Fréttablaðið - 28.05.2022, Side 30

Fréttablaðið - 28.05.2022, Side 30
Nýsköpunin á bak við TARAMAR vörurnar á uppruna sinn í tveimur ólíkum fræðasviðum innan Háskóla Íslands, en stofnendur TARAMAR, Guðrún Marteins- dóttir og Kristberg Kristbergsson, eru bæði prófessorar, annars vegar við í Líf- og umhverfisvísindadeild og hins vegar við Matvæla- og nær- ingarfræðideild. Guðrún segir að þar sem þau komi ekki úr lyfjageiranum, þar sem flestar húðvörur eru þróaðar, heldur úr fagsviðum matvæla- og sjávarlíffræði, þá hafi TARAMAR vörurnar orðið líkari matvælum heldur en venjulegum snyrti- vörum, sem oft innihalda efni sem ekki má borða og jafnvel efni sem hafa slæm áhrif á húð og innra umhverfi líkamans. „Það var vissulega eitt af markmiðum okkar að vörurnar okkar yrðu svo hreinar að það mætti tæknilega borða þær. Það hefur tekist og í dag innihalda þessar vörur ekkert sem er skað- legt, hvorki fyrir mannfólkið né umhverfið,“ segir Guðrún. „Þegar ég fór fyrst að skoða inni- haldsefni í húðvörum þá má segja að ég hafi orðið fyrir smá sjokki. Það er eiginlega ótrúlegt hvaða efni má finna í þessu vörum, en almennt eru þetta ódýr efni sem maður er vanur að sjá í f lísalími, málningu eða jafnvel í dekkjum undir bifreiðar,“ segir Guðrún. „Þetta eru efni sem eru framleidd í milljónum tonna og hægt að kaupa mjög ódýrt. Það gerir mann vissu- lega reiðan að sjá síðan þessi sömu efni komin í f lottar og glitrandi krukkur og seld sem rándýr krem.“ Nýtum vísindin til að skilja leyndardóma náttúrunnar Rannsóknir okkar beinast bæði að náttúrulegu efnunum sem finna má í jurtunum og íslenskum þörungum, sem og samsetningu á formúlum þannig að þær séu í jafn- vægi og að öll efnin vinni saman. Það er ákaflega sérkennilegt að sjá hvað lítil hugsun hefur farið í mótun uppskrifta í þessum iðnaði. Þannig er algengt að sjá mikinn fjölda efna (oft 40-100 efni) í einni húðvöru og það þarf ekki mikla speki til að sjá að þessi efni geta aldrei unnið öll saman í fullkomnu jafnvægi. Við þetta myndast spenna í formúlunni og margir finna það þó þeir geti ekki greint ástæðuna. Okkar rannsóknir sýna að þegar fullkomið jafnvægi ríkir í formúlunni, þá er árangurinn margfalt betri og vellíðan þeirra sem njóta verður meiri. Allar TARAMAR vörurnar eru settar saman þannig að náttúru- legu efnin vinna saman í jafnvægi og mynda samhljóm af lífvirkni sem er í raun stórkostleg. Virkni varanna hefur verið staðfest af óháðum rannsóknaraðilum í Frakklandi og sýnt með mæl- ingum fram á að þær meðal annars auka raka og ljóma, þétta húðina og draga úr hrukkum. Þannig má oft sjá fyrsta árangur á nokkrum dögum en einnig má sjá hvernig húðin batnar og batnar frá einum mánuði til annars. Margir tala um að eftir nokkurn tíma sé húðin í raun komin í lag og þeir þurfi mun minna á húðvörum að halda. Hundruð Íslendinga hafa tekið þátt í þróun TARAMAR húðvara Alveg frá upphafi hafa mjög margir tekið þátt í stofnun og þróun TARAMAR á Íslandi. Þannig eru fleiri en 300 Íslendingar eigendur TARAMAR og nærri 4.000 manns eru meðlimir í vildarklúbbi TARAMAR. Fleiri hundruð manns hafa tekið þátt í prufuhópum og verkefnum sem stundum spönn- uðu marga mánuði. Niðurstöður úr þessum prófunum hafa verið mikilvægar og haft áhrif á þróun- ina. Í sumum tilfellum hafa orðið til nýjar vörur sem svar við óskum notenda TARAMAR. Í dag er nýja ICEBLU línan í prófunum og með- limir í vildarklúbbi TARAMAR geta nýtt sér það og nálgast fríar vörur til að prófa þegar þeir versla í vefversluninni. n Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun hjá TARAMAR er bent á að skrá sig í vildarklúbbinn á taramar.is. Þeir sem hafa áhuga á að gerast einn af eigendum TARAMAR geta sent fyrirspurn á info@taramar.is. Í dag er minnst hægt að kaupa B-hluti (hlutur án atkvæðaréttar) fyrir 100 þúsund krónur en þeim fylgir 40% af- sláttur í vefverslun TARAMAR. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Kaupa má TARAMAR vörurnar á 25% afslætti á taramar.is með því að nota kóðann tm25. 300 Íslendingar eru eigendur TARAMAR og nærri 4.000 manns eru meðlimir í vildarklúbbi TARAMAR. Taramar kemur í vönduðum umbúðum. ICEBLU serumið er dæmi um þrónarvöru sem stendur meðlimum í vildar- klúbbi TARAMAR til boða. Það var vissulega eitt af markmiðum okkar að vörurnar okkar yrðu svo hreinar að það mætti tæknilega borða þær. Það hefur tekist og í dag innihalda þessar vörur ekkert sem er skaðlegt, hvorki fyrir mannfólkið né umhverf- ið. 2 kynningarblað A L LT 28. maí 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.