða
þar sem kallað
er eftir dauða
Rushdie.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Þorvaldur S.
Helgason
thorvaldur
@frettabladid.is
Stikilsberja-Finnur
eftir Mark Twain
Skáldsagan Huckleberry Finn, eða Stikils
berjaFinnur, eftir Mark Twain er ein þekktasta
skáldsaga bandarískrar bókmenntasögu. Bókin
segir frá ævintýrum vinanna Finns og Tuma á
Mississippifljóti þar sem þeir hjálpa meðal
annars strokuþrælnum Jim að flýja til frelsis.
Bókin hefur verið umdeild allt frá útgáfu hennar
1884 en hún fjallar um tvo stærstu smánarbletti
bandarískrar sögu; rasisma og þrælahald.
Þegar bókin kom fyrst út
þótti mörgum alþýðlegur
stíll hennar ruddalegur og
ekki við hæfi siðmenntaðra
lesenda. Almenningsbóka
safnið í Concord bannaði til
að mynda bókina á grundvelli
þess að hún væri bókmennta
legt sorp og brást Mark Twain
við þeim fregnum með því að
segja við útgefanda sinn: „Við
munum án efa selja önnur 25
þúsund eintök vegna þessa!“
Bókin hefur haldist umdeild
allt til dagsins í dag en nú eru
það einna helst afdráttarlausar
lýsingar á kynþáttahyggju 19.
aldar og notkun höfundar á
norðinu svokallaða sem fara
fyrir brjóstið á nútíma les
endum.
Gender Queer
eftir Maia Kobabe
Bandaríska bókasafnasambandið (ALA) hefur um
áraraðir fylgst með tilraunum bandarískra bóka
safna til að banna tilteknar bækur þar í landi og
gefur út lista yfir umdeildustu bækurnar hvert ár.
Efst á lista fyrir árið 2021 er myndasagan Gender
Queer eftir Maia Kobabe sem var gefin út 2019.
Gender Queer er sjálfsævisögulegur leiðarvísir
fyrir lesendur um trans og kynsegin málefni. Bókin
hefur verið gagnrýnd af andstæðingum hinsegin
réttinda sem vilja sumir hverjir meina að hún inni
haldi kynferðislegar myndskreytingar sem séu ekki
við hæfi barna. Hið rétta er hins vegar að um er að
ræða hjartnæma sjálfsævisögu sem lýsir reynslu
höfundar af því að lifa utan kynjatvíhyggjunnar.
Hvarfbaugur krabbans
eftir Henry Miller
Tropic of Cancer, eða Hvarfbaugur krabbans,
skáldsaga Henrys Miller frá 1934 er í dag talin
eitt af meistaraverkum 20. aldar módernismans.
Á sínum tíma var bókin hins vegar uppspretta
einna hatrömmustu lagadeilna Bandaríkjanna
um prentfrelsi og var bönnuð þar í rúm þrjátíu
ár.
Hvarfbaugur krabbans var skrifuð og gefin
út í París og er að hluta sjálfsævisöguleg lýsing
á nautnafullu bóhemlífi höfundarins þar. Hún
var gefin út ólöglega í New York 1940 og sat
útgefandinn í fangelsi í þrjú ár í kjölfarið. Eftir
að bókin var formlega gefin út í Bandaríkjunum
1961 voru höfðaðar rúmlega sextíu málsóknir
á hendur útgefendum og bóksölum fyrir meint
klámfengi hennar.
Hæstaréttardómari
Pennsylvaníu, Mic
hael Musmanno, var
ómyrkur í máli er hann
skrifaði í sératkvæði:
„Hvarfbaugur krabb
ans er ekki bók. Hún
er rotþró, opið ræsi,
ýldupyttur, slímugt
samansafn alls þess
sem er rotið í ruslakistu
mennskrar siðspilling
ar.“ Sennilega ein bestu
meðmæli sem nokkur
skáldsaga hefur fengið í
bókmenntasögunni.
Söngvar
Satans
eftir Salman
Rushdie
The Satanic Verses, eða Söngvar Satans, er
fjórða skáldsaga breskindverska rithöfundarins
Salman Rushdie. Bókin kom upphaflega út árið
1988 og fjallar meðal annars um ævi spámanns
ins Múhameðs, ritun Kóransins og þróun Íslams
trúar. Bókin fór fyrir brjóstið á múslimum víða
um heim, var meðal annars bönnuð í Indlandi og
Pakistan og bókabrennur haldnar í Bretlandi.
Fjaðrafokið náði hápunkti sínum þegar Aya
tollah Khomeini, þáverandi erkiklerkur Írans,
gaf út fatwafyrirskipun árið 1989 um dauða
dóm yfir höfundi og útgefendum bókarinnar.
Salman Rushdie lifði af nokkrar morðtilraunir en
aðrir voru ekki svo heppnir, þar á meðal Hitoshi
Igarashi, japanskur þýðandi bókarinnar, sem var
stunginn til bana 1991 og tyrkneski þýðandinn
Aziz Nesin sem var eltur uppi af æstum múg
er kveikti eld á hóteli hans 1993. Nesin slapp
naumlega lifandi en 37 manns létust í brun
anum.
Söngvar Satans er enn umdeilt verk og 2016
sagði íslenski leikstjórinn Þorleifur Örn Arnars
son sig frá leikgerð þess í Wiesbaden í Þýska
landi af ótta við að uppsetningin gæti orðið olía
á eld heiftarlegrar umræðu um innflytjendamál
þar í landi.
Harry Potter
eftir J.K. Rowling
Fáar bækur endurspegla betur menningarstríð
samtímans og núninginn á milli íhaldssamra og
róttækra afla heldur en bækurnar um galdra
strákinn Harry Potter eftir J.K. Rowling. Harry
Potterbækurnar voru upphaflega gefnar út á
árunum 19972007 og hafa selst yfir 500 milljón
eintök víða um heim, sem gerir þær að vinsæl
ustu bókaseríu allra tíma.
Bækurnar hafa þó verið uppspretta mikilla
deilna, allt frá bókabrennum yfir í málsóknir.
Harry Potter trónir efst á lista Bandaríska bóka
safnasambandsins yfir umdeildustu bækurnar
áratuginn 20002009 en það er einna helst
fyrir tilstuðlan ýmissa kristinna bókstafstrúar
manna sem telja bókina hvetja til guðlasts og
fjölkynngi með umfjöllun um galdra.
Á undanförnum árum hafa um
deild ummæli J.K.
Rowling
um trans
og hinsegin
fólk einnig
vakið upp reiði
þessara sam
félagshópa og
stuðningsfólks
þeirra sem hefur
sumt hvert snúið
baki við sköp
unarverki höf
undarins vegna
meintra fordóma
hennar.
28 Helgin 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ